Íþróttablaðið - 01.08.1942, Qupperneq 23

Íþróttablaðið - 01.08.1942, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 21 17 stig, en Ármann 21 stig. Jó- hannes Jónsson (í. R.) varð fyrst- ur að marki á 7 mín. 17.8 sek., annar varð Sigurgísli Sigurðsson (I. R.) á 7:52.2, en þriðji Frið- geir B. Magnússon (K. R.) á 7:58.4. Sundfélagið Ægir 15 ára. Hinn 1. maí voru 15 ár liðin frá stofn- un Sundfél. Ægis. Þótt aldur fé- lagsins sé ekki hærri en þetta, hefir það unnið geysimikið starf til eflingar sundíþróttinni hér i bænum. Enda liefir Ægir haft svo góðum sundmönnum á að skipa á þessu tímabili, að það hefir borið ægishjálm yfir önn- ur félög. Sést það m. a. á þvi, áð af 29 ísl. sundmetum eiga Ægismenn 24. Stjórn félagsios skipa nú: Þórður Guðmundsson, form., Úlfar Þórðarson, Jón D. Jónsson, Ingibergur Sveinsson, Jón Ingimarsson, Theódór Guð- nnindsson og Ingi Sveinsson. Knattspyrnudómarafélagið helt aðalfund sinn 3. maí s.l. Formað- ur var kjörinn Gunnar Axelson, en meðstjórnendur: Ólafur Jóns- son, Þorsteinn Einarsson, Þráinn Sigurðsson og Baldur Möller. 100 m. hlaupið 17. júní. Frá vinstri: Oliver, Sverrir, Sigurð- nrður og Jóhann. Sundknattleiksmót íslands fór fram í Sundhöllinni i maímán- uði. Leikar fóru þannig, að Ár- menningar urðu íslandsmeistar- ar, unnu Ægi i úrslitaleiknum með 5 mörkum gegn 2. Knattspyrnumótum 2. og 3. fl. lauk um mánaðamótin maí og júní. I 2. flokki varð Valur sig- urvegari með 6 stigum, K. R. hlaut 4, Fram 2 og Víkingur 0. I 3. flokki varð K. R. hlutskarp- ast og hlaut 6 stig, Fram 4, en Valur og Vikingur fengu ekkert stig (kepptu ekki síðasta leik- inn). Knaítspyrnukeppni Hafnarfjarð- arfélaganna i 1. flokki er nýlokið með sigri Hauka. Var höfð tvö- föld umferð og unnu Haukar Fimleikafélag Hafnarfjarðar í fyrri umferðinni, en jafntefli varð í hinni síðari. Boðhlaupið umhverfis Reykja- vík fór fram 11. júlí s.l. Tvær sveitir tóku þátt í hlaupinu frá Ármanni og K. R. — og báru Ármenningar sigur af hólmi á 18 mín. 48.8 sek., en tími K. R. var 19:12.4. Þetta er í 4. sinn, sem hlaupið er háð. Árið 1939 vann Ármann á 18:23.6, 1940 sigraði K. R. á 18:54.4 og i fvrra unnu Ármenningar á 18:09.0. Handknattleiksmótin. Hand- knattleiksmót Ármanns fyrir karla var háð hér í bænum frá 22.—28 júlí og fór keppnin fram á íþróttavellinum. Ellefu manna lið frá Ármanni, 1. R., Val og Víking tóku þátt í mótinu. Sigur- vegari varð Valur með 6 stig- um, Víkingur hlaut 4, Ármann 2, en í. R. 0 stig. íslandsmót i handknattleik kvenna fór fram á Akureyri um miðjan júlí. Stúlkur úr eftirtöld- um félögum tóku þátt i mótinu: Glímufél. Ármann, Reykjavik, Völsungar, Húsavik, Þróttur, Nes- kaupstað, K. A. og Þór, Akur- eyri. Sigurvegari varð Ármann með 7 stigum, Þór fékk 5 stig, K. A. 4, Völsungar 2 og Þróttur 2. Eru því Ármannsstúlkurnar Islandsmeistarar fyrir yfirstand- andi ár. K. R. í Borgarfirði. í byrjun ágústmánaðar fór ílokkur íþrótta- manna úr K. R. til Borgarfjarð- ar og kepjiti við Borgfirðinga í frjálsum íþróttum og sundi. —• Keppnin fór fram á HvRárbökk- um og voru 4 keppendur i hverri íþróttagrein (2 frá hvorum). K.R. bar sigur úr býtum með 51% stigi gegn 38%. Landskeppni í golfleik. Nýlega er lokið íslandskeppninni í golfi. Þátttakendur voru alls 21; þar af 11 úr Reykjavík, 7 frá Vestm.- Gisli Ólafsson. eyjum og 3 frá Akureyri. Sigur- vegari varð Gísli Ólafsson (Rvík) og' var úrslitaleikurinn háður milli hans og Jakobs Hafstein (Reykjavík). Hefir Gísli nú unn- ið titilinn „Golfmeistari Islands*1 þrjú ár í röð.

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.