Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1972, Side 16

Íþróttablaðið - 01.02.1972, Side 16
Ungmenna- samband Borgarfjarðar 50 ára Hinn 16. janúar s.l. hélt UMSB 50. ársþing sitt að Leirár- skóla í Borgarfirði. Þingforseti var kjörinn Sigurð- ur Guðmundsson, skólastjóri Leirárskóla og varaforseti Jón F. Hjartar. Þingritarar voru kjörn- ir Hjörtur Þórarinsson, Kjartan Sigurðsson og Ólafur Guðmunds- son. Mæting á þinginu var afar góð og þinghald að öllu leiti mcð miklum myndarbrag. Forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson og framkvæmdastjóri, Hermann Guðmundsson, sóttu þingið ásamt ritstjóra Iþróttablaðsins, einnig formaður UMFI, Haf- steinn Þorvaldson og framkvstj. Sigurður Geirdal auk Pálma Gíslasonar í stjórn UMFI. Á næstu síðum eru nokkrar svipmyndir frá þinginu. Sambandsstjóri UMSB, Vil- hjálmur Einarsson skólastjóri í Reykholti setti þingið með ýtar- legri ræðu, jafnframt lagði hann fram skýrslu stjórnar UMSB. Bar hvoru tveggja með sér að feikilega mikið starf hefur ver- ið unnið á vegum sambandsins og aðildarfélaga þess. Hinar ýmsu fastanefndir gerðu grein fyrir störfum sínum og í ársskýrslunni er einnig greint frá helztu viðfangsefnum aðild- arfélagana. Einnig eru birt úr- slit í íþróttamótum, sem frarn fóru á sambandssvæðinu og greint frá þátttöku í mótum ut- anhéraðs, bæði innanlands og ut- an. UMSB starfrækti sumarbúðir að Leirárskóla og í Reykholti. Sambandið er ennfremur aðili að byggingu Byggðasafns Borgar- fjarðar. I skýrslu stjórnarinnar er fjall- að um fimmtu Sumarhátíðina að Húsafelli s.l. sumar. Sam- kvæmt reikningum UMSB eru tæplega 90% af heildartekjum sambandsins hagnaður vegna sumarhátíðarinnar. Hér er um viðamestu og jafnfram áhættu- sömustu útiskemmtun á land- inu að ræða. Vilhjálmur Einarsson, sam- bandsstj. UMSB. segir í skýrslu sinni m. a. svo um sumarhátíðina. ,,UMSB hefur kappkostað að bæta sífellt aðstöðuna, nú síðast með um 400 þús. kr. auk- inni fjárfestingu, sem vonandi kernur framtíðinni til góða. Við höfum ekki viljað valda gestum okkar vonbrigðum, og höfum ekki viljað lofa meiru, en við gætum staðið við. I il marks um þetta nægir að nefna helztu út- gjaldaliði s.l. móts: 1. Skemmtikraftar 900.000 2. Löggæzla 700.000 3. Landeigandi 400.000 4. Ymsar launagreiðslur 250,000 5. Söluskattur 350.000 6. Hliðvarzla 110.000 7. Auglýsingar 130.000 Af þessu sést að mikið er í húfi að nægilega margir gestir komi og greiði aðgangseyri, svo að endar nái saman. Ovissan um gestafjölda vegna veðurs liefur verið nefnd, Auk þessa bættist s.l. sumar við óviss þátt- ur, sem af öðrurn toga er spunn- inn: Uppfærzla á samkomum, sem höfða til fjöldans, án þess að nein sambærileg vinna sé lögð í undirbúning eða hverskyns við- búnað. Það eina, sem sambæri- legt mætti kallast voru auglýs- ingar og fréttir í fjölmiðlum, sem virðast svo helteknir af eins konar hlutleysisstefnu eða „jafn- aðarmennsku" að ekki megi greina satt og rétt frá staðreynd- um. Ekki minnkar óvissan um Framh. á bls. 50 48 fÞRÓTTA B LAÐIÐ

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.