Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 14
Tími breytinga Um leið og ég óska öllum gleðilegs árs og þakka kærlega fyrir þau liðnu þá staldra ég við í janúarbyrjun, lít yfir nýliðið ár og þá vakna vonir um árið sem framundan er. Árið 2020 verður ár gagnsæis og aðdrag- anda umfangsmikilla kerfisbreytinga sem eru löngu timabærar. Stjórnmálamenn svara loksins ákalli almennings um breyt- ingar á auðlindaákvæðum stjórnarskrár, auðlindastjórnun þjóðarinnar og þá sér- staklega löngu tímabærum breytingum á fiskveiðistjórnun þjóðarinnar. Það er augljóst að úthlutun aflaheim- ilda verður að breytast. Aflaheimildir eiga að vera tímabundnar, aðgengi- legar fleirum og greitt fullt verð fyrir þær til eigandans. Við erum eigandinn, almenningur í þessu landi. Nú eru afla- heimildir varanlegar og greiddir smá- peningar fyrir, farið með þær eins og hverja aðra fasteign, veðsettar og ganga í erfðir. Enda hefur erfðafjárskattur verið lækkaður svo handhöfum kvótans reynist auðveldara að koma auðlind þjóðar- innar til eigin erfingja. Þetta verður að lagfæra og þjóðin á heimtingu á að ráðstafa fiskveiðiheimildum sínum í stað fámennrar stórútgerðastéttar sem sölsað hefur undir sig verðmætustu auð- lind þjóðarinnar. Allur fiskur á að fara á markað svo verðmyndun á fiski sé gagnsæ og trúverðug. Það myndi einnig rjúfa virðiskeðju fákeppninnar, þennan möguleika útgerðarvinnsla til að flytja út gróðann af sjávarútveginum og taka hann út erlendis. Þann möguleika þarf að útiloka til að meðferð auðlindarinnar sé hafin yfir allan vafa og arður af henni skili sér til sem flestra byggða. Það er ekki skrýtið að landsmenn séu tortryggnir þegar fáir útvaldir maka krókinn á kostnað ríkisins, fjármála- og skattakerfið er notað til undanskota í skatta- skjól án þess að nokkuð sé að gert, á sama tíma og öryrkjar og eldri borgarar lepja dauðann úr skel og heil- brigðis-, samgöngu- og menntakerfið svelt. Og endalaust eru haldnar ræður um ríkidæmi Íslendinga, meðaltalsvel- megun og heppni okkar í samanburði við aðrar þjóðir. Augun virðast lokuð fyrir þeirri skyldu yfirvalda að sjá öllum, ekki sumum, öllum fyrir grunnframfærslu og þjónustu. Þó gert sé endalaust grín að löngum umræðum um Orkupakka  III, þá kristallaðist óánægja þjóðarinnar og þó aðallega óöryggi með ráðstöfun og eignarhald á orkuauðlindum þjóðar- innar í þeim umræðum. Hvort sem orku- pakkinn sjálfur snerist um eignarhald á auðlind eða ekki, þá skiptir það í sjálfu sér ekki höfuðmáli. Umræðan sjálf sýndi fram á nauðsyn þjóðarsáttar í stjórnar- skrá um fyrirkomulag auðlindamála. Orkumál þurfa að vera hafin yfir alla tortryggni. Eina leiðin til að löggjafinn og fram- kvæmdavaldið geti unnið sér inn traust almennings, er að tryggja að öll gögn og upplýsingar séu á reiðum höndum og að hagsmunatengsl séu alltaf túlkuð almenningi í vil, ekki viðkomandi ein- staklingi. Allar embættisfærslur verða um leið betur rökstuddar, rekjanlegar og hafnar yfir grun um misbeitingu valds og geðþóttaákvarðanir. Gagnsæið er enn- fremur ein öflugasta leiðin til að koma í veg fyrir spillingu. Til að lýðræðið virki þurfum við að hafa áreiðan- legar upplýsingar og gögn á reiðum höndum. Traust kjósenda byggir á að öll stjórnsýsla sé hafin yfir allan vafa. Landsréttarmálið, Sam- herjamálið og fleiri mál sem skekið hafa samfélagið á liðnu ári sýna svo ekki verður um villst að gagnsæi vinnur gegn spillingu, stuðlar að upp- lýstri umræðu, vekur öryggi almennings um að verið sé að vinna í okkar þágu og að vönduð ákvarðanataka sé í hávegum höfð. Leyndarhyggjan þýðir ekki endi- lega að verið sé að brjóta lög – en vekur tortryggni sem þarf að fyrirbyggja. Ég held að kjósendur séu að vakna til vitundar um þessi mál og komi okkur Pí- rötum til hjálpar með að hrinda þessum nauðsynlegu umbótum í framkvæmd með nýrri stjórnarskrá, nýju verklagi og nýjum kerfum tengdum atvinnuvegum og velferð. Það er ekki nóg að stagbæta úrelt kerfi erfðaveldisins. Hefjum stjórn- málin yfir tortryggni, einblínum á vel- sældarhagkerfi fyrir alla, í stað meðal- talsvelmegunar peningahagkerfis sem vinnur að hag örfárra. Búum til samfélag sem við getum öll verið stolt af. Álfheiður Eymarsdóttir, varaþingmaður Pírata í Suðurkjördæmi. Ellen Lind íþróttamaður Voga – Aron fékk hvatningarverðlaunin Ellen Lind Ísaksdóttir var útnefndur íþróttamaður ársins og Aron Kristinsson fékk hvatningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga