Íþróttablaðið - 01.06.1945, Page 16
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
8
„— Frostið oss herðir“. —
Axel okkar Andrésson liefur breitt öllum venj-
nm um æfingar knattspyrnu, þannig að vetur er
honurn ekki til truflunar eða jafnvel 10—15 stiga
frost, og þó höfuðskepnurnar taki enn í taum-
inn við og við, þá bregður liann sér inn í sal
ef hann er að finna,og tekur upp sitt þekkta
„kerfi“. þannig býður hann vetrinum byrgin.
Einhverjum kann nú að finnast þetta nokk-
uð öfgakennt, og í raun og veru heyri knatt-
spyrna aðeins sumrinu til.
Yið megum ekki gleyma því, að sumrin okk-
ar eru stutt og þessvegna verður að nota tímann
eins vel og liægt er. Að mínu áliti er hægt að
iengja sumarið allverulega.
Mörg undanfarin ár hefur verið hægt að stunda
reglubundnar æfingar úti frá byrjun apríl. En
það er eins með okkur og kríuna, hún kemur
vissan dag og við byrjum vissan dag fast og
reglubundið livað svo sem ráðleggingum og rök-
réttum athugunum líður.
Hvað á að gera á veturnar?
Þegar æfingum sleppir að haustinu til, á að
hvíla sig, safna vilja til næsta áhlaups. Láta knött-
inn eiga sig, forðast hann, þar til komið er frani
i janúar þá er þjóðráð að iðka leikfimi og það
lielzt leikfimi, sem teygir vöðvana og lengir þá,
því þeim hættir við að styttast á hörðum völlum,
en stuttir vöðvar eru óheppilegir íþróttamönnum,
sérstaklega þem er á þoli þurfa að lialda.
Ársæfingarlistinn mundi þá líta svona út: Byrja
sérstaka þjálfleikfimi í janúar. Halda henni þar
til í apríl. Iðka langar göngur þegar veður leyfir
þegar keniur fram í marz. Byrja útiæfingar af
krafti i byrjun apríl, þá fyrst hlaup og smátt og
smátt komast í snertingu við knött. Gera ráð fyrir
að toppþjálfunin sé komin í lok júní, frá þeim
tima má heldur draga úr æfingum, þó ekki mikið.
Gera má ráð fyrir að lialda út þar til í okt. og þá
hlaup á kvöldin eftir að dimma tekur. Síðan hvíld
þar til í janúar.
Að Iengja sumarið.
En hvernig á að lengja sumarið? Það á að gera
með því að byrj.a mun fyrr á vorin og balda leng-
ur út á haustin.
í Reykjavik t. d., og víðar er ég til veit, er varla
um æfingar að ræða eftir að komið er fram i
september þó keppt sé á sunnudögum út þann
mánuð. Erlendis eru keppnir þar til í nóv.—des.
og er eðlilegt að þar sé lengur möguleikar til
keppni, en myrkiir kemur þar eins og hér og tor-
veldar æfingar, en knattspyrnumennirnir láta það
ekki á sig' fá, þeir fara út á vellina á kvöldin og
hlaupa, þeir hlaupa til að balda sér í þjálfun.
Knattspyrnuaðferðin „gevmist“ betur, segja þeir.
Þessa aðferð væri hægt að taka upp hér ef nóg
yiljaþrek væri til.
Byrja fyr.
Hér liggur það i landi að byrja aldröi æfingar
fyrr en komið er fram í maí.
Þrátt fyrir allt.
Þrátt fyrir að við samþykkjum að lengja sum-
arið, láta það bvrja áður en vetri lýkur og
enda eftir að vetur befur sezt að, og Axel geri
Iitinn mun á vetri og. sumri i starfsemi sinni,
gleðjast allir yfir komu þess einmitt með tilliti
til birtunnar, lilýjunnar og þess að knattspyrnan
er í eðli sínu sumaríþrótt. Enda er komin hreyf-
ing á þann hnöttótta og menn farnir að raða
niður og þegar byrjaðir orusturnar um þennan
óþjála og óleiðitama vin. Sem því aðeins getur
orðið geðþekkur vinur, að með honum séu stöð-
ug kvöldstefnumót, en á það vill bresta og fylgja
því oft jafnvel liarma- og tregatár.
Mót ákveðin og þegar b.yrjuð.
Þegar þetta er skrifað er Tuliníusarmót-
inu í Reykjavik lokið og' sigraði Fram í þvi
eftir 5 drengilega leiki, og þvi vel að sigrinum
komið.