Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1972, Síða 14

Íþróttablaðið - 01.02.1972, Síða 14
Páll Gíslason, læknir: Ur þættinum Um daginn og veginn Fyrr í vetur flutti Páll Gíslason, lœknir og skáta- höfðingi erindi í útvarpið um „Daginn og veg- inn“. Hann kom víða við og birtir Iþróttablaðið hér á eftir þi kafla, sem einkum eiga erindi inn á síður þess. Um heilsugœzlu sagði lceknirinn m. a.: ,,Það er enginn vafi á, að hér á Islandi eigum við nú á næstu árum við vaxandi vandamál að etja, þegar fólki fjalgar tiltölulega í eldri árgöng- urn, en hefur lifað mestan hluta ævi sinnar á tím- um alls nægta í fæðu og við kyrrsetu. Áður fyrr stunduðum við flestir erfiðisvinnu í fyllstu merk- ingu þess orðs. Menn fóru fótgangandi, ef þeir fóru í ferðir, árarnar sáu um erfiði sjómannsins og frumstæð aðstaða sá um erfiði konunnar innan húss og utan. Matur var oft af skornum skammti, svo að líkaminn sá um að inntaka fæðu og eyðsla líkamans stóðst nokkuð á. Og þó að segja megi roargt miður um dönsku einokunarverzlunina, þá er eitt víst, að ekki muldi hiin undir Islendinga óþarfa mjölfæði og sykur til að skemma tennur þeirra. Nú borðurn við flest full mikið og sam- setning fæðunnar er ekki sem heppilegust, en mestu veldur þó sennilega of lítil hreyfing og líkamleg áreynsla, sem veldur svo aftur óeðlilega snemma hrörnun á líkamanum og minnkandi þoli og mótstöðu gegn ýrnsurn sjtikdómum.“ í framhaldi af þessu ræddi læknirinn um trimm- starfsemina og sagði í því sambandi: ,.ÍSÍ ýtti duglega úr vör á þessu ári og er sýni- legt að töluverður ætlar árangurinn að verða, því að aukin notkun sundstaða og annarra íþrótta- staða ber með sér, að margir hafa tekið við sér. En ég held, að það sé nauðsynlegt að halda tit- breiðslu hollrar hreyfingar fyrir almenning á lofti af og til, því að manni hættir til að dofna í áhug- anum og þreytast á sprettinum og þá er alltaf að finna einhverja ástæðu til að hvíla sig. Það þarf líka að benda fólki á fleiri ráð, en hinar viður- kenndu íþróttagreinar, því að gönguferðir t. d. með smá spretthlaupi eftir eigin geði og getu, eru vel fallnar til að þjálfa sig, jafnframt því að mað- ur kynnist landi sínu. Víðast á landinu er auð- velt að koma þessu við, því að við eigum því láni að fagna að búa svo rúmt. Hér í Reykjavík og nágrenni er ekki eins auðratað að finna slíkar slóð- ir og væri áreiðanlega vel þegið af mörgum, ef fróðir menn, t. d. á vegum Ferðafélagsins, gæfu út leiðbeiningabók í þessu skyni. Enda þótt við skiljum gagnsemi trimmsins, held ég að það verði 46 ÍÞRÓTTABI.AÐIÐ

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.