Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir Mundi S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m Samfélagsmiðlar fyrr og nú Fjórða iðnbyltingin er á leiðinni. Þær virðast koma í hrönnum þessar iðn- byltingar. Mér finnst eins og sú þriðja hafi bara komið í gær. Tækninni fleygir fram á ógnarhraða og miðaldra manneskja þarf að hafa sig alla við til að vera „up to date“ þótt sumum finnist þetta gerast allt of hægt. Okkur fullorðna fólkinu finnst líka oft nóg um hraðann í þróun samfélagsmiðla og með hvaða hætti samskipti eru að þróast og hafa þróast undanfarin ár. Erum við að missa hæfileikann til að tala saman í eigin persónu? Erum við líka hætt að lesa? Er prentað mál og bækur að deyja drottni sínum? Við þekkjum öll hvernig yngra fólkið hagar sínum samskiptum í dag, hvernig samskipti fara eingöngu fram í gegnum Messenger, Instagram, Snapchat, Whats app, Twitter, SMS og Wechat svo eitthvað sé nefnt. Börnin okkar eyða sífellt meiri tíma í síma og tölvu svo sumum finnst nóg um. Mörgum finnst þetta eflaust farið að líkjast þrá- hyggju að þurfa endalaust að vera að fylgjast með lífi annars fólks. En er þessi þráhyggja alveg ný af nálinni? Ég hlustaði á áhugavert viðtal við Berg Ebba Benediktsson lögfræðing, rithöfund og uppistandara í byrjun nýs árs. Þar var hann að tala um tækni- framfarir, snjallsímavæðingu, fjórðu iðnbyltinguna o.fl. Bergur Ebbi hefur skrifað mikið um áhrif tækniframfara á samskipti og tækniframfarir almennt og gaf einmitt út bókina Skjáskot síð- astliðið haust. Það sem vakti áhuga minn í þessu viðtali við Berg Ebba var þegar hann fór yfir og lýsti því hvernig ömmur okkar og afar og foreldrar okkar voru þegar við vorum að alast upp. Þá voru að sjálfsögðu engir snjallsímar til, engar tölvur og ekkert sjónvarp á fimmtudögum og í júlí. Hins vegar voru allir fréttatímar þá heilagir, öll dagblöð lesin upp til agna og útvarpshlustun sömuleiðis ansi heilög. Hver man ekki eftir að vera sussaður til þagnar þegar útvarpsfréttir eða veðurfréttir voru að hefjast? Í dag er öldin önnur, við lesum jú ennþá blöðin en umræðan undanfarin ár hefur verið í þá átt að prentið sé að deyja. Þó að bóksala hafi dregist saman um 36% undanfarin tíu ár þá er þó langur vegur frá því að prentið sé á útleið. Önnur form fyrir ritað mál hafa rutt sér til rúms og fólk notar lesbretti eins og Kindle og iPad til lestrar í æ frekari mæli og sprenging hefur orðið í hlustun á hljóðbækur og hlaðvörp (e. podcasts). Tímarnir breytast og mennirnir með. Tæknin þróast og fleygir fram hraðar nú en nokkru sinni. Þrátt fyrir það þá höfum við mannfólkið alltaf verið for- vitin um fréttir, fréttir af veðri og fréttir af náunganum. Það var líka þannig í gamla daga. Upplýsingarnar komu bara til okkar eftir öðrum leiðum. LOKAORÐ Ingu Birnu Ragnarsdóttur Er ekki nóg af karlskörfum í Keflavík? VW Toureg árg. 2005, ekinn 93 þús. km Verð 870.000 kr. Toppeintak Bens GLK 220 árg. 2012, ekinn 125 þús. km Verð 2.950.000 kr. Toppeintak Ford Transit Bus árg. 2008, ekinn 278 þús. Verð 590.000 kr. LÆKKAÐ VERÐ Nizzan Xtrail árg. 2005, ekinn 125 þús. Verð 390.000 kr. LÆKKAÐ VERÐ Toyota Yaris árg. 2016, ekinn 132 þús. Verð 740.000 kr. LÆKKAÐ VERÐ við gamla aðalhliðið á Ásbrú Sími 421 5444 Vantar þig sendibíl? sendibillinn.is Skarfar í skjóli Brimið lamdi klettaströndina neðan við Bakkastíg í Reykjanesbæ í vikunni. Dílaskarfar í hundruðavís leituðu á sama tíma skjóls við Keflavíkurhöfn. Þar röðuðu þeir sér á bryggjukanta og -polla. Stórir hópar voru einnig í sjónum innan hafnarinnar. Skarfarnir kipptu sér lítið upp við nærveru ljósmyndarans en það er ekki algeng sjón að sjá svona fjölda af skarfi í höfninni. VF-mynd: pket

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.