Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 09.01.2020, Blaðsíða 10
Hver man ekki eftir Aðalveri, salnum uppi fyrir ofan Aðalstöðina í Keflavík, sem var leigubílastöð á árum áður? Undirrituð man eftir að hafa labbað upp tröpp- urnar og inn í sal, til þess að fara í djassballett í Aðalveri hjá Iben Sonne sem var dönsk. Fleiri af eldri kynslóðinni muna sjálfsagt einnig eftir jólaböllunum sem haldin voru í Aðalveri, þegar börnin dönsuðu þar í kringum jólatréð og sungu hástöfum til að jólasveinninn mætti á svæðið með ávexti í poka og fengu örlítinn sælgætispoka einnig ef þau voru heppin. Þarna var dansað og haldnar árshátíðir. Fíni, stóri barinn var vinstra megin við dyrnar þegar komið var inn. Allt rifjast þetta upp þegar blaðakona Víkurfrétta gekk upp tröppurnar um daginn og átti stefnumót við Díönu Karen Rúnarsdóttur, 27 ára gamla fram- kvæmdastýru Eiríkssalar og Orange Streetfood. Díana ólst upp í Keflavík og er elsta dóttir Rúnars Eiríkssonar, fiskverkanda í Garði, og Heiðbráar Steinþórsdóttur sem eiga reksturinn. Fullt af hugmyndum í gangi „Pabbi minn hefur alltaf verið rosalega duglegur að koma hlutum í framkvæmd og fær trilljón hugmyndir á dag um hvað væri hægt að gera skemmtilegt. Pabbi vissi alltaf af mér á hliðarlínunni ef hann skyldi fara út í rekstur sem ég gæti hjálpað honum eitthvað með. Í sumar ákvað hann svo að kaupa rekstur Orange Streetfood á Hafnargötu 86 og bauð mér að sjá alfarið um dag- legan rekstur. Ég ákvað að slá til og sagði upp þáverandi starfi mínu sem forstöðumaður á frístundaheimili. Ég hef alltaf litið upp til pabba og ég fæ það frá honum að elska að takast á við krefjandi verkefni,“ segir Díana. Girnilegur matseðill „Í júní fengum við staðinn afhentan og breyttum við áherslum í rekstri hans strax í upphafi, einfölduðum matseðilinn, breyttum ásýndinni á veitingasalnum ásamt því að skipta út vörumerkinu. Við leggjum upp úr því að hafa staðinn lítinn og kósý og veita góða, vingjarnlega þjónustu. Svínarifin hjá okkur eru reykt á staðnum og eru með vinsælli réttum en við erum með sérstakan reykofn sem við notum við matreiðslu þeirra, sem gefur mjög gott bragð. Við erum einnig með sérstakan hamborgara sem heitir „Orange Special“ ásamt fullt af öðrum gómsætum ham- borgurum. Þetta eru einstaklega djúsí borgarar. Einn þeirra er til að mynda með Camembert, piparosti og rifs- berjasultu en hann er gríðarlega vin- sæll. Við viljum bjóða upp á girnilegan matseðil sem er öðruvísi en þú færð annars staðar og erum einnig með vegan-borgara sem er mjög vinsæll. Við erum mjög ánægð með matseðilinn okkar því við sjáum að fólki líkar hann vel. Bílalúgan okkar er líka hentug fyrir þá sem eru á ferðinni en það er hægt að gera boð á undan sér með því að hringja og panta mat þannig hann sé klár þegar þú kemur og sækir í lúguna,“ segir Díana. Frábærar móttökur „Við erum mjög þakklát fyrir mót- tökurnar á Orange Streetfood. Þetta er búið að vera ótrúlega krefjandi og skemmtilegt og ég er búin að læra heil- mikið frá því við tókum við staðnum í sumar. Ég hugsa alltaf út frá því hvernig ég myndi sjálf vilja upplifa svona veit- ingastað. Framúrskarandi þjónusta er góður grunnur til að byggja á. Daníel, maðurinn minn, hefur verið mér til að- stoðar en hann til dæmis bjó til heima- síðuna og sá um allt þetta tæknilega í kringum reksturinn, þar er hann góður þannig við smellum ágætlega saman. Ég hafði ofboðslega gaman af að hanna útlit staðarins og hugsa út í hvernig viðskiptavinirnir upplifa hann.“ Marta Eiríksdóttir marta@vf.is Ég hugsa alltaf út frá því hvernig ég myndi sjálf vilja upplifa svona veitingastað. Framúrskarandi þjónusta er góður grunnur til að byggja á ... Pabbi fær trilljón hugmyndir á dag – og þorir að framkvæma þær Aðalstöðin um 1950–1960. Teikning af Aðalstöðinni gömlu. Rúnar, Díana, Daníel og Heiðbrá. 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.