Íþróttablaðið - 01.08.1942, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
3
vegisþjóð, sem minnug göfugs
ætternis, að afreka forfeðranna,
sæki æ fram til fullkomnunar á
öllum sviðum þjóðlífsins. íþrótt-
ir, vísindi og listir eru þau meg-
inöfl, er mestu ráða um ham-
ingju hverrar þjóðar.
Mér er mikil ánægja að því,
að á þessu ári, liafa íþróttir ver-
ið gerðar að skyldunámsgreinum
við Háskóla íslands, og vænti ég
samstarfs og samkeppni islenzkra
stúdenta á ókomnum tímum í i-
þróttamálum þjóðarinnar.
Með vinsemdarkveðju.
Yðar einlægur,
Alexander Jóhannesson.
Það yrði langt mál, ef skrifa
ætti starfssögu í. S. í. í þau 30
ár, sem liðin eru frá stofnun
þess og verður það ekki gert
hér. Enda gerist þess ekki þörf,
þvi að hér í blaðinu hefir undan-
farin ár verið jafnóðum sagt frá
því lieizta í starfsemi þess og
saga þess rakin í stórum drátt-
um fyrir 5 árum, og svo er nú í
prentun afmælisrit sambandsins,
þar sein ítarleg grein er gerð
fyrir hinni margþættu starfsemi
þess og verður það íþróttamönn-
um án efa kærkomið lieimildar-
rit.
En það sakar ekki að minna
á það einu sinni enn, að starf
I. S. í. er þjóðnytjastarf, sem ])ví
miður allt of fáir kunna að meta.
En þeim, sem kunna að meta
íþróttir og gildi þeirra fyrir
æskulýðinn, og þjóðina yfirleitt,
en ennþá hafa ekki komið auga
á gagnsemi í. S. í., má henda á
það, að án starfsemi þess væri
iþróttahreyfingin eins og stýris-
laus bátur. Hitt er svo annað
mál, að í. S. f. þarf umbóta við,
og hefi ég áður lýst skoðunum
mínum í því máli. Og það er í-
þróttamannanna sjálfra að gera
l»ær umbætur á starfsemi sam-
i andsins, sem nauðsvnlegar eru.
íþróttamótið 17. júní.
Eins og undanfarin ár geng-
ust íþróttamenn fyrir hátíðahöid-
um í höfuðstaðnum þann 17.
júní. Eftir að íþróttamenn höfðu
gengið í skrúðgöngu frá Alþing-
ishúsinu suður á íþróttavöll,
flutti forseti f. S. í. ræðu, en
hann hafði áður lag't blómsveig
á leiði Jóns Sigurðssonar að við-
stöddum miklum mannfjölda. Að
ræðu Ben. G. Waage lokinni,
hófust íþróttakeppnir og sýning-
ar og urðu úrslit í einstökum
greinum sem hér greinir:
Jóhann liernhard.
100 metra hlaup.
1.—2. Jóhann Bernhard (K.R.)
11.6 sek.
1.—2. Óliver Steinn (F. H.) 11.6
sek.
3. Sverrir Emilsson (K. R.)
11.7 sek.
4. Sigurður Finnsson (K. R.)
11.7 sek.
Þeir Óliver og Jóhann voru
svo hnífjafnir í úrslitahlaupinu,
að eigi var unnt að dæma á milli
þeirra. Hlaupið var skemmtilegt
og hlaupararnir jafnir eins og
tíminn ber með sér. í undanrás-
Eflum í. S. í. á allan þann hátt,
sem við getum. Það er bezta af-
mælisgjöfin, sem samhandið get-
ur fengið. Kgs.
unum liöfðu þeir Jóhann og Sig-
urður beztan tíma — 11.7 sek.
17. júní í fyrra vann Brandnr
Brynjólfsson (Vík.) 100 mtr.
hlaupið á 11.5 sek., en Jóhann
hljóp þá á 11.6.
800 metra hlaup. min.
1. Sigurgeir Ársælss. (Á.) 2:14.4
2. Árni Kjartansson (Á.) 2:15.0
3. Hörður Hafliðason (Á.) 2:15.8
Þeir SigUrgeir og Árni náðu
töluvert betri tíma í fyrra —
Sigurgeir 2:4.2 og Árni 2:6.7
— enda var minni keppni í
hlaupinu nú en þá.
5000 metra hlaup. mín.
1. Haraldur Þórðars. (Á.) 17:50.8
2. Indriði Jónsson (K.R.) 17:53.0
3. Vigfús Ólafsson (K.V.) 18:07.0
Það var lengi vel tvísýnt hvor
þeirra Haralds eða Indriða
myndi vinna þetta lilaup, því að
þeir skiptust á um forystuna sitt
á hvað. Haraldur varð þó yfir-
sterkari á síðasta hringnum. —
Tíminn er miklu lakari en i
fyrra. Þá vann Jón Jónsson (K.
V.) á 16:40.6, Haraldur hljóp á
16:46.0 og Indriði á 16:50.2.
Langstökk. intr.
1. Óliver Steinn (F. H.) 6.63
2. Sig. Finnsson (K. R.) 6.45
3. Sverrir Emilsson (K. R.) 6.38
Hér náðist aftur á móti tölu-
vert betri árangur en í fyrra, en
þá vann Óliver með 6.50 mtr.
Árangur Ölivers er ágætur á okk-
ar mælikvarða, en þess ber þó
að gæta, að mikill meðvindur
(6—7 stig) hjálpaði stökkvurun-
um.
Hástökk. mtr.
1. Óliver Steinn (F.H.) 1.72
2. Rögnv. Gunnlaugss. (K.R.) 1.58
3. Ragnar Emilsson (F.H.) 1.58