Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 16.01.2020, Blaðsíða 15
Fimleikaþjálfari óskast Fimleikadeild Keflavíkur óskar eftir að ráða fim- leikaþjálfara til starfa. Í fimleikadeildinni eru um 400 iðkendur á aldr- inum 2–18 ára. Mikil uppbygging hefur verið í starfi deildarinnar og leitum við nú að öflugum þjálfara til að taka þátt í krefjandi og skemmti- legum verkefnum framundan. Leitað er að þjálfara í fullt starf og til að þjálfa alla aldurshópa. Gerð er krafa um að viðkomandi hafi góða þekkingu og reynslu af þjálfun fimleika og reynslu af því að starfa með börnum. Deildin auglýsir eftir reynslumiklum þjálfara. Mikilvægt er að viðkomandi sé jákvæður, metnaðarfullur og hafi góða samskiptahæfi- leika. Tali viðkomandi ekki íslensku er gerð krafa um íslenskunám á vegum félagsins með vinnu Umsóknir skal senda á fimleikar@keflavik.is fyrir 15. febrúar næstkomandi ásamt ferilskrá. Nánari upplýsingar veitir María Jóna Jónsdóttir stjórnarkona fimleikadeildar Keflavíkur í sama netfangi. Gymnastic Coach Keflavik Gymnastics Club in Iceland is looking for an gymnastics coach in its Gymnastics department. In the Club there are about 400 practitioners aged 2–18 years. Extensive work has been done in the Club over the last years and we are now looking for a powerful coach to take part in challenging projects ahead. The Club is looking for a full-time coach and for all levels. Applicants must have a good knowledge and experience of training gymnastics and the ex- perience of working with children. The department seeks to hire an experienced coach. It is important that the person is posi- tive, ambitious and has good communication skills. If the person in question does not speak Icelandic, a requirement is made for Icelandic studies on behalf of the company with work. Applications should be sent to fimleikadeild@ keflavik.is before February 15th and include information on education, working experience and coaching experience, as well as references. Further information will be provided by María Jóna Jónsdóttir, fimleikar@keflavik.is Er nýja heimilið þitt á Ásbrú kannski hjá okkur? Skoðaðu lausar leigueignir á heimavellir.is vf isÞú finnur allar nýjustu fréttirnar frá Suðurnesjum á Magnús Orri íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2019 Fimleikamaðurinn Magnús Orri Arnarsson var valinn íþróttamaður ársins í Suðurnesjabæ. Útnefningin fór fram þann 14. janúar við hátíðlega athöfn í Gerðaskóla. Magnús Orri keppti á árinu á heimsleikum Special Olympics í Abu Dhabi og stóð sig frábærlega. Íþrótta- og tómstundaráð bæjarins veitti Sigurði Ingvarssyni einnig viðurkenningu fyrir óeigin- gjarnt starf að íþrótta- og æskulýðs- málum í Suðurnesjabæ. Við tilefnið var landlækni, Ölmu Möller, boðið í heimsókn og undirrituðu hún og Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, samning um að Suðurnesjabær gerist Heilsueflandi samfélag. Garðmaðurinn Sigurður Ingvarsson fékk viðurkenningu fyrir óeigingjarnt starf að íþróttum og æskulýðsmálum. Skrifað var undir samning Landlæknis og Suðurnesjabæjar um Heilsueflandi samfélag. Magnús Orri, Íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2019. VF-myndir: Hilmar Bragi 15 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 16. janúar 2020 // 3. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.