Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Page 8

Víkurfréttir - 09.01.2020, Page 8
NFS mótmælir breytingum á leiðarkerfi strætó í Reykjanesbæ Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur sent frá sér ályktun varðandi tilætlaðar breytingar á leiðarkerfi strætó í Reykjanesbæ. Þar segir: „Í nýjum breytingum á leiðarkerfi Strætó mun strætó hætta að stoppa við FS kl. 08:01, eins og hann hefur ávallt gert en mun þess í stað stoppa við Holtaskóla kl. 08:05, en það er nákvæmlega á sama tíma og kennslustund hefst í FS. Þessar breytingar eru ekki gerðar í samráði við þá nemendur sem nýta sér þessa þjónustu og því eigum við erfitt með að sjá það hvernig þessar breytingar eiga að þjóna heildinni og þá sérstaklega námsmönnum. Þessar breytingar muna hafa það með sér í för að margir nemendur munu ekki geta nýtt sér þjónustu vagnanna sem er mjög slæmt. NFS mótmælir þessum breytingum og hvetur bæjarstjórn til þess að enduríhuga þessar breytingar og fá alla hagsmunaaðila að borðinu,“ segir í ályktuninni frá aðalstjórn Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Átta húsfélög á Ásbrú í Reykjanesbæ í þjónustu Eignaumsjónar Umsvif Eignaumsjónar hafa aukist umtalsvert á Ásbrú í Reykjanesbæ með samningi við Ásbrú íbúðir ehf. um húsfélagaþjónustu. Ásbrú íbúðir, sem er bæði leigu- og fasteignaþróunarfélag, hefur á undan- förnum árum unnið að endurbótum á um 500 íbúðum sem félagið keypti á Ásbrú á sínum tíma. Þær hafa síðan verið leigðar út eða settar í almenna sölu eftir því sem framkvæmdum hefur miðað áfram. Til að uppfylla ákvæði laga um stofnun húsfélaga í fjöleignarhúsum samdi félagið við Húsastoð um að annast þau mál og yfirtók Eignaumsjón þann samning í vor, þegar félagið keypti allan rekstur Húsastoðar. Þrjú félög stofnuð á árinu – tvö á döfinni á næsta ári Þrjú húsfélög hafa í framhaldinu verið stofnuð í sumar og haust á Ásbrú á vegum Eignaumsjónar. Áður var búið að stofna fimm húsfélög fyrir Ásbrú íbúðir og eru nú samtals átta húsfélög á svæðinu í þjónustu hjá Eignaumsjón. Þeim mun svo að óbreyttu fjölga í að minnsta kosti tíu á næsta ári en þá er fyrirhuguð stofnun tveggja nýrra húsfélaga á svæðinu fyrir Ásbrú íbúðir. Ný gjaldskrá hefur tekið gildi fyrir íþróttamiðstöðina í Sveitarfélaginu Vogum. Þar ber helst til tíðinda að allir þeir sem eiga lögheimili í sveita- félaginu fá núna frítt í sund. Börn að 18 ára aldri, elli- og örorkulífeyrisþegar sem ekki eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Vogum greiða nú kr. 200 fyrir stakt skipti í laugina og aðrir þurfa að greiða kr. 650. Frítt í sund í Vogum Siggi Bjarna GK grátlega nálægt því að vera aflahæstur Þá er árið 2020 gengið í garð og þar með er vetrarvertíðin árið 2020 líka byrjuð. Ekki er nú þar með sagt að árið byrji með látum því þegar þetta er skrifað þá hefur svo til enginn bátur frá Suður- nesjunum, nema stóru línubátarnir frá Grindavík og netabátarnir Grímsnes GK og Erling KE, komist á veiðar. Aflatölur því núna snemma í janúar eru mjög litlar eða engar. Snúum okkur þá aðeins að öðru. Núna liggur dragnótabáturinn Siggi Bjarna GK í slippnum í Njarðvík. Báturinn er einn af svokölluðum Kínabátum sem komu hingað til lands rétt eftir aldamótin, eða um árið 2001. Fyrst hét báturinn Ýmir BA og var gerður út frá Bíldudal. Hann var þar reyndar ekki lengi því árið 2003 keypti Nesfiskur bátinn og hét hann þá Siggi Bjarna GK. Siggi Bjarna GK var fyrst mun styttri en hann er í dag en allir þessi Kínabátar voru lengdir og byggt var yfir suma þeirra. Í það minnsta þá báta sem ennþá eru til á landinu. Þeir eru nokkrir þessi Kínabátar. Á Snæfellsnesi eru Gunnar Bjarnason SH og Matthías SH sem báðir eru drag- nótabátar og búið að lengja þá báða. Nesfiskur á tvo báta, Sigga Bjarna GK og Benna Sæm GK, síðan eru tveir aðrir bátar sem hafa stundað línu- veiðar en báðum þeim bátum hefur verið lagt. Á Rifi er Faxaborg SH sem lengi vel hét Sólborg RE og í Grindavík er Guðbjörg GK sem Stakkavík ehf. á og gerir út. Siggi Bjarna GK átti feikilega gott ár árið 