Kvistur - 01.11.1932, Blaðsíða 14

Kvistur - 01.11.1932, Blaðsíða 14
K V I STUR aði mér. Hún var móflekkótt og var nefnd Skálm. Seinast hafði hún ekki nema eitt horn. Svo átti eg svarta á, sem afi og amma gáfu mér. Hán heppnaðist mér ekki vel. Hún átti aldrei lamb, svo að það varð að slátra henni. Eiríkur Jónsson (11 'ára). S K E S S A IT í I L L A 3 I L I. tt ti n iv ii u n u íí ij' h rt it n 'i ii iTíT t? tftrw ifít tt u'Íí it tt tt *.t iT i. n tt ■>»; Skessan í Illagili sat í hellismunnanum og leit suður yfir dalinn. Þarna kom maður ríðandi á jörpurn hesti og reið^greitt. Skessan sá strax, að þetta var Jón á Hálsi og var að ríða norður á Norðurland, eins og hann var vanur. Hún ætlaði sér að hitta hann. Jón færðist nær og nær og var brátt kominn á móts við Illagil, því að það gekk inn úr dalnum. Skessah gegk út úr hellinum á móts við Jón. Jón brá skjótt við, er hann sá skessu, stökkur af baki og ætl- ar að ráðast á hana, en hún sagði honum, að hann þyrfti ekkert að óttast, því að ^ún gerði honum ekkert mein. Bað hún Jón að ganga með sér í hellinn. Jón var fús til þess, er hann sá hve hún var raunaleg. Þau gengu í hellinn. T hellinum voru þrjú rúm. Lá í einu þeirra stórgerður maður og mátti glögglega sjá, að hann var mjög veikur. 1 rúmi hinum megin í hellinum láu tvö börn, bæði veik. Skessan fór nú að segja honum raunir sínar og bað hann að hjálpa sér. Hann sagðist skylái sækja fyrir hana meðöl, ^ef hún vildi. Skess- an þá það með þökkum. Reið Jón nú af stað suður í sveit. Jón hitti skottulækni þar í sveitinni og fékk hjá honum meðöl, er hann hélt að dygðu. Jón kom aftur til hellisins daginn eftir, og var þá ann- að barnið dáið. Gaf nú Jón sjúklingunum meðölin. Jón var í hellinum um nóttina. Morguninn eftir var karl hinn hressasti og krakkinn líka, Skessan var hin kátasta, og bað hún Jón að koma við hjá sér, þegar hann kæmi aftur. Per nú Jón þeiðar sinnar og kemur aftur við hjá þeim, og biðja þau hann að koma alltaf við hjá sér, er hann fari norður. Jón lofaði því og kom alltaf við hjá þeim og var allt- af nótt. — — Eitt sinn er Eón reið norður, kom hann við hjá þeim eins og vant var. Voru þá bæði dáin, kerlingin og krakkinn. Karlinn var mjög dapur í bragði og sagðist búast við, að hann færi nú að áeyja, og sagði hann, að Jón ætti að hirða allt, sem fémætt væri í hellinum, og fékk hann Jóni lyklakippu stóra. Síðan reið Jón norð- ur. Þegar hann kom aftur, var karlinn dauður og lá í hellismunnan- um. Jón dröslaði honum niður í vatn, sem var þar rétt hjá. Síðan & fór hann^upp í hellinn og kannaði hann. Eann hann margt fémætt í honum. Síðan reið Jón heim. Hann fluttist í dalinn um^vorið og bjó þar til dauðadags. Jón var jafnan gæfumaður og lifði í auð og alls- nægtum upp frá þessu. Það er óhætt að geta þess, að þessi tröll lifðu ekki á stolnu fé, því að Jón keypti alltaf handa þeim slátur- fé þar í hreppnum, og féldc það ríflega borgað aftur. Og þar með lýk eg þessari sögu. Einar J. Hafberg (12 ára).

x

Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvistur
https://timarit.is/publication/1452

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.