Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1943, Side 11

Íþróttablaðið - 01.03.1943, Side 11
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 7 Skíðaíþróttin. Nokkrar leiðbeiningar fyrir (Frh.). 4. æfing. Beint rennsli skáhallt niður brekku. Renndu þér skáhallt niður lirekku, þannig að brekkan sé \instra megin við þig. Stattu í aðalatriðum á skíðum eins og þegar þú rennir þér beint niður brekku. Brekkuskíðið, þ. e. skíði það, sem ofar er i brekkunni, á að vera lítið eitt á undan hinu skíðinu. Hallaðu þér lílið eitt inn að brekkunni en hallaðu síðan bolnum frá brekkunni. Þá hef- urðu rétta stöðu: neðri liluti lík- amans, upp að mjöðmum, hall- ast lítið eitt að brekkunni, en bol- urinn fyrir ofan mjaðmir hallast frá brekkunni. Þunginn lendir aðallega á dalskíðinu, þ. e. skíði þ.ví, sem neðar er í brekkunni. Beittu ekki brúnum skiðanna meira en nauðsynlegt er til þess að forðast hliðarrennsli. Hafðu skíðin nálægt hvoru öðru í laus- i m snjó. Á lijarni verður að hafa nokkuð meira bil á milli þeirra eu þegar snjórinn er laus. Gættu þess að hafa nægan framhalla byrjenðor eftfr Steinþár Signrðsson. cg hallast vel út frá brekkunni með holinn. Að öðrum kosti vilja skíðin renna lit á hlið niður brekkuna. Æfðu á sama hátt rennsli ská- hallt niður brekkuna, þannig að brekkan sé hægra megin við þig. Hægra skíðið á nix að vera lítið eitt á undan. 5. æfing. Stemmubeygja (til h.). 1) Renndu þér skáhallt niður brekku, þannig að brekkan sé vinstra megin við þig. Skíðin saman! Bogin hné! 2) Settu dalskíðið (hér hægi-a skíði) lítið eitt í plógstöðu. Skíðaoddarnir saman! Láttu allan þunga líkamans færast yfir á dalskíðið og gættu þess að láta skíðið liggja flatt á snjónum. Um leið og þú flyt- ur þungann yfir á dalslviðið vindur þú bolinn nokkuð í átt- ina upp að brekkunni, en hall- ast stöðugt frá brekkunni. 3) Settu brekkuskíðið út í plóg- stöðu. Skíðin flöt á snjónum; framhalli. Stattu í stöðu þess- ari, þar til skíðin liafa snúist svo mikið, að bi’ekkuskiðið viti beint niður brekkuna. 4) Nú réttir þú nokkuð úr þér og flytur þungann samfara bol- vindu til hægri yfir á vinstra skiði. Láttu bolvinduna byrja í öxlunum en síðan færast nið- ur á við allt niður i öklaliðinn. Gættu þess að halla þér vel frain, svo að skíðin renni ekki frá þér. 5) Vinstra skíðið, sem nú verður dalskíði heldur boganum á- fram, jafnframt þvi, að bol- vindan til hægri fylgir með og þunginn er allur á vins tra skíði. Þú beygir þig niður aft- ur. Hægra skíðið, sem enginn þungi huílir á, á að fylgja vinstra skíði eftir. Oddarnir eiga stöðugt að vera saman. Hægra skíði skal beitt þannig, að liægri hrún þess sé frekar beitt en þeirri vinstri, en bæði skíðin eiga nær þvi að liggja flöt á snjónum. ö) Plógstaða hægra skíðis er minnkuð smámsaman, unz Skíðin eru samhliða. Þú rennur nú skáhallt niður brekkuna, með brekkuna til liægi'i hand- ar. Gættu þess að hafa stöðugt framhalla. Þú getur nú hyrjað beygju til vinstri handar. Yfirlit yfir stemmubeygju til hægri 1. mynd. Þú rennur með sam- hliða skíðum skáhallt niður brekkuna. lítið eitt í plógstöðu. Allur þungi á hægra skiði. Bolvinda til vinstri.

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.