Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1972, Side 3

Íþróttablaðið - 01.02.1972, Side 3
Ritstjórnarspjall I yfirgripsmikilli ræðu, er Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, flutti við móttöku gesta á 60 ára afmceli sambandsins 28. januar sl. ræddi hann ítarlega um fjármál íþróttahreyfingarinnar. Lagði hann ríka áherzlu á, að því fjármagni sem ISI hefði yfir að ráða, þyrfti að beina i sem ríkustum meeli til þeirra aðila, þar sem íþróttastarfsemin ætti sér fyrst og fremst stað, auka íþrótta- og ungmennafélaganna sjálfra. Forseti ÍSÍ kvað sérsamböndin þurfa verulega fjárrnuni til starf- semi sinnar og aðeins fá þeirra hefðu aðstöðu til að afla fjár á eig- in vegum. Það hefði fyrst verið fyrir 5 árum að ISI hefði getað veitt sérsamböndunum fjárhagslegan stuðning. Hefði sú upphæð numið kr. 400.000,00 árið 19J0 og /.7 millj. króna á s. I. ári. Hefði þetta fyrst og fremst verið hœgt vegna aukningar í starfsemi Getrauna. Um héraðssamböndin sagði forseti ÍSÍ, að sum þeirra a. m. k. yrðu trauðla rekin nema með launuðum starfskrafti, þótt ekki væri nema hluta úr degi. Kœmi þar tvennt til. Bæði vœri starfsemin margþætt, þegar innan héraðssambandanna væru kannski mörg fé- lög og sérráið og auk þess hagaði víða þannig til landfrœðilega, að yfirráðasvæði héraðssambandanna næði yfir mörg héruð. Við slíkar kringumstæður væri vart liægt aðœtlast til þess að stjórnir héraðs- sambandanna gætu sinnt stjórnarstörfum sem skyldi, enda þótt vit- að vœri að margir hefðu lagt á sig ótrúlega fyrirhöfn í þessu sam- bandi við hin erfiðustu skilyrði. Fjárhagsaðstoð ISI við héraðssam- böndin nam á s. I. ári kr. 500.000,00. Forseti ÍSÍ kvað brýna nauðsyn á að auka þessa upphæð verulega. Vonaðist hann til að hún gæti tvö- faldast á yfirstandandi ári. Starf héraðssambandanna og íþróttafé- laganna i hinum ýmsu byggðalögum vœri eitt virkasta framlag sem um væri að ræða til eflingar heilbrigðu tómstundastarfi. Fjárstuðningi við sjálf félögin taldi forseti ISÍ að þyrfti að koma í fast form, t. d. þannig að kostnaður við rekstur félaganna, svo sem kennaralaun, húsaleiga og annar kennslukostnaður, yrði greiddur 70% af sveitarstjórnum, 30% af rikinu og 40% af félögunum sjálf- um. Hér þyrfti að koma til góð samvinna hlutaðeigandi aðila, byggð á gagnkvæmu trausti og trú á gildi íþróttanna fyrir fólk á öllum aldri. Hin aukna fjárveiting til íþróttasjóðs, samkvæmt fjárlögum yfir- ÍÞRÓTTA BLAÐIÐ Útgefandi: íþróttasamband islands Ritstjóri: SigurSur Magnússon Afgreiðsla: Skrifstofa isi íþróttamiSstöðinni í Laugardal Sími 30955 Prentun: Víkingsprent Verndari ÍSÍ: Forseti islands, dr. Kristján Eldjárn Framkvæmdastjórn ÍSÍ: Gísli Halldórsson, forseti Sveinn Björnsson, varaforseti Þorvarður Árnason, ritari Gunnlaugur J. Briem, gjaldkeri Hannes Þ. Sigurðsson, fundarritari Framkvæmdastjóri ÍSÍ: Hermann Guðmundsson Héraðssambönd innan ÍSÍ: Héraðssamb. Snæfells- og Hnappadalssýslu Héraðssamband Strandamanna Héraðssamband Suður-Þingeyinga Héraðssamband Vestur-ísfirðinga Héraðssambandið Skarphéðinn íþróttabandalag Akraness íþróttabandalag Akureyrar íþróttabandalag Hafnarfjarðar íþróttabandalag ísafjarðar iþróttabandalag Keflavíkur iþróttabandalag Ólafsfjarðar iþróttabandalag Reykjavíkur iþróttabandalag Siglufjarðar íþróttabandalag Suðurnesja iþróttabandalag Vestmannaeyja Ungmenna- og iþróttasamband Austurlands Ungmennasamband Austur-Húnvetninga Ungmennasamband Borgarfjarðar Ungmennasamband Dalamanna Ungmennasamband Eyjafjarðar Ungmennasamband Kjalarnessþings Ungmennasamband Norður-Þingeyinga Ungmennasamband Skagafjarðar Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu Ungmennasambandið Úlfljótur Sérsambönd innan ÍSÍ: Badmintonsamband íslands Fimleikasamband íslands Frjálsiþróttasamband islands Glímusamband islands Golfsamband fslands Handknattleikssamband íslands Knattspyrnusamband islands Körfuknattleikssamband islands Skíðasamband islands Sundsamband íslands ÍÞRÓTTABLAÐIÖ 35

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.