Íþróttablaðið - 01.03.1966, Síða 3
26. árg.
Reykjavík, marz 1966
2. tbl.
Benedikt Jakobssons
ÞREKÞJÁLFIJIM HANDKIMATTLEiKSMANINIA
Handknattleiksmenn og hand-
knattleikskonur verða fyrst til
að tileikna sér þrekpróf. Það
hefur fylgt þeirri íþrótt, allt
frá því að hún hóf göngu sína,
ákveðinn dugnaður og vilji til
að æfa og standa sig. I sam-
ræmi við þá viðleytni var það
raunar eðlilegt, að handknatt-
leiksfólkið tæki þeirri nýjung
vel, sem þolprófin voru.
Þolprófin leiddu það í ljós á
áþreifanlegan og skiljanlegan
hátt strax og farið var að nota
þau árið 1958, að þrek, ekki að-
eins handknattleiksfólks, heldur
íþróttamanna almennt, og að
sjálfsögðu einnig almennings,
var lakara en æskilegt er talið.
Porráðamenn handknattleiks-
mála tóku málið þegar föstum
tökum og hófu þrekæfingar í
íþróttahúsi Háskólans.
Þrekmælingum var haldið
áfram næstu ár, nokkuð reglu-
bundið, og þrekæfingum einnig.
Þessar ráðstafanir urðu eflaust
meðal annars til þess að íslenzk-
um handknattleik jókst svo
Benedikt Jakobsson
fiskur um hrygg, að hann varð
að sterkustu hóp-íþrótt Islend-
inga og það enn þótt ekki hafi
tekist að halda alveg í horfinu.
Hin kappsamlega þjálfun
handknattleiksmanna og
kvenna og markvissa prófun á
getu og þoli létu ekki standa á
árangri, því árið 1961 urðu ís-
lenzku handknattleiksstúlkurn-
ar aðrar á N. M. og piltarnir
fimmtu á H. M.
Þegar ákveðnum áfanga er
náð, eins og þeim t. d. að kom-
ast í fremsu raðir í handknatt-
leik, er að sjálfsögðu erfitt að
halda stöðu sinni og sínu erfið-
ara að sækja enn fram til stærri
sigra. Allar aðrar þjóðir sækja
að sama marki eða því að ná
sem lengst. Til að geta tekið
þátt í milliríkjakeppni í hand-
knattleik með góðum árangri
þarf meðal annars:
1) Að nægilegt húsrými sé
fyrir hendi til að æfa og
þjálfa í.
2) Að þjálfun fari fram á
heppilegum tíma dags og að
auðvelt sé að sækja þjálfun-
artímana.
3) Að svo stór hópur afreks-
manna æfi að vandi sé jafn-
an að velja í lið og að 3—4
varamenn séu jafnvígir til
hverrar leikstöðu.
4) Að í unglingaliði sé að
minnsta kosti sama breidd
og að sjálfsögðu helzt meiri
í landsliði.