Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 12

Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 12
10 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Kúluvarp. mlr. 1. Gunnar Huseby (K. R.) lk.79 2. Jóel Sigurðsson (I. R.) 12.64 3. Anton Björnsson (K. R.) 11.27 4. Jón Hjartar (K. R.) 8.77 Afrek Gunnars er nýtt ísl. met og bezti árangur fslendinga í frjálsum íþróttum. Vonandi tekst honum að ná 15 metrum síðar i sumar og gera þar með garð- inn verulega frægan í hugum er- lendra þjóða, þvi að eins og kunnugt er þykir 15 mtr. kast mjög gott á alþjóðamælikvarða. Gunnar liefir nú á einu ári hækk- að kúluvarpsmetið um röskan meter — úr 13.74 mtr. upp í 14.79 mtr. og er þó aðeins 18 ára gamall. Ber það vott um undraverða hæfileika. Marga góða kastara vantaði, t. d. Sig- urð Finnsson. Er þvi árangur næstu manna Jakari en venju- lega. — Gamla metið var 14.63 metrar. Sleggjukast. mtr. 1. Vilhj. Guðm.s. (K. R.) 42.31 2. Helgi Guðm.s. (K. R.) 37.28 3. Gunnar Huseby (K. R.) 36.06 4. Gísli Sigurðsson (F. H.) 29.28 Árangurinn er óvenju jafn og góður. Einn yfir 40 mtr. er venjulegt, en 3 yfir 36 mtr. er Gunnar Huseby. Vilhjálmur Guðmundsson. alveg ('iþekk I fyrirbrigði. Þó eru keppendur sennilega eklíi komn- ir í góða æfingu enn. Verður gaman að vita, hvort Vilhjálmi tekst að ljæta Juð góða met sitt — 46.57 mtr. — á Meistaramót- inu og Helga og Gunnari að ná 40 mtr., en þeir eru háðir í mjög mikilli framför. Gísli hefir lield- ur ekki kastað svona langt áður. Fimmtarþraiit. stig. 1. Jón Hjartar (K. R.) 2309 2. Rögnv. Gunnl.s. (K. R.) 2255 3. Anton Björnsson (K. R.) 2224 4. Sverrir Emilsson (K. R.) 2219 Hér varð keppnin svo jöfn, að ómögulegt var að segja, hvar sigurinn myndi lenda fyrr en síðasta þrautin var á enda. Sverrir Emilsson fékk mest út úr langstökkinu, 6.25 mtr., 200 mtr. 25.5 selc. og 1500 mtr. 4:50.0 mín., Jón Hjartar út úr spjót- kastinu, 45.47 mtr. og Rögnvald- ur út úr kringlunni, 32.70 mtr. Anton var einna jafnastur, en var þó eins og Jón sérstaklega óheppinn í spjótlcastinu. Árang- urinn er ekki góður, enda vant- aði þarna methafann Sig. Finns- son, sem ekki gat tekið þátt í mótinu vegna meiðsla á fæti, Ólaf Guðmundsson og Gunnar Husehy, svo að nolckrir séu nefndir. — Metið er 2834 stig. Að þessu sinn stóð sérstöli. þriggja manna nefnd — skipuð fulltrúum þriggja Reykjavíkur- félaganna — fyrir mótinu, og hvort sem það stafar af litluni undirbúningi eða öðru þá geklv mótið alls eklci nógu vel. Það byrjaði frekar óstundvis- lega og svo urðu auk þess ýmsar tafir, ýmist vegna vöntunar á dómurum, áhöldum eða kepp- endum. Verður að átelja slíkt fyrirkomulag, þar eð liér er þó um stærsta mót ársins að ræða í frjálsum íþróttum. Sem sagt frjálsíþróttamótin verða að taka miklum stakka- skiptum, ef þau eiga að draga að sér jafnmarga áhorfendur og knattspyrnumótin. Að vísu eru til einstaka undantekningar eins og t. d. siðasta Allsherjarmót, sem tókst óvenju vel á þessu sviði, en það er ekki nóg. Það má ekki þreyta bæði lceppendur og eink- um áhorfendur lengur með sama gangi. Ættu félagastjórnirnar nú að taka höndum saman með að vanda betur til frjálsíþróttamét- anna í framtíðinni, hvort scm þau eru haldin af einu eða fleiri félögum. Að lokum skal hér gefið vfir- lit yfir bezta árangur 1 hverri íþróttagrein, að undanskildum boðhlaupum, göngunni og fimmt- arþrautinni, en þeim greinum er sleppt í alþjóðastigatöflunni: stig. 1. Kúluvarp G. Huseby . . 899 2. Kringlukast G. Husehy 787 3. Sleggjukast Vilhj. Guð- mundssonar ............ 711 4. 800 mtr. hlaup Sigur- geirs Ársælssonar .... 709 5. Langstökk Ólivers Steins 700 6. 1500 mtr. hlaup Sigur- geirs Ársælssonar...... 699 7. 400 mtr. hlaup Sigur- geirs Ársælssonar .... 692

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.