Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 2
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa  4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Rit- stjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Frétta- stjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Marta Eiríksdóttir, sími 857 8445, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theo- dórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtu- dögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift inn á öll heimili á Suðurnesjum. Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Afturganga olli usla á útnesjum Óveðurslægð sem kom með látum síðasta föstudag gekk aftur á sunnu- dagskvöld og olli talsverðum usla í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ. Sam- göngur fóru úr skorðum og þúsundir urðu strandaglópar. Afturgengnu óveðurslægðinni fylgdi talsverð snjókoma og mikill skafrenn- ingur. Reykjanesbraut lokaðist milli Þjóðbrautar í Reykjanesbæ og Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar. Þriggja kíló- metra bílalest myndaðist þegar ástandið varð blint í skafrenningi og bílar tóku að festast og aka út af. Fjöldi flugvéla lenti á Keflavíkurflugvelli þar sem farþegar þurftu að bíða klukkustundum saman eftir því að komast frá borði. Þá gátu aðrir farþegar ekki yfirgefið landið. Nokkrir höfðu fest sig á Reykjanes- brautinni í nágrenni flugstöðvarinnar og tóku þá röngu ákvörðun að ætla að reyna að ganga í hríðinni í flugstöðina til að ná flugi sem hafði verið aflýst vegna veðurs. Allar björgunarsveitir á Suðurnesjum voru kallaðar út til aðstoðar í veðrinu og fjöldahjálparstöð var opnuð í íþrótta- húsi Keflavíkur þar sem um 180 manns gistu aðfararnótt mánudags. Þar sem ógreiðfært var í Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) þurfti sjúkra- bíll frá Brunavörnum Suðurnesja að fara óhefðbundna leið þegar farþegi í flugstöðinni fékk hjartaáfall. Sjúkra- bíllinn fór í gegnum hlið á Ásbrú og þaðan var rudd leið eftir þjónustu- vegi að FLE. Starfsfólk í FLE notaði hjartastuðtæki og kom lífi í farþegann. Hann var svo fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur og fór snjóplógur á undan sjúkrabílnum til að tryggja að hann kæmist um Reykjanesbrautina sem var lokuð vegna bæði ófærðar og banaslyss sem varð við Straumsvík. Í Suðurnesjabæ var einnig mikil ófærð. Rúta með farþegum sem voru á listahátíðinni Ferskum vindum festist og leituðu farþegarnir skjóls í sam- komuhúsinu í Sandgerði. Víða í Sand- gerði voru mannhæðarháir skaflar eftir óveðrið og í Garði var líka þung færð. Veðrið setti svip sinn á listahátíðna Ferska vinda og þannig varð ekkert af lokaatriði hátíðarinnar þar sem kveikja átti í listaverki á Garðskaga. Þar blésu vindar upp á 26 m/s af norðaustan og hviðurnar voru gríðarsterkar þannig að alls ekki var stætt. Lentirðu í vandræðum í óveðrinu? Harpa Jóhannsdóttir: „Nei, ég hafði vit á því að vera heima hjá mér og prjóna. Ég fór ekki út í dag mánudag fyrr en búið var að skafa allar götur.“ Linda Kristín Pálsdóttir og Vignir Páll Sigfússon: „Ég var heima að hafa það kósí með börnunum. Við horfðum á myndir og vorum að leira. Í morgun þurfti ég að hjálpa dóttur minni sem sat pikkföst í bílnum sínum.“ Tony Kristinn Vantonder: „Bíllinn hans pabba festist í snjónum fyrir utan heima í morgun. Í gær komst ég ekki út vegna veðurs en mér finnst gott að fara út á hverjum degi og hafa val um það.“ Guðmundur Einarsson: „Nei, ég lá undir sæng í vonda veðrinu og fannst æðislegt að vera inni vegna þess, það er svo langt síðan síðasta vonda veður var. Í morgun lenti ég í því að hjálpa einum sem sat fastur í bílnum sínum. Ég get ekki neitað því að hafa gaman af vondu veðri þegar maður er öruggur.