Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.01.2020, Side 19

Víkurfréttir - 09.01.2020, Side 19
Ragnar og Rakel aksturs- íþróttafólk Suðurnesja Akstursíþróttafélag Suðurnesja hélt sína uppskeruhátíð á dögunum og valdi íþróttakonu og íþróttakarl ársins 2019. Fyrir valinu urðu þau Rakel Ósk Árnadóttir og Ragnar Magnússon. Rakel Ósk er að keppa í unglinga- flokki í rallycross sem að er ætlaður krökkum á aldrinum fimmtán til sautján ára. „Þessi flokkur hefur gefið okkur reynslumeiri ökumenn út í umferðina og einnig inn í okkar sport en þarna eru unglingar að aka á bílum á lokaðir braut sem að gefur þeim reynslu áður en þau koma út í umferðina,“ segir í tilkynningu frá AÍFS. Ragnar Magnússon var kosinn akstursíþróttamaður AÍFS eftir gott gengi í sumar en hann háði harða baráttu í sínum flokki og sýndi það og sannaði það það þarf ekki alltaf öflugasta bílinn til að sigra heldur þann áreiðanlegsta og með góðum akstri í sumar skilaði Ragnar sér bæði Íslands- og bikarmeistararatitli í 2000cc flokk í rallycrossi í sumar. AÍFS heiðraði einnig þá sem að end- uðu á „toppnum“ þetta sumarið en þeir voru þó nokkrir. Stjórn AÍFS vill þakka öllum þeim sem að komu að keppnishaldi og sjálfboðaliðum í sumar kærlega fyrir allt og sjáumst á næsta keppnisári, segir í tilkynn- ingu frá stjórn Akstursíþróttafélags Suðurnesja. Íþróttafólk Grindavíkur Körfuknattleiksfólkið Hrund Skúladóttir og Jón Axel Guðmundsson voru á gamlársdag útnefnd íþróttafólk Grindavíkur árið 2019 við hátíðlega athöfn í Gjánni. Hrund Skúladóttir er lykilleikmaður með meistaraflokki kvenna í körfuknattleik. Á árinu átti hún stóran þátt í því að koma liðinu upp í Domino’s-deildina auk þess að vera lykilleikmaður með unglingaflokki. Hrund lék á árinu með U20 ára landsliði Íslands í Kosovó. Jón Axel Guðmundsson spilar með Davidson-háskólanum í Bandaríkjunum og er á sínu síðasta ári þar. Hann gaf á árinu kost á sér í nýliðaval NBA og var boðið á æfingar með Sacramento Kings og Utah Jazz. Jón Axel lék með íslenska landsliðinu á árinu og fékk mikið lof fyrir leik sinn. Nafnið hans er á á The Naismith Trophy Top 50 watch list sem er mjög mikill heiður. Allar deildir UMFG, Golfklúbbur Grindavíkur, Brimfaxi, GG og ÍG áttu kost á því að tilnefna íþróttamenn og íþrótta- konur úr sínum röðum. Kjörið fór þannig fram að valnefnd sem samanstendur af tíu einstaklingum, þ.e. aðalstjórn UMFG og frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar fær kjörseðla í hendur. Hver fulltrúi í valnefnd greiddi þremur konum og þremur körlum atkvæði sitt með þeim hætti að sá sem settur var í efsta sæti fékk tíu stig, sá sem settur var í annað sæti sjö stig og sá í þriðja sæti fimm stig. Allir tíu greiddu atkvæði og mest var því hægt að fá 100 stig. Frá verðlaunaafhendingunni. Guðmundur Bragason, faðir Jóns Axels, tók við verðlaununum fyrir hönd sonar síns. Hann er ekki óvanur að taka við þessari viðurkenningu en Guðmundur hefur sjálfur fjórum sinnum verið valinn Íþróttamaður Grindavíkur. Þrjár efstu í kjöri á íþróttakonu ársins 1. Hrund Skúladóttir, körfuknattleikur 83 stig 2. Sylvía Sól Magnúsdóttir, hesta íþróttir 65 stig 3. Guðný Eva Birgisdóttir, knattspyrna 50 stig Þrír efstu í kjöri á íþróttamanni ársins 1. Jón Axel Guðmundsson, körfuknattleikur 77 stig 2. Matthías Örn Friðriksson, pílukast 72 stig 3. Jóhann Dagur Bjarnason, hjólreiðar 25 stig Tilnefningar