Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.01.2020, Side 24

Víkurfréttir - 23.01.2020, Side 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir Mundi S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m Á laugardaginn var skemmti ég mér með 700 öðrum Keflvíkingum á enn einu frábæru þorrablóti. Þeir sem hafa veg og vanda að þessu blóti eiga mikinn heiður skilinn. Körfuknattleiksdeild Keflavíkur og knattspyrnudeildin ákváðu fyrir nokkrum árum að sameina krafta sína í að halda alvöru þorrablót. Það byrjaði ekkert rosalega vel. Nánast þurfti að gefa síðustu miðana til að ná 300 manns í húsið. Núna komast færri að en vilja. Þrátt fyrir góða skemmtun og enn betra eftirpartí var leiðin heim ekki sú skemmtilegasta. Alvöru umhleyp- ingar, hífandi rok og grenjandi rigning. Reykjanesbrautin er ekkert grín í svona veðri. Hjólförin sem ná alla leið til Reykjavíkur eru full af vatni. Eins og að keyra eftir árfarvegi. Nokkrum dögum fyrir blótið fékk ég að slást í för með „Stopp – hingað og ekki lengra“-hópnum á fund hjá Vega- gerðinni. Tilgangur fundarins var að fá að vita hvort rétt væri að Hafnarfjarðar- bær drægi lappirnar í skipulagsmálum vegna Reykjanesbrautarinnar. Sú var ekki alveg raunin. Málið snýst í grunn- inn um hver eigi að bera kostnaðinn af því að færa Reykjanesbrautina í nýtt vegstæði. Í nýja vegstæðinu þarf að byggja fjórar akreinar en í því gamla bara tvær. Kostnaðarmunurinn er tveir milljarðar. Við berum jú virðingu fyrir því að reynt sé að fara vel með skatt- peningana okkar en hvers virði er mannslíf? Á sama tíma og við höfum beðið í nítján ár eftir efndum loforða þingmanna um tvöföldun Reykjanesbrautar hafa verið byggð og tekin í notkun Bol- ungarvíkurgöng, Héðinsfjarðargöng, Vaðlaheiðargöng, Norðfjarðargöng, Fá- skrúðsfjarðargöng og Almannaskarðs- göng. Heildarkostnaður við þessi göng eru litlir 60 milljarðar og umferðin í gegnum þau einn fjórði af því sem fer um Reykjanesbrautina á hverjum degi. Kostnaðaráætlun frá árinu 2016 gerði ráð fyrir því að tvöföldun frá Hvassa- hrauni að kirkjugarðinum í Hafnarfirði kostaði 6,3 milljarða. Fjóra til viðbótar myndi kosta að tvöfalda alla leið upp að flugstöð. Á Alþingi sitja tíu þingmenn Suðurkjör- dæmis: Páll Magnússon, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Ari Trausti Guðmundsson, Oddný Harðardóttir, Silja Dögg Gunnars- dóttir, Karl Gauti Hjaltason, Vilhjálmur Árnason og Smári McCarthy. Þau sitja á þingi í krafti 29.000 atkvæða sem greidd voru í Suðurkjördæmi í kosning- unum 2017. Á kjörskrá í Reykjanesbæ, Grindavík, Suðurnesjabæ og Vogum eru um 17.000 manns – jafn margir og slegist hafa í Stopp-hópinn á Facebook. Það vill svo vel til að nú eru tæplega átján mánuðir í kosningar. Í haust þurfa þingmenn sama hvaða flokki þeir tllheyra að leita umboðs kjósenda til að fá vinnu næstu fjögur árin. Það er tími til kominn að Suðurnesjamenn standi saman og segi einum rómi. Stopp – hingað og ekki lengra! Það gengur ekki að okkur sé gert að bíða til ársins 2030 til að geta búið við ásættanlegt umferðaröryggi. Með samtakamætti getum við þakkað þingmönnunum dugleysið. En gefum þeim lokatækifæri á þessu vorþingi. Við ætlum að keyra tvöfalda Reykjanes- braut alla leið – ekki seinna en haustið 2022. Þeir sem halda því fram að það sé ekki hægt, geta hætt strax. Sjáið þennan dreng hérna neðan við mig. Ég er myndarlegri ... VIÐ HÖFUM SINNT ÞESSUM VEISLUM. GETUM MÆTT NÁNAST HVAR SEM ER. FÖSTUDAGSHÁDEGI ERU VINSÆLUST HJÁ FYRIRTÆKJUM. VIÐ MÆTUM Í FYRIRTÆKI ÞITT OG ELDUM – ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! ENDILEGA HAFA SAMBAND Á ISSI@ISSI.IS, PÓSTFANGIÐ ER EKKI EINU SINNI FLÓKIÐ ... ÞAÐ ER GOTT AÐ VERA EINFALDUR BESTU KVEÐJUR, ISSI PS. EKKERT UPPVASK! 10 SKAMMTA AFSLÁTTARKORTMEÐ GOSI Á 2000 KR. SKAMMTINN(HVER VILL EKKI MYND AF MÉR Í VESKIÐ?) FYRIR ÞÁ ALHÖRÐUSTU! EF GÓÐA VEISLU GJÖRA SKAL MÆTI ÉG MEÐ VAGNINN Í: AFMÆLI, ÚTSKRIFTIR, FERMINGAR, BRÚÐKAUP, INNFLUTNINGSPARTÝ, STARFSMANNAPARTÝ, EFTIRPARTÝ, PARTÝ ... LO KAO RÐ MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR Samtakamáttur FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 20:30 HRINGBRAUT OG VF.IS Nýtt skip í eigu útgerðarfyrirtækisins Vísis hf., Páll Jónsson GK 7, kom til Grindavíkurhafnar á þriðjudag eftir næstum viku siglingu frá Gdansk í Póllandi. Siglingaleiðin er um 1.500 sjómílur. Eftir að skipið hafði verið tollafgreitt var bæjarbúum boðið að koma, skoða skipið og þiggja kaffi og kleinur. Myndirnar voru teknar eftir að skipið lagðist að bryggju í heimahöfn í fyrsta skipti. Kominn heim!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.