Víkurfréttir - 09.01.2020, Síða 11
Gamli tíminn og nýi tíminn
„Efri hæðin, sem hýsti áður skrifstofur
Aðalstöðvarinnar, hafði staðið að mestu
auð í tuttugu ár. Við pabbi höfðum auga
með henni og þegar við lukum við
framkvæmdirnar á veitingastaðnum
í sumar ákváðum við að ræða við eig-
endur hússins. Við náðum samkomu-
lagi um leiguna og þeir afhentu okkur
lyklana og sögðu okkur að við mættum
gera það sem við vildum. Það þurfti
heilmikið að gera, skipta um rafmagn,
gólfefni og fleira. Það tók okkur sex
vikur að rífa niður veggi og endurnýja
efri hæðina því við vildum búa til eitt
stórt rými eins og áður var. Það hafa
margir bent okkur á að þessi salur
hafi einu sinni heitið Aðalver og við
kynntum okkur söguna. Við vorum
að spá í það nafn en svo var ákveðið
að heiðra minningu afa míns sem hét
Eiríkur og þaðan er nafnið Eiríkssalur
komið. Þegar við vorum að gera upp
efri hæðina ákváðum við að halda í
gamla stílinn þar sem hægt var, eins
og stigagangurinn sem er alveg eins
og fólk man eftir honum. Gamlar
ljósmyndir úr Aðalveri eiga eftir að
prýða salinn en við erum að vinna
í því núna að útvega þessar gömlu
myndir sem eru til,“ segir Díana og
brosir.
Eiríkssalur nýtist í svo margt
„Við erum búin að endurnýja salinn
en það hefði aldrei verið hægt hægt án
pabba og hans teymis. Hann vann nótt
sem nýtan dag við það að koma salnum
í stand og fengum við einnig ómetan-
lega hjálp frá mörgum góðum aðilum.
Eiríkssalur er veislusalur sem hægt
er að leigja fyrir ýmis konar viðburði
ásamt því að hægt er að kaupa veitingar
frá Orange Streetfood í veisluna. Við
getum að auki útvegað þjónustufólk í
veisluna ef þarf. Við erum búin að bóka
töluvert inn í nýja árið 2020, meðal
annars fyrir fermingarveislur, og erum
einnig að fá fyrirspurnir um bókanir
árið 2021. Við getum boðið félagasam-
tökum og klúbbum að halda fundi sína
hér í Eiríkssal. Við komum síðan sjálf
til með að bjóða upp á viðburði sem
lífga upp á bæjarstemninguna. Við
viljum að Eiríks salur verði fjölnota
menningarsalur fyrir bæjarbúa sem
langar að gera eitthvað skemmtilegt og
skapa líf í bænum á sama tíma. Fleiri
hugmyndir eru að spretta fram núna
og svo þróast þetta smátt og smátt.
Við erum rosa spennt að byrja nýtt ár
og sjá hvernig fólkið á Suðurnesjum
ætlar að nýta Eiríkssal, sér og öðrum
til skemmtunar,“ segir Díana að lokum
kampakát.
Við viljum að Eiríks salur
verði fjölnota menn-
ingarsalur fyrir bæjar-
búa sem langar að gera
eitthvað skemmtilegt
og skapa líf í bænum
á sama tíma ...
Veisla í Aðalveri 1963.
Díana er kampakát með nýja staðinn.
Eiríkssalur lítur vel út.
ATVINNA
Kjörbúðin í Sandgerði leitar að jákvæðum,
ábyrgðarfullum og kraftmiklum verslunarstjóra
sem hefur gaman af mannlegum samskiptum.
Starfssvið:
• Ábyrgð á rekstri verslunar.
• Samskipti við viðskiptavini og birgja.
• Umsjón með ráðningu starfsmanna og
almennri starfsmannastjórnun í verslun.
• Ábyrgð á vöruframsetningu og
áfyllingum.
• Ábyrgð á birgðahaldi í verslun.
• Önnur tilfallandi störf.
Hæfniskröfur:
• Gott er að hafa reynslu af stjórnun og
starfsmannahaldi hjá verslunar- og/eða
þjónustufyrirtækjum.
• Styrkleiki í mannlegum samskiptum,
sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni,
reglusemi og árvekni í hvívetna.
Allar nánari upplýsingar veitir Heiðar Róbert, rekstrarstjóri Kjörbúða – heidar@samkaup.is
Umsóknir skulu berast í gegnum heimasíðu Samkaupa – www.samkaup.is (Atvinnuumsóknir).
Umsóknarfrestur er til 14. janúar 2020.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umhverfissvið – starfsmaður í eignaumsýsludeild
Fræðslusvið – sálfræðingur
Akurskóli – umsjónarkennari (tímabundin ráðning)
Velferðarsvið – starf við liðveislu
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað.
Þeim er komið til stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir fyrnast að sex mánuðum liðnum.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Bókasafn Reykjanesbæjar - Heilakúnstir fyrir 4. - 10. bekk
Heimanámsaðstoð þriðudaga og fimmtudaga kl. 14:30-16:00.
Homework assistance every Tuesday and Thursday from
2.30pm-4pm. Pomoc w odrabianiu prac domowych jest
każdy wtorek i czwartek od godziny 14:30 do 16:00.
Listasafn - leiðsögn og síðasta sýningarhelgi
Laugardaginn 11. janúar. Elva Hreiðarsdóttir í Bíósal kl. 14:30
og Aðalsteinn Ingólfsson í listasal kl. 15:00. Síðasta sýningar-
helgi í listasal. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Nýtt leiðarkerfi innanbæjarstrætó - tók gildi 6. janúar
Kynnið ykkur nýtt leiðarkerfi innanbæjarstrætó á vef
Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is
11 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg. 10 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR