Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1945, Blaðsíða 30

Íþróttablaðið - 01.06.1945, Blaðsíða 30
22 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ Reykjavíkurstúlkurnar ú Skíðalandsmótinu. 2. Guðm. Benediktss. ÍBÍ 156,2 — 3. Haukur Benediktss. ÍBÍ 166,5 — 4. Finnur Björnsson ÍBA 177,9 — 5. Stefán Stefánsson ÍBB 182,3 — 6. Karl Sveinsson ÍBR 193,4 — 7. Hjörtur Jónsson ÍBR 212,8 — C-flokkur (önnur braut) : 1. Guðm. Samúelsson ÍBR 178,5 sek. 2. Þórður Kristjáns. ÍBÍ 165,5 — 3. Magnús Björnsson ÍBR 165,9 — 4. Hörður Ólafsson ÍBR 174,1 — 5. Einar I. Sigurðss. ÍBÍ 189,6 — 9 keppéndur luku leik. Hæð beg'gja brautanna var hin sama, 450 metrar, og tengd um 2 km., C-flokks brautin aðeins lengri. Snjóað hafði um nóttina og var fœri þvi þungt, sérstaklega á Tungudal. Srautin var í flatasta lagi á köfl- um, sérstaklega fyrir svo þungt færi. Virðist vera erfitt að finna hér brun- brautir, er hafa nægilega hæð og fjölbreytni. Ekki er vafi á þvi, að hér verður að setja allmikið af skyldu hliðum í brunbrautir, til þess að fá fram keppni, er svipar til bruns er- lendis, þar sem mikill hluti brautar- innar oft liggur um skóglendi. Um kvöldið sama dag var keppn- inni lokið með því, að íþróttabanda- lag ísfirðinga og Skíðaráð ísafjarðar héldu boð fyrir keppendur og starfs- menn mótsins. Stýrði hófinu Birgir Finnsson, formaður Skíðaráðs Isa- fjarðar, en Skíðaráðinu hafði verið falin framkvæmd mótsins. Fór mótið vel fram að öllu leyti, og gekk eftir áætlun eftir því, sem veð- ur leyfði. Af nýjum mönnum má sérstaklega nefna Strandamennina, sem eltki hafa áður tekið þátt í Skíðalands- móti. Má telja að þeir hafi náð góð- um árangri, sérstaklega i göngunni, en við hana hafa þeir sýnilega lagt mesta rækt. Áhugi manna á göngu hefir minnkað siðari árin og fáir nýir inenn komið þar fram á sjónar- sviðið frá því fyrsta er landsmót hóf- ust árið 1937, og eru þar enn fremst- ir i flokki þeir, sem þá voru með þeim beztu. Á Siglufirði er þó gang- an ávallt í hávegum höfð, og mun þar vera álitlegur hópur efnilegra göngumanna. Svipað má segja um stökkin og gönguna. Virðist nokkuð á það vanta, ef undan eru skildir fáeinir menn, að menn liagi þjálfun sinni vel. Sést þetta á stílnum. T. d. hafa mjög margir menn slæma spyrnu, og mun það stafa af þvi, að við æfingar reyna þeir að ná mikilli stökklengd með aukinni atrennu. Þar sem atrenna er takmörkuð neyðast menn til þess að æfa spyrnuna til þess að auka stökklengdina. Akureyringar hafa þvi allflestir góða spyrnu. Margir aðrir gallar eru mjög áberandi i stökkum flestra. Hvað stökkunum viðvíkur, þá voru þeir Jónas og Guðmundur einu mennirnir, sem höfðu 18. í stíl. Flest- ir hinna höfðu 16 eða lægra. í göngunni mun það vera svo, að margir ganga meira á kröptunum en kunnáttunni I svigi má sjá framfarir árlega. Meiri hluti A- og B-flokksmanna hef- ur nú leikni, sem skarar langt fram úr því, sem hér var til fyrir fimm árum síðan. Akureyringar og Sigl- firðingar virðast hér standa einna fremst, þótt vart megi á milli sjá. Var leiðrnlegt að þátttaka frá Siglu- firði skyldi ekki vera meiri. Hefði þátttaka þaðan aukið mjög gildi móts ins, þar sem Siglfirðingar eiga marga rneðal beztu skíðamanna okkar. ís- firðingar virðast heldur hafa dregist aftur úr siðari árin þótt skilyrði til æfinga séu liin ákjósanlegustu. Stafar þetta án efa nokkuð af þvi, að sumir hinna beztu skíðamanna þeirra hafa flutzt í burtu. Strax á fyrsta lands- móti mættu ísfirðingar með álitleg- an flokk göngumanna og ganga hef- ur ávallt síðan verið æfð nokkuð á ísafirði og í Skutulsfirði. Eru þar Tungubræður, þeir Sigurjón og Bjarni fremstir í flokki. Þá eru á ísa- firði þeir bræðurnir Haukur og Guð- mundur Benediktssynir mjög alhliða Leikstióri skíðamótsins, Steinþór Sig- urðsson að bera saman klukkur. Reynir Kjartansson.

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.