2019, reyndar það gott ár að báturinn hefur aldrei landað jafn miklum afla á einu ári og hann gerði 2019. Samtals landaði Siggi Bjarna GK 1862 tonnum í 159 róðrum, eða 11,7 tonn í róðri. Öllum þessum afla var landað í Sandgerði að undanskildum 200 tonnum í Þorlákshöfn í júní en þá var báturinn að veiðum meðfram Suður- ströndinni og var á útilegu eins og það er kallað. Þá kom báturinn með í land 41,1 tonn sem reyndist vera stærsta löndun bátsins árið 2019, auk þess landaði hann 31 tonni í Keflavík. Í byrjun desember bilaði gírinn í Sigga Bjarna GK var því báturinn frá veiðum mest allan desember, var að- eins með tvær landanir í desember. Þetta var dálítið grátlegt vegna þess að aflahæsti dragnótabáturinn árið 2019 réri ekkert í desember. Hásteinn ÁR var aflahæstur en hann var aðeins með fimmtán tonnum meiri afla en Siggi Bjarna GK. Ótrúlega gott ár hjá þeim á Sigga Bjarna GK árið 2019 en grátlegt að bila rétt í blálokin, báturinn hefði hæglega getað orðið aflahæstur allra dragnóta- báta á landinu árið 2019 hefði hann ekki bilað. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Köstuðu flugeldum inn í anddyri fjölbýlishúss Nokkrar tilkynningar bárust lög- reglunni á Suðurnesjum um ára- mótin vegna óæskilegrar meðferðar á flugeldum. Í Sandgerði var tilkynnt um ungl- inga sem voru að kasta flugeldum inn í anddyri fjölbýlishúss. Lögregla fór á staðinn en þá voru þeir á bak og burt. Í Njarðvík voru unglingar staðnir að því að sprengja flugelda inni í nýbyggingu. Þeir ætluðu að forða sér þegar þeir urðu lögreglu varir en það tókst ekki. Lögreglumenn ræddu við þá um atvikið og höfðu jafnframt tal af forráðamönnum þeirra. Þá var tilkynnt um pilta að kasta flugeldum í íþróttahús. Þeir náðu að komast undan á hlaupum. Eldur kom svo upp í bílskúr í Keflavík. Grunur leikur á að hann hafi kviknað út frá flugeldi sem lenti á skúrnum. Auk þessa kviknaði í pítsukassa sem skilinn hafði verið eftir á eldavél í íbúðarhúsnæði í Keflavík. Einhverjar skemmdir urðu af völdum reyks. Stálu sjónvarpi úr verslun Tilkynnt var um þjófnað úr ný- byggingu þar sem stolið hafði verið höggborvél, heftibyssu og hamri. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum eftir að tveir menn höfðu stolið sjónvarpi úr verslun í Njarðvík. Þegar lögreglumenn komu á staðinn hafði starfsfólk verslunar- innar fundið sjónvarpið við ruslagám í nágrenni hennar. Ekið undarlega í leit að norðurljósum Talsverðar annir hafa verið hjá lög- reglunni á Suðurnesjum á undan- förnum dögum vegna umferðar- eftirlits. Bifreið sem ekið var afar hægt eftir Hringbraut og stigið ótt og títt á bremsuna vakti til dæmis athygli lögreglumanna. Þegar öku- maðurinn nam svo skyndilega staðar á miðjum vegi var ákveðið að kanna með ástand hans. Hann reyndist í fullkomnu lagi og voru þarna á ferð erlendir ferðamenn sem voru að leita að norðurljósum. Þá voru nokkrir ökumenn stöðv- aðir vegna gruns um vímuefna- neyslu. Einn þeirra hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Nokkrir voru svo kærðir fyrir hrað- akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 125 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. DAGBÓK LÖGREGLUNNAR Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁGÚSTA HANSDÓTTIR sem lést á Heilbrigðistofnun Suðurnesja þann 1. janúar verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 10. janúar kl 15. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Suðurnesja. Halldór Pétursson og fjölskylda Ástkær sambýlismaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, RICHARD DAWSON WOODHEAD Útfararstjóri, Kirkjuteigi 1, Keflavík, lést á gjörgæslu Hospiten á Tenerife föstudaginn 27. desember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 16. janúar kl. 13. Margrét Pétursdóttir Kristín Richardsdóttir Aðalsteinn H. Jónatansson Agnes Ásta Woodhead Einar Gunnar Einarssson Frank Dawson Woodhead Bennie May Wright Lára Gestrún Woodhead Ólafur Tryggvi Eggertsson stjúpbörn, afabörn og langafabörn. 8 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.