Víkurfréttir - 02.01.2020, Blaðsíða 10
„Lífið er of dýrmætt ferðalag
til að standa í skugga þennan dag,“
gæti verið lífsmottó Más Gunnarssonar en þetta viðlag kemur fyrir í sigurlagi hans
og systur hans, Ísoldar, en þau sigruðu í jólalagakeppni Rásar tvö nú fyrir jólin.
Það hlýtur að vera sérstakt að sjá ekki
umhverfi sitt og þurfa að kortleggja það
með huganum. Svo ef eitthvað óvænt
kemur í umhverfið, sem þú átt ekki
von á, getur það verið afdrifaríkt fyrir
þig og jafnvel valdið slysi.
Hljóðlausir rafbílar eru til dæmis ný
ógn fyrir blinda sem treysta á heyrn
sína þegar farið er yfir götu. Það er
hollt að setja sig í spor þeirra sem sjá
ekki eins og við hin.
Már Gunnarsson, tónlistarmaður og
sundkappi, er blindur í dag en hann
fæddist með sjúkdóm í augnbotnum
sem gerði það að verkum að sjónin
minnkaði með árunum.
Maður finnur fljótt að Már er ein-
staklega jákvæður og lætur ekkert
stoppa sig, að tala um fötlun í tilfelli
hans er því algjör óþarfi.
Gömul sál með fallegt hjarta
„Ég er dálítið í mörgu en læt aldrei
draga úr mér. Stundum held ég að fólk
hugsi að ég sé að taka of stóra bita þegar
ég tilkynni markmið mín en mér finnst
það ekki sjálfum. Allir í kringum mig
styðja það sem ég er að gera. Mér finnst
gaman að spila tónlist og mér finnst
gaman að synda á góðum tíma og mér
finnst gaman að ferðast til útlanda. Mér
finnst gaman að hlusta á hljóðbækur á
ensku, þýsku og íslensku. Allt sem er
skemmtilegt finnst mér gaman að gera.
Að vera lifandi og ferskur í öllu sem ég
geri er mottó mitt,“ segir Már stutt og
laggott og þar höfum við þá lífsreglu
á tæru frá þessum unga manni sem er
aðeins tvítugur en gæti verið mun eldri
miðað við hvernig hann talar.
Metnaðarfullur
og hugrakkur
„Allt sem ég geri, vil ég gera vel og hef
alltaf lagt mig fram en það verður að
vera gaman, ég vil uppskera. Ef eitthvað
er leiðinlegt þá sleppi ég því, það er bara
svoleiðis. Ég æfi tvisvar á dag, alla daga
vikunnar nema á sunnudögum en þá
tek ég mér frí. Á morgnana tek ég alls-
konar styrktaræfingar og svo syndi ég
iðulega tvisvar á dag. Ég stefni að því að
komast á Ólymp íu leika fatlaðra í Tókýó
árið 2020 en þar stefni ég á gullið. Það
er mjög erfitt að komast inn, alls konar
síur en ég er samt líklegur kandídat að
komast á pall í Tokyo.“
Már er ekki aðeins metnaðarfullur á
íþróttasviðinu heldur hefur hann einnig
metnað fyrir tónlistarsköpun sinni.
„Ég hef alltaf haft gaman af því að
syngja en þegar ég var sjö ára þá lærði
ég fyrst á píanó hjá rússneskum píanó-
meistara í Luxemburg, þar sem við
bjuggum. Mamma og pabbi komu með
þessa hugmynd um að læra á píanó.
Svo þróaðist það í að ég fór að semja
mína eigin tónlist. Í dag er ég bæði tón-
leikahaldari og lagaútgefandi. Söngur
fuglsins er geisladiskur sem ég gaf út
og hefur selst vel, einhver þessara laga
eru á Spotify en annars sel ég geisla-
diskinn á gamla mátann og hægt er að
nálgast þá hjá mér. Ég hef gaman af því
að búa til stóra viðburði og 13. mars
næstkomandi ætla ég að halda tónleika
í Hljómahöll. Þá koma fram, ásamt mér
og fleirum, níu bestu hljóðfæraleikarar
Póllands. Við verðum svona þrettán til
fjórtán manns á sviðinu. Þarna verður
tónlist mín flutt með öllu þessu flotta
tónlistarfólki, ég hlakka mikið til,“ segir
Már sem vílar ekki fyrir sér að fram-
kvæma hluti sem aðrir veigra sér við.