til íþróttamanns Grindavíkur 2019 Jóhann Dagur Bjarnason, hjólreiðar Jón Axel Guðmundsson, körfuknattleikur Jón Ásgeir Helgason, hestaíþróttir Jón Júlíus Karlsson, golf Marínó Axel Helgason, knattspyrna Matthías Örn Friðriksson, pílukast Róbert Örn Latkowski, júdó Tilnefningar til íþróttakonu Grindavíkur 2019 Guðný Eva Birgisdóttir, knattspyrna Hrund Skúladóttir, körfuknattleikur Svanhvít Helga Hammer, golf Sylvía Sól Magnúsdóttir, hestaíþróttir AUGLÝSINGASÍMI VÍKURFRÉTTA ER 421 0001 dagurinn fer í þetta. Maður er kominn heim um svona þrjú, fjögur og þá er hvíld og slökun. Ertu búinn að vera einn í Osló? Já, ég var einn í Osló og er enn. Ertu að hugsa eitthvað um menntun á meðan þú ert að þessu? Algjörlega. Ég var í fjarnámi þegar ég fór út fyrst og kláraði eitthvað þar. En síðan hef ég ekki verið nógu duglegur í því en ég hef verið að skoða þjálfun. Ég hef áhuga á að geta klárað það á meðan ég er úti. En maður getur alltaf gert meira. Þurfa menn að hugsa um þessa hlið? Ferillinn getur farið út um gluggann í einum leik ef menn meiðast. Jú og ég kynntist því þegar ég meiddist. Þá sér maður aðra hlið af lífinu. Það eru margir leikmenn sem eru með menntun eftir fótboltann og það er mjög mikilvægt. Tekur það mikið á taugarnar að vera meiddur lengi? Það gerir það, aðallega því maður getur ekki spilað fótboltann sem maður er vanur að gera alla daga. En að lokum þjálfar þetta hausinn og andlega þáttinn mikið þannig að það er margt sem þú lærir líka á bak við tjöldin. Hvað ertu að gera mikið í líkamsþjálfun og í andlega þættinum í dag? Þegar það er „Off Season“ vinn ég mikið með Gunnari Má sem ég hef alltaf gert. Hann sér algjörlega um það. Síðan hef ég líka verið hjá sálfræðingum, ekki vegna þess að það sé eitthvað að, líka vegna þess að það er bara gott fyrir mann að vera með einhvern til að tala við annan en fjölskylduna. Þú getur talað við hann um allt og séð lífið á annan hátt. Ég tel það mjög mikilvægt og það hefur hjálpað mér mjög mikið. Hvað með hluti eins og matarræði, hvað ertu að pæla mikið í því? Ég pæli mjög mikið í því þó ég fari ekki út í öfgar. Maður brennir náttúrlega rosa miklu á æfingum og í leikjum og það þarf að hugsa um mataræðið. En það er hugsað út í það líka fyrir okkur. Við erum með menn í vinnu hjá klúbbnum sem sjá um það. Við fáum matarprógrömm og það hefur hjálpað mikið. Það er mjög þægileg. Peningar eru stór þáttur í atvinnu- mennsku. Hvað hugsarðu mikið út í það? Að sjálfsögðu hefur það áhrif, peningar og þessi glans sem fólk tekur eftir. En fyrir mig snýst þetta um að spila fót- bolta. Auðvitað þarf maður að hugsa um að fá eitthvað út úr því til þess að geta lifað lífinu eins og annað fólk í vinnu. Ég vil geta spilað fótbolta eins lengi og ég get og verið heill. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Hitt kemur svo að sjálfu sér. Áttu kærustu? Ég á ekki kærustu eins og er, ekki enn. Aftur til Keflavíkur. Félagar þínir í Keflavík eru að æfa hérna á bak við þig. Við getum ekki sagt að það sé glæsileg staða í knattspyrnu í Keflavík né á Suðurnesjum. Það er ekkert lið í efstu deild, hvorki í karla né kvenna. Út af hverju er þessi staða? Maður veit náttúrlega aldrei ástæðuna fyrir því en það voru mikil kynslóða- skipti hjá strákunum í meistaraflokki. En svo gáfu þau út að þau ætli að byggja grunninn með unga leikmenn. Mér persónulega finnst það mjög fínt en að sjálfsögðu