Fréttablaðið - 13.06.2020, Blaðsíða 34
Skólasálfræðingur
Fjölbrautaskólinn við Ármúla óskar eftir því að ráða
sálfræðing til starfa fyrir skólaárið 2020/2021 með
möguleika á framlengingu. Starfshlutfall er 50%
Markmið starfs
Að veita nemendum þjónustu í málum sem tengjast líðan
og persónulegum högum. Skólasálfræðingi er ætlað
að veita foreldrum/forráðamönnum, kennurum og öðru
starfsfólki ráðgjöf í málum einstakra nemenda.
Hæfnikröfur
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur réttindi til að starfa
sem sálfræðingur og reynslu af því að starfa með ungu
fólki. Lögð er áhersla á hæfni í mannlegum samskiptum
og að viðkomandi geti sýnt fram á frumkvæði og þjón-
ustulund í starfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og
efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt með tilheyrandi gögnum,
s.s. staðfestingu á leyfi til að starfa sem sálfræðingur,
ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem
umsækjanda þykir skipta máli, til Magnúsar Ingvasonar,
skólameistara Fjölbrautaskólans við Ármúla á netfangið
mi@fa.is eigi síðar en 18. júní 2020.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði
frá því að umsóknarfresti lýkur.
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um
framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstak-
ling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla
almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð
áður en af ráðningu getur orðið.
Nánari upplýsingar veitir
Kristrún Birgisdóttir, aðstoðarskólameistari, netfang:
kb@fa.is, sími: 525 8800.
Fyrsta skrefið í átt að
markmiðum þínum?
EY óskar eftir nemum í endurskoðun. Við leitum að fólki
sem skráð er í meistaranám í reikningshaldi og endurskoðun
(M.Acc) og stefnir að löggildingu í endurskoðun.
EY á heimsvísu er á meðal leiðandi fyrirtækja á sviði
endurskoðunar, skattamála og ráðgjafarþjónustu. Tilgangur
okkar er „Building a better working world“. Í því felst að
við viljum auka traust og tiltrú í viðskiptum, samvinnu,
sjálfbæran vöxt og gera heiminn að betri stað til að lifa og
starfa í.
Við bjóðum faglega þjálfun, reynslu af því að vinna í
teymum, tækifæri og frelsi til að efla þig persónulega sem
og faglegan bakgrunn þinn.
Sótt er um starfið á heimasíðu EY og þar eru jafnframt
nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til og
með 21. júní nk.
www.ey.is
©
2
02
0
Er
ns
t &
Y
ou
ng
e
hf
, ö
ll
ré
tt
in
di
á
sk
ili
n.
Sérfræðingur í samskiptum og miðlun
Viðskiptaráð Íslands leitar að sérfræðingi í samskiptum og miðlun. Starfið krefst frumkvæðis og hæfileika til að
laga sig að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum. Við bjóðum upp á lifandi vinnustað ásamt ríku tækifæri til að
móta eigið starfsumhverfi og verklag.
Helstu verkefni
■ Yfirumsjón með allri upplýsingamiðlun ráðsins, t.d. innri og
ytri samskiptum
■ Umsjón með vefsíðu, samfélagsmiðlum og öðrum
boðleiðum upplýsingamiðlunar
■ Skipulagning viðburða á vegum ráðsins
■ Umsjón með framsetningu og hönnun útgefins efnis
■ Aðstoð við málefnastarf, t.d. umsagnar- og skýrsluskrif
■ Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
■ Menntun sem nýtist í starfi
■ Framúrskarandi hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
og ensku
■ Haldbær reynsla af samskipta- og miðlunarmálum
■ Reynsla af framleiðslu kvikaðs efnis, hönnun, umbroti og
upplýsingatækni (InDesign, Photoshop, Adobe umhverfið,
Powerpoint, Excel o.fl.)
■ Þekking á fjölmiðlaumhverfi og framúrskarandi þekking á
samskiptamiðlum ásamt helstu greiningartólum
■ Geta til að setja sig hratt inn í ólík málefni
■ Afburðahæfni í mannlegum samskiptum
Umsókn ásamt ferilskrá sendist á starfsumsokn@vi.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2020. Nánari upplýsingar veitir Ásta S.
Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, í síma 510 7100.
Viðskiptaráð Íslands var stofnað árið 1917 sem frjáls félagasamtök fyrirtækja, félaga og einstaklinga í íslensku atvinnulífi.
Frekari upplýsingar um starfsemi ráðsins má nálgast á www.vi.is.
SMIÐIR TIL GRÆNLANDS
Viltu starfa í Nuuk?
Ístak byggir sextán þúsund fermetra skólabyggingu við aðalgötuna í Nuuk á Grænlandi og leitar að reglusömum
og stundvísum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa við mótasmíði og steypuniðurlögn.
Hæfniskröfur:
• Sveinspróf í húsasmíði eða sambærileg menntun.
• Reynsla af mótasmíði, steypuniðurlögn og járna
bindingu skilyrði.
• Góð samskiptahæfni.
• Vönduð vinnubrögð.
Ístak býður upp á:
• Góðan aðbúnað og öruggt vinnuumhverfi.
• Reynslumikla og trausta stjórnendur.
• Áhugaverð verkefni.
Sótt er um starfið á www.istak.is undir Starfsumsókn. Farið verður yfir umsóknir eftir því sem þær berast.
Nánari upplýsingar fást hjá mannauðsdeild Ístaks í síma 5302700.Ístak hefur verið öflugur verktaki á sviði mannvirkjagerðar og bygginga á Íslandi síðan 1970 og fagnar því 50 ára starfsafmæli
í ár. Fyrirtækið hlaut jafnlaunavottun haustið 2019. Ístak er hluti
af samstæðu Per Aarsleff sem er leiðandi verktaki með yfir 4.500
starfsmenn í ýmsum heimsálfum.
Ístak – Bugðufljóti 19, 270 Mosfellsbæ – www.istak.is
Erum við
að leita að þér?
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 3 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R