Már er ekki bara hæfileikaríkur heldur
er hann einnig ótrúlega hugrakkur.
Alinn upp í jákvæðu
umhverfi
„Til þess að afreka og ná árangri þá
er ég viss um að jákvæðni sé rauði
þráðurinn. Ég er svo heppinn að hafa
alltaf verið alinn upp í jákvæðu um-
hverfi og hugsa: „Ég get, ég skal, ég
ætla.“ Til þess að ná að halda svona
stóra og mikla tónleika og stefna á Ól-
ympíuleikana í Tokyo 2020 þá verð ég
að vera jákvæður og hafa trú á sjálfum
mér. Hugurinn þarf að vera jákvæður.
Ég sá miklu betur þegar ég var yngri og
það hefur hjálpað mér í dag að ég hafði
sjón í upphafi. Sjóninni hrakaði þegar
Marta Eiríksdóttir
marta@vf.is
Allt sem ég geri,
vil ég gera vel
og hef alltaf lagt
mig fram en það
verður að vera
gaman, ég vil
uppskera ...
Már Gunnarsson varð ellefti í kjöri til íþróttamanns ársins 2019 hjá Samtökum íþróttafréttamanna.
10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR
MÁR ER MAÐUR ÁRSINS
Sundkappinn og tón-
listarmaðurinn Már
Gunnarsson er Suður-
nesjamaður ársins 2019
Sundkappinn og tónlistarmaðurinn Már Gunnarsson er Suðurnesjamaður ársins 2019 hjá Víkurfréttum. „Ég átti nú ekki alveg von á þessu en gaman að vera kominn í þennan merka hóp ykkar,“ sagði ungi maðurinn af hógværð við ritstjóra Víkurfrétta sem greindi honum frá útnefningunni rétt fyrir jól.
Þegar þetta birtist 2. janúar er Már kominn til út-landa en hann mun næstu vikurnar stunda æfingar og keppa erlendis eins og fram kemur síðar í þessari umfjöllun. Már er aðeins tvítugur að aldri.Már á sérlega glæsilegt íþróttaár að baki sem náði hámarki á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi sem fram fór í London seint á síðasta ári. Þar varð Már einn Norðurlandabúa til þess að komast á verðlaunapall þegar hann setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 100m baksundi og vann til bronsverð-launa í greininni. Á árinu 2019 setti Már alls 28 Íslandsmet og synti þrívegis undir gildandi heims-meti á ÍM25 í Ásvallalaug. Már stefnir ótrauður að þátttöku á Paralympics í Tokyo 2020 en takist það ætlunarverk hans verður það í fyrsta sinn sem hann keppir á leikunum.
Már sinnti tónlistargyðjunni einnig af kappi og hélt stórtónleika í upphafi árs, hann ætlar að endurtaka leikinn nú í mars. Þá endaði Már árið skemmtilega þegar hann og Ísold systir hans unnu jólalagakeppni Rásar tvö. Lagið var efst á vin-sældalista Rásar tvö síðustu vikuna í desember og næstvinsælast vikuna þar á undan.
Í Suðurnesjamagasíni, fyrsta þætti ársins 2020 hjá Víkurfréttum, hittum við Má og ræðum við hann
um sundið, tónlistina, blindrastafinn og fleira. Marta Eiríksdóttir, blaðamaður á Víkurfréttum, hitti Má hins vegar og tók viðtalið sem birtist hér. Það dugði ekkert minna en að senda tvo aðila frá Víkurfréttum til að ræða við þennan magnaða strák.