Fréttablaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 29
HæfniskröfurUpplýsingaöryggisstjóri
Þverholt 2 | Mosfellsbær 270 | Sími 525 6700 | mos.is
Framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
Framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs stýrir starfsemi sviðsins í samræmi
við lög og reglugerðir, stefnumörkun og samþykktir bæjarstjórnar,
fjárhagsáætlun og greiðsluáætlanir á hverjum tíma.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á undirbúningi stefnumótunar,
áætlanagerð og framkvæmd fjárhagsáætlunar auk annarra verkefna
sem til falla innan þeirra málaflokka sem falla undir sviðið.
Hlutverk fjölskyldusviðs Mosfellsbæjar er að annast þjónustu og
rekstur á sviði barnaverndar, félagsþjónustu ásamt þjónustu við
aldraða og fólks með fötlun og félagsleg húsnæðismál.
Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem virðing,
jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í dag-
legu starfi. Framkvæmdastjóri er ráðin af bæjarstjórn, heyrir beint
undir bæjarstjóra og er hluti af stjórnendateymi bæjarins.
Mosfellsbær auglýsir eftir öflugum stjórnanda í starf framkvæmdastjóra fjölskyldusviðs
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 5. júlí 2020.
Sækja skal um öll störf á www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda
starfsferilskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og
fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hanna Guðlaugsdóttir
mannauðsstjóri í síma 525-6700. Öllum umsóknum verður svarað.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga
og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi er skilyrði
• Þekking á lögum og reglugerðum í þeim málaflokkum sem
heyra undir sviðið er skilyrði
• Haldbær reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu sem og af málefnum
sveitarfélaga í málaflokknum er skilyrði
• Mikil reynsla af og þekking á stefnumótunarvinnu og áætlanagerð
er skilyrði
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla er skilyrði
• Framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum er skilyrði
• Haldbær reynsla í verkefnastjórnun og framúrskarandi skipulagshæfni
er æskileg
• Framúrskarandi tölvukunnátta og þekking á helstu forritum er æskileg
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði, kunnátta
í norrænu máli er kostur
• Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára