Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 23.01.2020, Qupperneq 13
„Hann er í hjartastoppi!“ Ég horfði þá á Brynjar sem var dáinn. Inn kemur fullt af starfsfólki, læknar og hjúkrunarfólk og ég fór fram. Mér bregður náttúrlega og fer að hugsa um allt sem gæti gerst ef hann myndi deyja, hvað það yrði sorg- legt fyrir okkur fjölskylduna, strákana, mig og alla. Ég fór á fullt í huganum. En það var samt svo skrýtið að inni í mér, var ég alveg róleg og beið frammi þegar starfsfólk kom hlaupandi til að fara inn á stofuna og bjarga Brynjari. Ég vissi að hann kæmi til baka.“ En Brynjar hvað var að gerast hjá þér á þessari stundu? Hvítklætt fólk með hvít andlit „Á meðan á öllu þessu stóð þarna inni á stofunni þá fékk ég mjög djúpt há- tíðnihljóð inn í mig, hljóð sem ég hef aldrei heyrt áður og get ekki útskýrt. Ég finn að ég er farinn og kominn annað. Ég vissi að ég var dáinn en það hef ég áður upplifað nokkrum sinnum en alltaf komið til baka. Ég var kominn inn í sal þar sem fullt af fólki sat við sporöskjulagað borð og var að skoða framtíðina, ræða hvar þyrfti að bregðast við næst til að koma í veg fyrir alvar- lega atburði. Mér fannst ég vita hvaða fólk þetta var en samt sá ég ekki and- lit þeirra, þau voru með hvítt andlit og hvítklædd. Samskiptin voru ekki með orðum heldur á huglægu sviði. Ég sit við þetta borð og finn fyrir orku fólksins. Svo fannst mér kona við hlið mér spyrja mig: „Brynjar, hvað ert þú að gera hér?“ og rétt áður en hún spyr mig að þessu var ég sjálfur að hugsa, já svona sjáum við þegar við höfum engin augu, svona tala ég án þess að anda. Svo segir þessi vera aftur við mig: „Þinn tími er ekki kominn.“ Þarna voru íslenskar setningar notaðar fannst mér og ég skildi allt. Um leið og hún segir þetta við mig þá fer ég í gegnum enda- lausa birtu, opna augun og sé að skurð- læknirinn er mættur á svæðið. „Hvar er Svana?,“ spyr ég og vildi fá hana til mín. Læknar mínir sögðu mér að ég hafi verið farinn í tvær mínútur en þeir gáfust ekki upp og héldu áfram að hnoða mig þar til ég kom inn aftur. Mér fannst verst þegar ég kom til baka að sjá ekki Svönu við hlið starfsfólksins en svo kom hún inn til mín. Í fram- haldi af þessum atburði var ákveðið að setja í mig gangráð því hjarta mitt slær of hægt ef það fær enga hjálp en það hefur alltaf verið svoleiðis. Í kjöl- farið fékk ég blóðtappa og er einnig á blóðþynningu. Ég hafði stundum dottið út áður en rannsóknir þá leiddu í ljós og talað var um að ég væri með hjarta eins og Björn Borg, íþróttamannshjarta. Þegar það gerðist áður að ég datt út, þá sá Svana um að kippa mér inn aftur en nú sér gangráðurinn um að halda hjartanu mínu við efnið og fyrir það er ég mjög þakklátur.“ Auðmýkt gagnvart lífinu Það hlýtur að vera mikill skóli fyrir mann eins og Brynjar að lenda í þess- ari lífsreynslu, maður sem hefur alltaf staðið sterkur og hvatt aðra áfram til að gera sitt besta. Fólk á ekki von á því að svona sterkar manneskjur lendi í þessu. Þarna kippir lífið fótunum undan Brynjari sem þarf að læra að lifa á annan hátt, eða hvað? „Maður verður að vera auðmjúkur gagnvart því sem gerðist. Þetta bjargaði lífi mínu og að vera með gangráð heldur mér frískum. Ég hef ekkert breyst nema að í dag ber ég meiri virðingu fyrir mörkum mínum, er búinn að hægja aðeins á mér og er enn að læra það. Í sumar var ég í tíu tíma úti í garði að atast í fallega veðrinu og þá kom sonur minn til mín og sagði að ég þyrfti nú ekki að taka þetta alveg í botn. En svona hefur maður alltaf verið, gert allt hundrað prósent. Það er þetta stolt en aldurinn er líka farinn að segja til sín og það þarf að virða. Nú er að læra að gera hlutina öðruvísi. Ég er þakklátur fyrir þessa reynslu og auðmjúkur. Ég hef alltaf haft samkennd með fólki en þetta kennir mér að við þurfum öll að bera ábyrgð á eigin lífi, það er í hendi okkar hvernig við viljum leyfa lífi okkar að þróast. Ég hef alltaf verið hreinn og beinn, talað hreint út, það hefur ekkert breyst en ég er einnig æðru- laus og dæmi ekki fólk sem kemur til mín. Það hafa allir sín verkefni til að fara í gegnum í lífinu, það fá allir sinn pakka. Við Svana björgum engum, fólk verður alltaf að taka ábyrgð á sjálfu sér og heilsu sinni að lokum, þó við getum hjálpað og leitt það í gegnum hindranir og þær áskoranir sem fólk tekst á við. Lærðu að tala við sjálfan