Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1972, Síða 4

Íþróttablaðið - 01.02.1972, Síða 4
standandi árs, vceri öllu íþróttafólki fagnaðarefni. Með slíku áframhaldi mœtti búast við myndarleg- um átökum í byggingu íþróttamannvirkja, sem vceri ein undirstaðan fyrir því, að virkt iþrótta starf nceði að þróast. Um fjármál Iþróttasambandsins sjálfs og þar með getu þess til að aðstoða hina ýmsu aðila inn- an sambandsins, sagði. hann að þáttaskil hefðu orð- ið 1964, þegar sambandið byrjaði að fá tekjur vegna vindlingasölu, skv. ákvörðun Alþingis. Síð- ar hefði komið til landshapþdrcetti ISI, er hefði gefið góða raun framan af og síðan starfsemi Get- rauna, i samvinnu við aðra aðila. Um getrauna- starfsetnina sagði forseti ÍSÍ: Getraunir hafa nú runnið sitt bernskuskeið og sannað áþreifanlega tilverurétt sinn í núverandi rekstrar- og tekju- skiþtingarformi. Sérlega er ánægjulegt sjálfboða- starf hundruða manna og kvenna. við sölu get- raunaseðlanna. Þar er um að rceða undirstöðuna að því hve vel gengur. Það er því brýn nauðsyn á, að Getraunir fái rekstrarleyfi sitt framlengt án nokkurra breytinga í 5—10 ár, svo að gott svig- rúm fáist til áframhaldandi uppbyggingar og mót- unar á rekstrinum. Ekki mun nokkur vafi á, að íþróttafólk um land allt tekur undir framanrituð ummceli for- seta ISI. Knattspyrnufélagið Týr í Vestmannaeyjum hélt hátíðlegt 50 ára afmæli sitt í nóvember s.l. Var afmælisfagnaðurinn fjölsóttur og vel heppnaður að öllu leyti. Við þetta tækifæri voru fjórir menn sæmclir heiðursmerkjum fyr- ir störf þeirra í þágu félagsins. íþróttabandalag Vestmannaeyja særndi Eggert Sigurlásson gull- merki ÍBV og Martein Guðjónsson silfurmerki ÍBV. Einnig voru Eggert Sigurlásson, Karl Jónsson og Martein Tómasson sæmdir gullmerki ÍSÍ. Allir hafa þeir um áraraðir lagt rnikið af nrörkum til eflingar íþróttalífi Vestmannaeyja, bæði sem þátttakendur í ýmsum greinum íþróttanna og með því að gegna ábyrgðar- og trúnaðarstörfum hjá Knattspyrnufélaginu Tý. Sveinn Björnsson varaforseti ISI sótti afmælishófið og flutti fé- laginu árnaðaróskir og kveðjur Iþróttasambands íslands. Á myndinni hér að ofan er hann að sænra Eggert Sigurlásson t. h. og Martein Tónrasson t. v. gullmerki ÍSÍ en Karl Jónsson gat ekki verið viðstaddur sökum veikinda. FORSÍÐUMYND: íþróttasýningunni í Laugardals- höllinni í tilefni 60 ára afmælis ÍSÍ, lauk með því að þátttakend- ur röðuðu sér á gólfið eins og myndin sýnir og fánaberi kveður. Myndirnar frá afmæli ÍSÍ eru tekn- ar af ljósmyndastofu Þóris, nema myndirnar úr íþróttahöllinni. Þær eru teknar af Kr. Ben. og Bjarnleifi. 36 ÍÞRÓTTABLAÐIÐ

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.