Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Page 6

Víkurfréttir - 09.01.2020, Page 6
Ferskir vindar blésu hraustlega í Suðurnesjabæ á laugar- daginn og því var opnunarhátíð listahátíðarinnar Ferskra vinda slegið á frest um sólarhring. Fjölmargir lögðu leið sína í sýningarrýmið við Sunnubraut 4 í Garði á sunnu- daginn síðasta til að verða vitni að því sem þar fór fram. Eliza Reid, forsetafrú, opnaði sýning- una en hún er verndari Ferskra vinda öðru sinni. Þá fluttu ávörp þeir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesja- bæjar, og Paul Graham, sendiherra Frakklands á Íslandi en sendiráðið er einn af stuðningsaðilum hátíðarinnar. Alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar fer nú fram í sjötta sinn. Fyrstu fimm skiptin var hátíðin haldin í Sveitarfélag- inu Garði en nú er hún í Suðurnesjabæ, sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sand- gerðis. Flestir viðburðir hátíðarinnar eru þó áfram í Garði en einnig eru sýningar og viðburðir í Sandgerði Alls taka 45 listamenn þátt í hátíð- inni, þar af 40 erlendir og mun hátíðin standa yfir til 12. janúar. Fjöldi lista- sýninga, tónleika og annarra viðburða verða í boði meðan hátíðin stendur yfir. Vegna veðurs riðlaðist dagskráin um opnunarhelgina en þeir sem vilja njóta listarinnar um komandi helgi er bent á að kynna sér dagskránna á heima- síðu hátíðarinnar, fresh-winds.com. Einnig má sjá dagskrá á fésbókarsíðu hátíðarinnar, Fresh Winds Iceland, og á heimasíðu Suðurnesjabæjar, sudur- nesjabaer.is. Meðfylgjandi ljósmyndir voru teknar við opnun hátíðarinnar í Garði um liðna helgi. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson Ferskir vindar riðluðu Ferskum vindum Vel heppn­ aðir nýárs­ tónleikar Fjölmenni var á nýárstónleikum þeirra Alexöndru Chernyshova, sópran, og Rúnar Þórs Guð- mundsonar, tenórs, sem fram fóru 1. janúar í Ytri-Njarðvíkur- kirkju. Með þeim voru Helgi Hannesson, píanóleikari, Steinar Kristinsson, trompet- leikari, stúlknakór Tónlistarskól- ans í Grindavík og Elsa Waage, kynnir. Þetta er í annað sinn sem þau efna til þessa tónleika og eins og fyrra þá heppnuðust þeir með afburðum vel og vöktu mikla lukku meðal gesta. Laga- val var fjölbreytt og skemmti- legt, allt frá óperu- og óper- ettutónlist yfir í söngleikja- og dægurlög. Söngvurum og tónlistarfólki var vel fagnað í lokin. Ljósmynd: Jón Rúnar Hilmars son VR • Krossmói 4a • 260 Reykjanesbær • Sími: 510 1700 • vr@vr.is • vr.is Við erum að flytjaSkrifstofa VR í Reykja nesbæ hefur flutt í annað húsnæði að Krossmóa 4aSkrifstofa VR flytur í nýtt húsnæði á Suðurnesjum LJ Ó SM Y N D : F ER SK IR V IN D A R LJÓSMYND: FERSKIR VINDAR 6 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.