Víkurfréttir - 02.01.2020, Blaðsíða 18
Sandra Ólafsdóttir, viðskiptafræðinemi
við Háskóla Reykjavíkur og starfsmaður
á Heilsuleikskólanum Kór:
Margt fallegt að
gerast í samfélaginu
Hvernig ætlarðu að fagna áramótunum?
„Ég verð í faðmi foreldra minna. Fyrsta árið sem systir mín verður
ekki með okkur svo það verður smá skrítið. En ætli maður kíki ekki
á lífið þegar líður á nóttina.“
Ertu með áramótaheiti fyrir 2020?
„Ég legg voða lítið upp úr því að setja mér áramótaheiti þó það
blundi stundum á því hvað mig langi að gera á nýju ári ómeðvitað.
Ætli það sé ekki að lesa fleiri bækur mér til skemmtunar, njóta þess
að vera í kringum fjölskyldu og vini, sjálfsvinna og að leyfa mér að
gera eitthvað annað en að læra án þess að fá samviskubit. Þetta síðasta er
mjög erfitt og líklega margir sem kannast við það.“
Hvað var það besta sem gerðist hjá þér persónulega 2019?
„Ég hélt áfram þó vindar blésu á móti. Kláraði skólann vel, hélt áfram í minni
baráttu og lærði mjög mikið á sjálfa mig. Held ótrauð áfram á nýju ári.“
Hvað var það besta sem gerðist í samfélaginu 2019 að þínu mati?
„Án efa vitundarvakning kynferðisofbeldis og mikilvægi þess að virða mörk
annarra. Það er margt fallegt að gerast í samfélaginu okkar, þetta er rétt
að byrja!“
Ásta María Jónasdóttir, aðstoðarmaður
fasteignasala hjá Allt fasteignir fasteignasölu:
Stefnir á hálfmaraþon
Hvernig ætlarðu að fagna áramótunum?
„Við litla fjölskyldan verðum hjá pabba um áramótin, pabbi er einn helsti
stuðningsmaður björgunarsveitarinnar svo ég býst við að þeim verði fagnað
með góðum mat og nóg af flugeldum.“
Ertu með áramótaheiti fyrir 2020?
„Kannski ekki beint áramótaheiti en markmið samt sem áður, ég stefni að því
að taka hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu ásamt því að vinna í sjálfri mér.“
Hvað var það besta sem gerðist hjá þér persónulega 2019?
„Ætli það besta hafi ekki verið þegar ég tók þá ákvörðun fyrir sjálfa mig að
fara í magaermisaðgerð í Lettlandi í júlí.“
Hvað var það besta sem gerðist í samfélaginu 2019 að þínu mati?
„Það er alltaf hrikalega jákvætt hvað unga fólkið okkar verður meðvitaðara
um það sem er að gerast í kringum okkur. Mér fannst þetta ár einkennast
mikið af því að unga fólkið varð almennt fróðara um sín mörk og mikilvægi þeirra.“
Laufey Ebba Eðvarðsdóttir starfar við
endurskoðun hjá Deloitte í Reykjanesbæ:
Ætlar að finna kærasta
á nýju ári
Hvernig ætlarðu að fagna ára-
mótunum?
„Ég verð hjá mömmu með fjöl-
skyldunni. Mamma var erlendis
á aðfangadag svo við ætlum að
fara öll saman inn í nýja árið.“
Ertu með áramótaheiti fyrir
2020?
„Er með skýrt markmið fyrir
næstu jól, ég ætla að finna mér
kærasta á árinu. Þetta er mest
djók en smá ekki djók. Það er
djók í fjölskyldunni að ef ekkert
verði farið að ganga í leitinni um
mitt ár sé ég reiðubúin að lækka
standardinn töluvert.“
Hvað var það besta sem gerðist hjá þér
persónulega 2019?
„Árið 2019 var frábært ár hjá mér. Ég byrjun árs byrjaði ég í nýju framtíðar-
starfi, ég ættleiddi hund, útskrifaðist með meistaragráðu og byrjaði að kenna
dæmatíma í HR. Svo líður mér líka rosavel í sálinni, sem er mikilvægast af öllu.