“ Samgöngur fóru úr skorðum á Reykjanesbrautinni ofan byggðarinnar í Reykjanesbæ. VF-mynd: Páll Ketilsson SPURNING VIKUNNAR Líkaði greinilega vel móttökur viðbragðsaðila í Reykjanesbæ „Í nótt var ekki rétti tíminn til að spyrja ferðalangana How do you like Iceland? en þeim líkaði greinilega vel móttökur viðbragðsaðila í Reykja- nesbæ,“ skrifaði Hannes Friðriksson, formaður Rauða krossins á Suður- nesjum, á fésbókina eftir að síðustu ferðamennirnir yfirgáfu íþróttahúsið í Keflavík á mánudagsmorgun. Um 180 ferðamenn gistu í fjöldahjálparstöð í íþróttahúsinu um nóttina vegna ófærðar og röskunar á samgöngum. Í færslunni þakkar hann bæjarstjóra Reykjanesbæjar, lögreglu, björgunar- sveitum, sjálfboðaliðum og starfsmönnum flugþjónustufyrirtækja fyrir sitt framlag „sem er jú grunnurinn að því að þrátt fyrir erfiða stöðu fara ferðalangarnir þokkalega ánægðir frá Reykjanesbæ,“ skrifar Hannes. Úr fjöldahjálparstöðinni í íþróttahúsinu í Keflavík á mánudagsmorgun. VF-mynd: Páll Ketilsson Nafn nýja áhugahópsins um örugga Reykjanesbraut, Stopp hingað og ekki lengra, hefur sjaldan átt betur við en núna í vikunni þegar Reykjanesbraut lokaðist á sama tíma á tveimur stöðum vegna óhappa í umferðinni þar sem einn maður lét lífið og þúsundir lentu í vand- ræðum og töfum. „Í gær gerðist allt sem við höfum undanfarið hræðst, rúmlega 10.000 manns urðu innlyksa vegna lokunar Reykjanesbrautar. Engin virðist hafa áhuga og allir aðilar málsins benda hver á annan. Í gær varð hræðilegt banaslys vegna framanáaksturs á hættulegasta vegakafla landsins frá Hvassahrauni til Krísuvíkurafleggjara. Hversu mörg banaslys verða þangað til einhver ráðamaður vaknar, tekur raunverulegar ákvarðanir og lætur verkin tala?,“ skrifar Guðbergur Reynisson, einn af talsmönnum „Stopp hingað og ekki lengra“, bar- áttuhóps um aukið umferðaröryggi á Reykjanesbraut. Það er óþægilegt og erfitt að horfa upp á þessa döpru stöðu árið 2020, að það sem gerðist þarna geti gerst, og muni líklega gerast, aftur. Á þessum tveimur vegaköflum er beðið eftir tvöföldun og henni hefur verið seinkað um nokkur ár þó svo þrýstingur á ráðamenn og Alþingi hafi verið mikill. Það vita allir að þetta banaslys, og þessi óhöpp og lokun á brautinni, hefði aldrei komið til ef þessir vegakaflar væru tvöfaldir en það hefur sýnt sig þar sem Reykjanes- brautin er tvöföld. Þar er fólk nánast öruggt – þó svo það sé kannski ekki hægt að segja að neinn sé öruggur neins staðar. Árið 2000 fengu Suðurnesjamenn nóg og hreinlega lokuðu Reykjanes- brautinni við þáverandi Grindavíkuraf- leggjara. Héldu síðan eitt þúsund manna borgarafund þar sem ástand- inu var mótmælt. Áhugahópur um örugga Reykjanesbraut var stofnaður og hann hélt uppi þrýstingi á stjórn- völd sem hafði þau áhrif að ákveðið var að fara í tvöföldun Reykjanes- brautar. Var hún síðan tvöfölduð í tveimur lotum á nokkrum árum frá Hafnarfirði að Fitjum. Það er deginum ljósara að þrýstingur fólks í þessu máli hafði langmest áhrif því þingmenn og ráðamenn höfðu rætt um að það þyrfti að tvöfalda brautina í mörg ár, án árangurs. Lokun brautarinnar er ekki raunhæf í dag. Staðan er einfaldlega miklu flóknari og því þarf að finna aðrar leiðir til að koma þessu máli í gegn. Með góðu eða illu. Hvað hefði t.d. gerst ef rúta hefði oltið á sama tíma með 50 manns. Hvernig hefði því fólki verið komið á sjúkrahús og bráðamótttöku í Reykja- vík þegar brautin er lokuð vegna um- ferðarslyss og ófærðar? Hvar hefðu sjúkrabílar átt að fara? Ekki hefði verið hægt að taka við nema hluta hópsins á Heilbrigðistofnun Suðurnesja og ekki væri hægt að nota lokaðar skurð- stofur þar. Þetta mál varðar ekki bara Suður- nesjamenn. Það eiga allir undir í þessu máli. Við erum að taka á móti milljónum ferðamanna og þurfum að gera okkur betur grein fyrir því. Þegar þessi vandræði komu upp í óveðr- inu í vikunni sáum við samtakamátt Suðurnesjamanna þegar sett var upp í snarhasti stærsta fjöldahjálparstöð í íþróttahúsi Keflavíkur og það hefur ekki gerst síðan í Vestmannaeyja- gosinu. Starfsmenn Rauða krossins, Icelandair, björgunarsveitarfólk og fleiri lögðu hönd á plóginn svo hægt væri að hýsa fólkið sem komst ekki í flug sem það átti pantað. Það eru til leiðir til að leysa þennan vanda sem er stór eins og kom ber- lega í ljós í þessu óveðri. Við munum áfram fá óveður og þess vegna þarf að gera eitthvað róttækt og koma þessum samgöngubótum í gegn – ekki seinna en strax! Um það eru allir sammála nema kannski þingheimur Íslands sem hefur tafið þetta mál. Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta. Stopp hingað og ekki lengra. Það er komið nóg! 2 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.