Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 4

Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 4
2 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ ÁVARP til íþróttasambands íslands, frá rikisstjóra Sveini Björnssyni, á 30 ára afmæli sambandsins, 28. janúar 1942. Við notum oft fornrómverska spakmæliS: „Heilbrigð sál i heil- brigðum líkama“, er við viljum undirstrika, að iðkun íþrótta geri livorttveggja í senn, að efla lioll- ustu líkama og sálar. En, þvi miður, felur þetla spakmæli ekki i sér algilda reglu. Ef liollusta hugarfarsins stjórnar ekki iþróttaiðkunum, getur farið svo, að þótt líkaminn verði heilbrigður og hraustur, verði sálin út undan. Það má iðka likamsíþróttir svo, að þjálfaður sé hraustur líkami, sem nota megi til ein- hverra hluta svo sem hverja aðra vél, án þess að ræktun sálarinn- ar sé þvi samfara. Jafnvel svo, að sú sálarræktun sé annaðhvort algerlega forsómuð eða henni heint í öfuga átt. En þegar hollusta hugarfars- ins stjórnar iþróttaiðkunum. í stað þess máske að eitra hug- ann, þá fer á annan hátt. Þá á spakmælið, sem ég nefndi, sitt fulla gildi. Með líkamsheilbrigði fylgir þá sálarheilbrigði. Eitt af markmiðum „Iþrótta- sambands íslands“ hefir einmitt verið að reyna að tryg'gja það, að líkamsíþróttir á íslandi fari fram í slíku andrúmslofti, að þær geri menn heilbrigða, bæði á sál og' líkama. Það liefir gengizt fyrir því, að menn bindist samtökum um að keppa i íþróttum eftir settum reglum, þar sem uppistaðan er: drengskapur. Það hefir skapað sér aðstöðu til þess að koma á slíkum reglum meðal allra þeirra félaga, sem vængir þess ná til. Og það hefir skapað sér aðstöðu til þess að gæta þess, að reglun- um sé fylgt. Það á sinn þátt í því, að ríkis- valdið hefir talið sér skylt að styrkja, vernda og varðveita í- þróttaiðkanir á íslandi i þeim anda, sem ég' hefi lýst. Verk sitt hefir það ekki unnið til launa, heldur af áhuga. Þetta, sem ég liefi nefnt, gefur fullgildar ástæður til þess að telja þennan félagsskap þjóð- nýtan. Það er mál sumra manna, að samtök eða félagsskapur, sem staðið liefir i 25 ár, hafi sýnt, að liann á sér lífsskilyrði. En liafi hann staðið í 30 ár, sé hann ó- drepandi úr þvi. Það er ósk mín og von, að þetta megi sannast á íþrótta- sambandi Islands“. Reykjavík, 28. jan. 1942. Til stjórnar Iþróttasambands Islands> Sérstakar ástæður valda þvi, að ég get ekki mætt á afmælis- fagnaði yðar í kvöld, en ég sendi yður einlægustu árnaðaróskir mínar, um leið og ég fyrir þjóð- arinnar hönd þakka yður mikið og gott starf og' bið yður að minnast þess, að þjóðin væntir mikils af yður framvegis. Miklir og margir byrjunarörð- ugleikar hafa verið yfirstígnir á þessum 30 árum, og framfarir i íþróttamálum eru miklar, en þó er það svo i dag, að okkur finnst það svo að segja óendan- lega margt, sem óunnið er og gera þarf. Fyrir mikla starfs- krafta er einmitt þetta að mörgu leyti hið ánægjulegasta við ís- lenzkt íþróttalíf. Erfiðleikarnir, sem að oss steðja í svipinn, eru að visu miklir og með öðrum hætti en sá vandi, er við kjósum að fást við. Og þessi vandi, er oss hefir að höndum horið, er að mörgu leyti þrándur i götu aukins í- þróttalífs. En þessa örðugleika verðum við einnig að sigra, bæði að því er snertir íþróttalífið sem og þann þátt, er viðkemur þjóð- inni sem heild. Á erfiðum tímum verða þjóð- irnar að treysta á það, sem er sterkast og heilhrigðast i þjóð- lífinu. Islenzkir iþróttamenn! Má ekki islenzka þjóðin treysta því, að þið séuð eitt af því heilbrigða og sterka? Á 30 ára afmæli Iþróttasam- bands Islands vildi ég, að hver góður iþróttamaður minntist þessa, og strengdi þess hljóður heit, að íþróttahreyfingin ís- lenzka skuli vera einn af sterk- ustu þáttunum í brjóstvörn Is- lands nú, er mest á reynir. Ekki einungis með þvi að stökkva eða hlaupa hart, heldur fyrir at- beina þeirrar skapfestu, dreng'- lundar og manndóms, sem þið eigið að öðlast með því að lifa heilbrigðu lífi og stunda liollar íþróttir. Ef íþróttamenn vilja vera sam- taka í þvi að vinna þetta heit og stefna að þessu marki, efast ég ekki mn, að þeim takist að ná því. Hermann Jónasson. Reykjavík, 28. jan. 1942. Herra forseti í. S. í. Ren. G. Waage. Mér þykir mjög leitt að geta, ekki setið 30 ára afmælisfagnað Iþróttasambands Islands, en þakka fyrir vinsamlegt boð. Ég flyt Iþróttasambandinu bestu hamingjuóskir mínar, og þakkir fvrir unnin störf í þágu þjóðarinnar og uppeldis æsku- lýðsins. Það er sannfæring mín, að aukin iþróttastarfsemi muni eiga sinn verulega þátt í að skapa heilbrigða, vaska og drenglynda þjóð, er keppi á ó- komnum árum að því háleita marki að í þessu landi búi önd-

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.