Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.05.2020, Side 12

Víkurfréttir - 20.05.2020, Side 12
Í þarsíðasta pistli var greint frá banni á grásleppuveiðum og að það kæmi mjög illa við útgerðir báta hérna á Suðurnesjum því þeir voru sumir bara rétt svo byrjaðir á veiðum. En hvað eru bátarnir að gera núna? Lítum aðeins á það. Svala Dís KE náði aðeins að fara í sjö róðra á grásleppunni en hefur síðan legið við bryggju, næst fer báturinn væntanlega á makrílveiðar. Addi Afi GK landaði einni löndun í maí en var síðan hífður upp á bryggju í Sandgerði þar sem smá viðhaldi verður sinnt á bátnum. Guðrún Petrína GK landaði einu sinni grásleppu í maí en fór síðan einn róður á línu og landaði 4,8 tonnum í einni löndun. Bæði Addi Afi GK og Guðrún Petrína GK munu fara á makríl þegar þær veiðar hefj- ast. Guðrún GK 96 landaði einni löndun í maí en útgerðaraðilinn sem á bátinn á annan bát sem líka heitir Guðrún GK 90 og hefur hann stundað handfæraveiðar á bátnum og fiskað mjög vel. Hann hefur landað tuttugu tonnum í sex róðum. Þó svo báðir bátarnir heiti Guð- rún GK þá er nokkur munur á þeim. Guðrún GK 96 er smíðuð á Englandi árið 1982 og er 13,1 tonn af stærð og 11,5 metrar á lengd. Báturinn var lengst af á Akranesi, hét þar Særún AK og var með því nafni frá 1982 til ársins 2000. Hinn báturinn var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði og er af gerðinni Cleopatra 31L, hann er 8,3 tonn af stærð og 9,5 metrar á lengd. Sá bátur var fyrst í Hafnar- firði og hét þá Ösp HF en fór síðan til Bolungarvíkur, kom á Suðurnesin árið 2010 og hefur verið þar síðan, hét lengst af Bjarmi GK. Garpur RE landaði tvisvar í maí en hefur síðan legið við bryggju í Grindavík og ekkert farið á sjóinn til veiða, Tryllir GK var fyrsti báturinn á Suðurnesjunum til þess að hefja veiðar á grásleppu á Suðurnesjum, báturinn landaði tvisvar í maí en hefur síðan legið við bryggju í Grindavík og ekkert róið. Alli GK var eini báturinn sem réri á grásleppu frá Keflavík, báturinn fór í ansi langa siglingu því hann fór alla leið austur á Neskaupstað þar sem hann mun stunda línuveiðar í sumar. Eins og sést á þessari upptaln- ingu þá hafa útgerðir þessara báta sem voru á grásleppuveiðum lítið stundað veiðar og þetta bann setti plön útgerða þessara báta í frekar mikið uppnám. Fyrst talað var um grásleppuneta- veiðar þá er rétt að kíkja á aðrar neta- veiðar. Erling KE er kominn austur á Vopnafjörð þar sem hann mun stunda grálúðunetaveiðar í sumar fyrir Brim ehf., það fyrirtæki hét áður HB Grandi. Hefur Erling KE landað tvisvar um 30 tonnum alls. Talandi um Erling KE þá er Hall- dór Jóhannesson, sem var t.d skip- stjóri á línubátum í Grænlandi, skip- stjórinn á bátnum núna. Skipstjórinn sem vanalega er með Erling KE heitir líka Halldór, kallaður Dóri, en hann er kominn á Bergvík GK að róa með Hafþóri og Hafþór hefur líka verið skipstjóri á Erling KE. Þeir félagar, Dóri og Hafþór, hafa fiskað ansi vel en þeir hafa verið með netin utan við Sandgerði í maí og eru komnir með um 60 tonn í þrettán róðrum, mest um sjö tonn í róðri. Kvótinn á Bergvík GK kemur, jú, hvaðan haldið þið? Frá Erlingi KE. Rétturinn Ljúffengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-14 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Hvað eru bátarnir að gera núna? Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Fimmtudagur 20. maí 2020 // 21. tbl. // 41. árg. 12 // AFLAFRÉttIR á SUÐURNESJUM Í 40 áR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.