þarf líka reynsluríka leik- menn inn. Ég þekki strákana hérna og þeir eru mjög góðir. Mér lýst bara mjög vel á það hvað Keflavík er að gera núna og held þetta muni ganga vel. Eysteinn Hauksson og Siggi Raggi eru að gera mjög gott mót og Ómar Jóhannsson. Ég er bara jákvæður fyrir þessu. Það sama á við um stelpurnar með Hauk og Gunna. Þær voru náttúrlega í efstu deild síðasta sumar en því miður gekk það ekki. Þú hefur leikið gegn stórliðum. Hvernig var það? Það hefur verið árlegt hjá Vålerenga um mitt sumar, þegar þessi stóru lið eru á undirbúningstímabili, að við spiluðum á móti stórliðum; Real Madrid, Barce- lona og svo núna fyrir tveimur árum á móti Manchester United. Það var bara æðislegt, fjörutíu þúsund manns á vellinum og þeir með sitt besta lið. Það var mjög gaman að kljást við þá. Hvernig berðu þig saman við þá? Hversu mikið betri er Lukaku heldur en þú, eða öfugt? (VF birti mynd af Samúel að kljást við belgíska framherj- ann Lukaku hjá Manchester United) Ég myndi segja Pogba frekar því við erum báðir miðjumenn. Það er ekk- ert hægt að bera okkur saman. Hann er náttúrlega stórstjarna og búinn að vera lengi í þessu. Eina sem ég get sagt við því er að ég horfi á hann og læri af honum, reyni að gera eins vel og hann hefur gert. Það er bara partur af þessum stiga sem ég er að ganga. Er eitthvað eitt sem þú þarft að ná, sem þú ert ekki með í dag, til þess hreinlega að stórlið vilji kaupa þig? Hvað vantar þig í dag? Það er margt sem mig vantar. Ég get alltaf bætt mig enn meira. Það er ekkert eitthvað eitt sérstaklega. Þegar ég fer á aukaæfingar þá æfi ég það sem ég er bæði lélegur og góður í. Ég ætla að halda því áfram. Margir þurfa að fara lengri leið, sumir fara styttri leið. Það er bara eitthvað sem gerist, maður þarf bara að halda áfram að gera sitt besta og sjá hvað kemur á endanum. Eins og staðan er núna, 3. janúar, þá ertu með samning við Vålerenga en ert að tala við önnur lið. Það er líklegt að þú sért að fara einhvert annað? Það kemur í ljós. Glugginn var að opna núna og ég get ekki sagt margt um það en það eru alltaf einhverjar hreyfingar. Það verður bara spennandi að sjá hvað gerist. Hver er þín stærsta fyrirmynd í fót- boltanum eða uppáhaldsfótbolta- maður? Uppáhaldsleikmaðurinn minn hefur alltaf verið Ronaldinho. Hann er náttúr- lega hættur núna en hann hefur alltaf verið svona efst í minningunni. Hann er mín fyrirmynd. Annars eru fyrir- myndirnar mínar bara fjölskyldan mín. Þau hafa kennt mér margt ásamt öllum þeim sem ég lærði af hér í Keflavík, Jóhanni Birni, Gumma Steinars, Magga Þorsteins og öllum þessum strákum. Þeir hjálpuðu mér fyrstu skrefin í meistaraflokknum, Zoran og allir þeir hjá Keflavík. Ég á þeim margt að þakka. Ég er mjög stoltur af því. Heldurðu að þú eigir eftir að spila aftur með Keflavík? Það er góð spurning. Við sjáum hvað setur. Ég hef alltaf sagt það að ég ætli að enda ferilinn erlendis en maður veit aldrei hvað gerist. Annars eru fyrirmynd- irnar mínar bara fjöl- skyldan mín. Þau hafa kennt mér margt ásamt öllum þeim sem ég lærði af hér í Keflavík ... Samúel varð bikarmeistari með Víkingi í Noregi á síðustu leiktíð. Hér fagnar hann þeim áfanga. Samúel í baráttu við Lukaku, þáverandi leikmann Manchester United. 19 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 9. janúar 2020 // 2. tbl. // 41. árg. 18 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.