Íþróttamaðurinn - 01.10.1932, Blaðsíða 6
4
IÞRÓTTAMAÐURINN
Georg Lúter Sveinsson.
Hinn ungi og knálegi maður, sem þessi mynd
er af, heitir Georg Lúter Sveinsson.
Hann er nú nýlega 19 ára að aldri og er,
miðað við aldur sinn, afreksmaður í íþróttum.
12 ára að aldri kom hann til Reykjavíkur,
norðan frá Akureyri. Gekk hann þá þegar í
íþróttafélag K. R. Kom brátt í ljós, að Georg
var gott íþróttamannsefni, bæði hvað líkams-
atgeryi og skap snerti. Var hann reglusamur,
og áhugasamur um’að æfa sig, enda sáust þess
merki fljótt.
Þegar á fyrsta ári sínu í K. R., var hann
skipaður í kapplið 3. flokks félagsins, og furð-
aði marga á, hve snjall hann var þá þegar í
knattleik. Síðan hefir hann jafnan þótt sjálf-
sagður í kapplið K. R., fyrst í 3. flokki, meðan
hann hafði aklur til, og síðan í 2. flokki og
loks síðastliðið sumar var hann oftlega skipað-
u-r í kapplið 1. flokks, I öll þau mörgu skifti,
sem Georg hefir kept í knattleik, hafa áhorf-
endur jafnan dáðst að fræknum leik hans, -
snarræði hans og lipurð, samfara öryggi og
skynsamlegri dirfsku, að ógleymdri prúðmensku
hans á leikvangi, sem honum er í merg runnin.
Enda þótt segja megi, að knattspyrnuíþrótt-
in hafi hingað til verið uppáhalds-íþrótt Georgs,
þá hefir ,hún ekki nægt honum, Hann langaði
til að iðka fleiri íþróttir, og kom þá í ljós, að
hann er jafnvígur á flestar þær íþróttir, sem
ungir menn temja sér nú. Þannig er hann ágæt-
ur spretthiaupari, stökkmaður og kastari og
hefir unnið fjölda verðiauna í öllum þessum
íþróttum. Hann hefir oftlega kept á leikvangi
fyrir félag sitt, bæði á mótum fulloröinna
manna og drengja og unnið því glæsilega sigra,
og hin 2 síðustu sumur, .hefir hann borið ægis-
hjálm yfir jafnaldra sína á Iþróttamóti drengja
og unnið mótin — fengið flest stig. Hið síðara
sumarið, skiftust afreksverðlaunin fyrir flest
stig milli hans og Kjartans Guðmundssonar,
því þeir vorui þá jafnir að vinningum.
Vonndi minnist Georg þess á komandi ár-
um, að íþróttalegt líferni er hverjum manni
hið hollasta uppeldi, og vonandi æfir .hann sig
svo vel, að hann verði á íþróttasviðinu æskunni
til fyrirmyndar. Efast ég þá ekki um, að afrek
muni sigla í kjölfar góðrar þjálfunar. —
Georg, íþróttahæfileikar þínir búa í líkama
þínum, — láttu viljann leiða þá til fullkomn-
unar. Áhorfancli.
Áhugi.
Áhugi manna út um land fyrir iþróttum og
þá einkum knattspyrnu, fer nú mjög vaxandi.
Hafa nú á seinasta sumri verið stofnuð ýms
félög í smærri kauptúnum, sem fyrst og fremst
hafa á stefnuskrá sinni knattspýrnu, en jafn-
framt ýmsar aðrar íþróttir. Er nú svo komið,
að vel myndi henta að stofna til knattspyrnu-
kepni fyrir hvern landsfjórðung út af fyrir
sig, og væri þá 'æskilegt, að það félagið sem
sigraði 1 hverri slíkri kepni, tæki þátt í Is-
landSmótinu, sem bezt myndi henta að væri
haldið seinni part sumars. Er þá fyrst með
sanni hægt að kalla sigurvegarann á íslands-
mótinu bezta knattspyrnufélag landsins. —
Sá sem þetta skrifar, ferðaðist síðasliðið sum-
ar út um land og átti tal við marga helztu á-
hugamenn. íþróttamálanna, einkum í kauptún-
unum, og var það almenn skoðun þeirra, að slík
landsfjórðungsmót myndu enn auka áhuga
manna fyrir íþróttum og þá knattspyrnu sér-
staklega. Ættu knattspyrnu- eða íþróttaráð
hvers landsfjórðumgs sem fyrst að gangast fyr-
ir framkvæmd á þessu máli, í samráði við stjórn
I. S. I.