Íþróttablaðið - 01.02.1972, Page 6
Um eftirmðdaginn 28. janúar hafði
stjórn ÍSÍ móttöku í Tjarnarbúð fyr-
ir velunnara sambandsins og: komu
þangað á annað hundrað gestir.
Við það tækifæri sæmdi Birgir Kjar-
an, form. Olympíunefndar, forseta
ÍSÍ, heiðursmerki Olympíunefndar
íslands. Áður hefur þetta merki að-
eins verið veitt formanni Alþjóða
Olympíunefndarinnar.
Albert Guðmundsson, form. KSÍ,
sæmdi forseta ÍSÍ heiðursmerki
Knattspyrnusambandsins og afhenti
um leið gjöf frá sérsamböndum inn-
an ÍSÍ.
Stefán Runólfsson, form. IBV, af-
henti málverk að gjöf frá héraðs-
samböndum innan ÍSÍ.
Einnig tóku til máls, fluitu árnað-
aróskir og færðu gjafir: Jón Ás-
geirsson, form. Félags íþróttafrétta-
ritara, (efri mynd) Úlfar Þórðarson,
form. ÍBR (neðri mynd),
38
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