Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS 30 ÁRA
Ríkisstjóri: „Verk sitt hefir l.S.Í.
ekki unnið til launa. heldur
af áhuga“.
Forsætisráðherra: „íþróttahreyf-
ingin á að vera einn af sterk-
ustu þáttunum í brjóstvörn ís-
iands".
Háskólarektor: „íþróttir, vísindi
og listir eru þau meginöfl,
er mestu ráða um hamingju
hverrar þjóðar'.
Þann 28. janúar s.l. átti íþrótta-
samband íslands þrítugsafmæli.
Mikið var um hátíðahöld meðal
íþróttamanna hér í bænum í
sambandi við afmælið, svo að
sjaldan eða aldrei mun stjórn
I. S. I. hafa fundið jafnmikið
vinarþel frá félögum og einstakl-
'ngum eins og að þessu sinni,
Glímufélagið Ármann reið á vað-
ið og helgaði því Skjaldarglím-
una, sem háð var 2. fehrúar, en
nokkru síðar hélt sama félag í-
þróttaviku til heiðurs f. S. í., þar
sem fram fóru glæsilegar og fjöl-
breyttar íþróttasýningar. Sund-
ráð Reykjavíkur stóð fyrir sund-
knattleiksmóti þann 19. febrúar
og var það einn liður þessara há-
tíðahalda. Þá liafði Ivnattspyruu-
íélag Reykjavikur hátíðasýning-
ar í fimleikum og sýndu þar
bæði konur og karlar, og þóttu
háðar sýningarnar takast með á-
gætum. Loks voru svo háðir
knattspyrnukappleikir. þar sem
öll knattspyrnufélög bæjarins —
Fram, K. R., Yalur og Víkingur
— leiddu saman liesta sína, og
var það síðasti liður þessara há-
tíðahalda.
Það er gleðilegt og fyllilega
þess virði, að því sé á loft liald-
ið, að einmitt á þessum tímum,
þegar okkur ríður sem mest á að
standa fast saman, þá skulu í-
þróttamenn sýna íþróttasam-
bandinu meiri þegnskap og meira
vinarþel en þeir hafa áður gert,
og fyrir það eiga þeir skilið
margfaldar þakkir.
Auk þeirra hátíðahalda, sem
nú liefir verið getið, hélt svo
stjórn sambandsins hóf i Odd-
fellowliúsinu á afmælisdaginn,
og var þar saman komið margt
íþróttamanna, hæði ungra og
gamalla. Nokkrum hluta þess,
sem þar fór fram, var útvarpað
og því alþjóð kunnugt. Aðalræð-
una flutti forseti 1. S. f., Ren. G.
Waage, og fýsti stefnu og starfi
samhandsins í stórum dráttum.
Margar ræður og ávörp voru flutt
í hófinu og mikill fjöldi gjafa
og heillaóskaskeyta barst sam-
handinu, bæði frá félögum og
einstaklingum, sem sýndu glögg-
lega vinsældir þess og að íþrótta-
mönnum er annt um þessi alls-
herjarsamtök sín.
Meðal þeirra, sem sendu sam-
bandinu kveðjur í tilefni afmæl-
isins, voru Sveinn Rjörnsson,
ríkisstjóri, Hermann Jónasson,
forsætisráðherra og Alexander
Jóhannesson, rektor Háskólans.
Fara ávörp þeirra hér á eftir:
Stjórn í. S. í.
Fremri röð, frá vinstri: Benedikt G. Waage forseti, Erlingur Páls-
son varaforseti. Aftari röð: Þórarinn Magnússon ritari, Frí-
mann Helgason skjalavörður, Sigurjón Pétursson féhirðir.