Fréttablaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 30
Aðstoðarskólastjóri
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri auglýsir eftir
aðstoðarskólastjóra frá og með 1. ágúst 2020
Í skólanum eru 140 nemendur í 1. – 10. bekk og kennt er í
tveimur starfsstöðvum. Önnur er á Stokkseyri fyrir
nemendur 1. – 6. bekk og hin er á Eyrarbakka fyrir nemendur
í 7.–10. bekk. Skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu,
gott samstarf er við leikskólana og áhersla er lögð á góða
samvinnu við heimilin. Nánari upplýsingar um skólann má
finna á vef skólans, barnaskólinn.is og á vef sveitarfélags-
ins, arborg.is
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir
leiðtogahæfni og hefur mikla reynslu og þekkingu á
grunnskólastarfi. Starfshlutfall 100% og ráðið verður í
stöðuna frá og með 1. ágúst 2020.
Meginverkefni:
• Staðgengill skólastjóra
• Vinnur ásamt samstarfsfólki að framþróun í skólastarfi og
stefnumótun
• Vinnur ásamt skólastjóra að daglegri stjórnun skólans og
skipulagningu skólastarfsins
Menntun og færnikröfur:
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun er skilyrði
• Leyfisbréf grunnskólakennara og kennslureynsla á grunn-
skólastigi er skilyrði
• Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslu-
fræði er mikill kostur
• Forystu- og stjórnunarhæfileikar
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í
samstarfi og mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi og skipulagshæfileikar
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Vakin er athygli á stefnu sveitarfélagsins um jafnt hlutfall
kynjanna í störfum hjá Árborg og að vinnustaðir endurspegli
fjölbreytileika samfélagsins. Laun eru samkvæmt kjara-
samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ
v/Skólastjórafélags Íslands.
Nánari upplýsingar veitir Páll Sveinsson, skólastjóri, símar
480 3203 og 822 9987. Netfang: pall@barnaskolinn.is.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2020.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf fyrir
starfsheitið kennari, framtíðarsýn umsækjanda varðandi
þróun skólastarfs ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið,
skal skila í gegnum ráðningarvef sveitarfélagsins,
starf.arborg.is
Barnið er að byrja í skóla - Verkefnisstjóri innritunar
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir eftir verkefnisstjóra innritunar í leikskóla, grunnskóla og á frístunda-
heimili Reykjavíkurborgar. Verkefnisstjórinn ber ábyrgð á innritun, greiningu gagna og tölfræðilegri upplýsingagjöf auk
þess sem almenn upplýsingagjöf og aðstoð vegna innritunar við foreldra og stjórnendur starfseininga sviðsins er ríkur
þáttur í starfinu.
Á komandi skólaári verður lögð sérstök áhersla á þróunarverkefni sem felst í stafrænni þjónustu. Verkefnisstjóri innritunar
er einn lykilaðila í stafrænni vegferð sviðsins.
Verkefnisstjórinn er hluti af teymi starfsmanna á skrifstofu sviðsstjóra. Hlutverk skrifstofunnar er m.a. að hafa yfirsýn yfir
framkvæmd stefnumörkunar í skóla- og frístundastarfi, öflun og miðlun tölfræðilegra upplýsinga og niðurstaða rannsókna
á skóla- og frístundastarfi, umsjón með daglegum rekstri skrifstofu sviðsins, skjalamálum, gæðamálum og skipulagi stærri
viðburða. Verkefnisstjórinn vinnur einnig í nánu samstarfi við fagskrifstofu og aðrar starfseiningar sviðsins.
Skóla- og frístundasvið veitir börnum og fjölskyldum í borginni heildstæða þjónustu og annast m.a. rekstur leikskóla, grunn-
skóla, frístundamiðstöðva, starfsemi Námsflokka Reykjavíkur og skólahljómsveita auk umsjónar með daggæslu.
Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur „Látum draumana rætast“ þar sem
leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska.
Helstu verkefni:
• Umsjón með innritun í leikskóla, biðlistum eftir leikskóla-
dvöl og flutningi á milli leikskóla.
• Umsjón með nemendaskrá nemenda á grunnskólaaldri,
skólasögu, eftirliti vegna skólaskyldu, innritun og skóla-
skiptum.
• Umsjón með skrá barna sem dvelja á frístundaheimilum og
þátttaka í innritun.
• Upplýsingagjöf og aðstoð vegna innritunar til foreldra,
stjórnenda og annarra samstarfsaðila innan borgar og
utan.
• Vinnsla barna- og nemendatalna s.s. vegna stefnumót-
unar, fjárhagsáætlunargerðar og eftirlits.
• Þátttaka í stafrænni vegferð sviðsins í þróun á verklagi og
umsjónarkerfum innritunar.
• Fræðsla og þjálfun starfsmanna sviðsins á umsjónar-
kerfum innritunar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Reynsla sem nýtist í starfi, sbr. helstu verkefni.
• Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum sam-
skiptum.
• Góð hæfni og þekking í notkun mismunandi tölvukerfa.
• Áhugi og geta til virkrar þátttöku í stafrænni þróun skóla-
og frístundasviðs.
• Greiningarhæfni og færni í framsetningu og miðlun upp-
lýsinga.
• Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð.
• Skipulagshæfni og metnaður til að ná árangri í starfi.
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og rökstuðningur
fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Starfið er laust frá 10. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2020.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags. Umsækjendur eru
beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf.
Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu sviðsstjóra, sími 6648470.
Netfang: adalbjorg.disa.gudjonsdottir@reykjavik.is.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Grunnskóli Seltjarnarness
• Náttúrufræði- og samfélagsgreinakennsla,
fullt starf í afleysingu næsta skólaár.
• Umsjónarkennari á yngsta stigi, fullt starf
í afleysingu næsta skólaár.
• Þroskaþjálfi, fullt starf í afleysingu næsta
skólaár.
• Skólaliðar, fullt starf og hlutastörf.
Nánari upplýsingar um störfin og skil umsókna
má finna á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar
www.seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur er til 21. júní næstkomandi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar
eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Seltjarnarnesbær
Laus störf
seltjarnarnes.is
Starfsmaður í
vöruafgreiðslu
Smith & Norland vill ráða
starfsmann í vöruafgreiðslu og önnur
lagerstörf.
Starfið felst í vörumóttöku og -afgreiðslu sem og aðstoð við útkeyrslu
vörusendinga til viðskiptavina auk tengdra lagerstarfa.
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf. Meirapróf og/eða lyftarapróf auk
almennrar tölvukunnáttu er kostur.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum einstaklingi, sem vill takast á við
skemmtilegt starf og hefur áhuga á þjónustu og mannlegum samskiptum.
Stundvísi er krafist.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki á
rafmagnssviði.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru vinsamlega beðnir að senda
umsókn til Smith & Norland með upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf fyrir 27. júní.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, sminor.is, (undir
flipanum Fyrirtækið).
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem algjört trúnaðarmál.