Amma sagði alltaf að það væri mikilvægt að lifa í sátt við guð og menn, það
eru orð sem ég reyni að lifa eftir.“
Hvað var það besta sem gerðist í samfélaginu 2019 að þínu mati?
„Mér finnst flest ganga frekar vel í samfélaginu. Ég er reyndar frekar mikil
Pollýanna en það virkar fyrir mig. Mér finnst til dæmis Reykjanesbær vera að
lifna við. Mér finnst samfélagið hérna vera yndislegt, unga fólkið okkar víðsýnt
og duglegt og bæjarbragurinn sem er að myndast meiriháttar. Í heildina litið
finnst mér samfélagið alltaf verða betra og betra.“
VANTAR VANAN
HANDFLAKARA
TIL STARFA
Næg vinna framundan
Upplýsingar í síma 7746908.
N.G. fish ehf. Sandgerði.
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
Reiki, heilun
getur lagað hina ýmsu kvilla
þunglyndi, verki, léttir lund
Hef unnið með veik dýr líka
með góðum árangri.
Helga P. Hrafnan,
reikimeistari
Tímapantanir á
palina1937@hotmail.com
Unga fólkið um áramótin
Á milli jóla og nýárs spurði Sólborg Guðbrandsdóttir
nokkur ungmenni út í nýliðið ár og áramótin
Ingibjörg Ýr Smáradóttir, starfsmaður Icelandair:
Einblínir á það góða
Hvernig ætlarðu að fagna áramótunum?
„Ég ætla að eyða þeim heima með fjölskyldunni minni, elda góðan
mat og njóta.“
Ertu með áramótaheiti fyrir 2020?
„Ekki beint nei, bara að halda áfram að rækta og einblína á það góða
í lífinu.“
Hvað var það besta sem gerðist hjá þér persónulega 2019?
„Ég kláraði loksins stúdentsprófið mitt, svo er alltaf best að fylgjast
með syni mínum vaxa og dafna á hverjum degi.“
Hvað var það besta sem gerðist í samfélaginu 2019 að þínu mati?
„Mikil vakning í umhverfismálum.“
Sigríður Guðbrandsdóttir,
starfsmaður þjónustuvers Reykjanesbæjar:
Ánægð með uppbygg-
ingu sveitarfélagsins
Hvernig ætlarðu að fagna áramótunum?
„Ég ætla að fagna áramótunum heima með
fólkinu mínu, horfa á áramótaskaupið, jafn-
vel sprengja nokkra flugelda og hitta vini.“
Ertu með áramótaheiti fyrir 2020?
„Áramótaheitin mín fyrir árið 2020 eru m.a.
að eyða meiri tíma með fjölskyldu og vinum
og ferðast.“
Hvað var það besta sem gerðist hjá þér
persónulega 2019?
„Ég söng bakraddir í Söngvakeppninni og á
tónleikunum Með blik í auga. Ég eignaðist
aðra bróðurdóttir. Ég hljóp í Reykjavíkur-
maraþoninu fyrir fyrsta skiptið fyrir frænku
mína, keypti mína fyrstu íbúð með kærast-
anum mínum og átti góðar stundir með
fjölskyldu og vinum.“
Hvað var það besta sem gerðist í sam-
félaginu 2019?
Uppbyggingin sem varð í sveitafélaginu
og bætt fjárhagsstaða bæjarins. Einnig
vitundarvakningin um loftslagsmálin.
Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir,
danskennari og stuðningsfulltrúi
í Myllubakkaskóla:
Óléttan breytti
hugarfarinu
Hvernig ætlarðu að fagna áramótunum?
„Þetta verða voða róleg áramót hjá mér. En ég
ætla að vera með fjölskyldunni, borða góðan
mat og njóta.“
Ertu með áramótaheiti fyrir 2020?
„Ég er með nokkra hluti í huga, eitt af því
er að hugsa betur um sjálfa mig.“
Hvað var það besta sem gerðist hjá þér
persónulega 2019?
„Ég varð ólétt, það hefur breytt hugar-
farinu ótrúlega mikið á góðan hátt.“
Hvað var það besta sem gerðist í sam-
félaginu 2019 að þínu mati?
„Lengingin á fæðingarorlofinu er kannski
það sem er mér efst í huga einmitt núna.“
18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 2. janúar 2020 // 1. tbl. // 41. árg.