þig, hlusta á sjálfan þig og skilja sjálfan þig, þannig ertu tilbúinn að takast á við lífið. Þeir segja mér læknarnir að ef ég hefði ekki verið í svona góðu líkamlegu standi þá hefði ég dáið þar og þá. Ég hef alltaf verið heilbrigður og er það ennþá, en núna er ég öðruvísi heilbrigður. Ég var með undirliggjandi hjartasjúkdóm sem kom fram fyrir fjórum árum. Mér finnst ég ótrúlega heppinn í dag að hafa farið í gegnum þetta og einnig upplifað það sem ég sá þegar ég dó. Það vakti ugg í mér fyrst á eftir en í dag líður mér betur með þetta allt saman og finn að ég er sterkari. Ég hef alltaf verið harður við sjálfan mig og þarf kannski að læra að vera mildari við mig sjálfan, það er lærdómurinn,“ segir Brynjar og brosir þessu óræða brosi sínu. Svana segist einnig vera þakklát í dag og finnst gott að allt fór vel með Brynjar en þessi hjón hafa ekki aðeins fengið þetta verkefni í lífinu. Erfiðara að sjá son minn veikan Árið 2006 varð yngri sonur þeirra al- varlega veikur af krabbameini. Á þeim tíma héldu margir bæjarbúar Grinda- víkur því fram að stóru möstrin í útjaðri bæjarins væru að geisla óæskilegum bylgjum yfir bæjarfélagið, því margir af yngri kynslóðinni voru að veikjast af krabbameini. Fólk krafðist skýringa og mælinga af hálfu Geislavarna ríkisins sem mældu á sinn hátt og sögðu ekkert óeðlilegt við þessi möstur sem standa enn og hefur m.a.s. fjölgað eftir að her- inn hætti þar starfsemi því nú hafa íslensk fjarskiptafyrirtæki sett upp fleiri möstur á þessum sama stað. Kannski hefur geislunin aukist ef eitthvað er. „Mér finnst þessi skóli sem ég fór í gegnum ekkert eins og að horfa á barnið mitt veikt. Það var erfiður tími og tók verulega á. Maður vill allt gera fyrir barnið sitt. Í dag er sonur okkar heill heilsu og kallaður kraftaverkabarnið því honum var ekki hugað líf. Við Svana gáfumst aldrei upp á að hjálpa honum ásamt læknunum, við gerðum allt sem við kunnum og þeir gerðu sitt. Fyrir það erum við mjög þakklát,“ segir Brynjar að lokum. Nú er að læra að gera hlutina öðruvísi. Ég er þakklátur fyrir þessa reynslu og auðmjúkur. Ég hef alltaf haft samkennd með fólki en þetta kennir mér að við þurfum öll að bera ábyrgð á eigin lífi ... Ævntýraþráin leiddi þau Svönu og Brynjar til Svíþjóðar í nám í heilsufræðum. Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki sem hóf starfsemi árið 1997. Fyrirtækið er með starfstöðvar á Keflavíkurflugvelli og þjónustar um 20 flugfélög. Starfsemin felur í sér alla alhliða þjónustu við flugfélög, allt frá hleðslu/afhleðslu farms, innritun farþega í flugstöð Leifs Eiríkssonar, hleðslu eftirlit, fraktafgreiðslu og ræstingu og öryggisleit í flugvélum. Meðal viðskiptavina eru British Airways, easyJet, Wizz air, Delta Airlines, American Airlines, Air Canada, Norwegian, Transavia, Neos, S7, Jet2, Vueling, Thomson Airways, Air Baltic, EuroWings, Bluebird Nordic og DHL. Fjármálastjóri Airport Associates leitar að öflugum einstaklingi í starf fjármálastjóra félagsins. Fjármálastjóri er hluti af öflugu framkvæmda– og skrifstofuteymi fyrirtækisins. Fjármálastjóri fer með umsjón með fjármálum félagsins, skipulag fjármála, ábyrgð á uppgjöri og áætlanagerð, áhættumat fjárfestinga, fjárstýringu og hámörkun fjármuna félagins. Helstu verkefni: • Dagleg stjórnun fjármála • Áætlanagerð og kostnaðareftilit • Greiningar og skýrslugerð • Sjóðsstýring og ávöxtun fjármuna • Ábyrgð á uppgjöri • Aðkoma og eftirlit viðskiptasamninga • Samskipti og umsjón upplýsingatæknimála fyrirtækisins • Útgreiðsla launa Hæfniskröfur: • Háskólapróf á sviði fjármála eða viðskipta sem nýtist í starfi skilyrði • Þekking, reynsla og færni í daglegri stjórnun fjármála • Framúrskarandi reynsla í Excel og Navison sem og önnur almenn tölvukunnátta • Reynsla og færni á sviði stjórnunar skilyrði • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð • Jákvætt viðhorf, þjónustulipurð og mikil samvinnuhæfni • Góð íslensku og enskukunnátta Umsóknafrestur er til og með 9. febrúar 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórey Jónsdóttir Mannauðsstjóri, thorey@airportassociates.com eða í síma 420 – 0703. 13 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR fimmtudagur 23. janúar 2020 // 4. tbl. // 41. árg. 12 // VÍKURFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Í 40 ÁR

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.