á Vatnsleysuströnd. Verðlaun voru afhent á gamlársdag. Ellen Lind er handhafi tit- ilsins sterkasta kona Íslands árið 2019 og tók að auki þátt í öðrum mótum á síðastliðnu ári með góðum árangri. Hún segist vera rétt að byrja. Að auki kom fram í rökstuðningi með tilnefningu að Ellen er sönn fyrirmynd í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur, gríðarlega framtakssöm og dugleg. Einnig er hún lítillát og kurteis í framkomu, hjálpsöm og hlý við alla sem hún umgengst. Hvatningarverðlaun sveitarfélags- ins hlaut að þessu sinni Aron Krist- insson. Aron er tólf ára og hefur æft dans síðustu þrjú ár í Danskompaní. Hann æfir djassballett, nútímadans, hip-hop, klassískan ballett og leiklist ásamt því að vera í ýmsum liðleika- og tæknitímum. Aron er mjög metnaðar- fullur, leggur sig alltaf allan fram, tekur dansæfingar fram yfir allt annað og þykir mjög efnilegur dansari, segir á heimasíðu Voga. Ellen og Aron ásamt formanni frístunda- og menningarnefndar og íþrótta- og tómstundafulltrúa. Langar þig að vera rekstrarstjóri fimleikadeildar Keflavíkur? Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir að ráða rekstrarstjóra til að annast daglegan rekstur félagsins. Hlutastarf kemur til greina. Í fimleikadeildinni eru um 400 iðkendur á aldrinum 2–18 ára. Mikil uppbygging hefur verið í starfi deildarinnar og leitar stjórn nú að metnaðarfullum einstakl- ingi sem hefur brennandi áhuga á því að leiða deildina og taka þátt í krefjandi og skemmtilegum verkefnum framundan. Starfssvið • Daglegur rekstur félagsins • Fjármála- og starfsmannastjórnun • Undirbúningur og framkvæmd ýmissa viðburða á vegum félagsins • Samskipti við félagsmenn, foreldra og iðkendur • Önnur tilfallandi verkefni Hæfniskröfur • Þekking og reynsla af rekstri • Góðir skipulags- og stjórnunar- hæfileikar • Hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika til þess að vinna með öðrum • Drifkraftur og frumkvæði Við bjóðum • Áhugavert starf hjá góðu íþrótta- félagi • Stjórn sem fundar með rekstrar- stjóra einu sinni í mánuði Umsóknir skal senda á tölvupóstfangið fimleikar@keflavik.is fyrir 15. febrúar 2020 og nánari upplýsingar veitir María Jóna Jónsdóttir, stjórnarkona fimleika- deildar Keflavíkur í gegnum sama netfang. Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is Vantar þig heyrnartæki? Opn S eru ný tegund heyrnartækja frá Oticon sem hjálpa þér að heyra margfalt betur í fjölmenni og klið. Þú getur fengið Opn S með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Árni Hafstað heyrnarfræðingur verður í Reykjanesbæ í janúar. Reykjanesbær 29. janúar 2020 Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Þroskaþjálfi eða iðjuþjálfi óskast Stapaskóli Reykjanesbæ leitar að áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi í 100% starf þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa. Stapaskóli er heildstæður skóli fyrir börn á aldrinum 2 - 16 ára sem er að rísa í Dalshverfi í Reykjanesbæ. Fjöldi nemenda við fullsetinn skóla er um 500 á grunnskólaaldri og 120 á leikskólaaldri. Í skólastarfi verður sérstök áhersla á sköpun og listir, verklegt nám og tækninám. Í Stapaskóla fer fram metnaðarfullt skólastarf þar sem gleði, vinátta, samvinna og virðing eru þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi. Helstu verkefni og ábyrgð • Ábyrgð á umgjörð náms- og einstaklingsáætlunar í samvinnu við stjórnendur • Ábyrgð á kennslu, þjálfun og umönnun nemenda • Þátttaka í þverfaglegu teymi fagaðila og annarra sem koma að hverjum nemanda • Ábyrgð á markvissum samskiptum við foreldra og aðra fagaðila • Að taka þátt í öðum verkefnum innan skólans eftir þörfum Menntunar- og hæfniskröfur • Leyfisbréf sem iðjuþjálfi eða þroskaþjálfi • Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi • Reynsla af skipulagi og teymisstjórnun • Áhersla er lögð á lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum • Stundvísi og samviskusemi • Góð íslenskukunnátta Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Iðjuþjálfafélags Íslands eða Þroskaþjálfafélags Íslands. Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar veitir Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla í síma 420-1600/824-1069 eða á netfangið, groa.axelsdottir@stapaskoli.is Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is undir Laus störf. 14 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.