Íþróttablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 24
10. Stigið fram í v. fót, hægra fæti sveiflað bein-
um, fram, upp, Stigið fram í h. fót, vinstra
fæti sveiflað beinum, fram, upp.
11. Stigið fram í v. fót og fætur færðir saman,
/ snúningur og tilhlaup (atrenna) kraftstökk.
Þar á eftir frjáls lokastaða (slutstilling).
Sláarœfing
1. Aðhlaup (atrenna) og uppstökk meðfram hlið
sláarinnar, setið á hækjum á slá. Staðið upp
og snúið (4 úr hring, um leið eru armar
hreyfðir fram — upp og út.
2. Stigið í skref fram í v. fót, h. fótur dreginn
að og hoppað upp af v. fæti.
Stigið í skref fram í h. fót, v. fótur dreginn
að og hoppað upp af h. fæti.
3- Stigið frarn í v. fót, h. fæti sveiflað heint fram.
sezt niður á slá, kollhnís aftur á bak. höfuð
við hlið sláar, kollhnís endar á v. hné og h.
fótur teygður vel aftur.
Staðið upp með því að stíga í h. fót. stigið i
skref fram í v. fót og snúið (4 snúning (piro-
utte) til v hliðar.
Stigið fram í h. fót og armar færðir lágt fram
(lavræk).
4. Stigið fram í v. fót, skiptispor (v., h., v.,) stig-
ið fram í h. fót og hoppað galopphopp, (báð-
um hnjám lyft lárétt fram. neðri hluti leggj-
ar snýr á ská fram) komið niður á v. fót.
5. Stigið fram í h. fót, svo í v. fót og komið upp
í jafnvægisstöðu á v. fót.
6. Stigið fram í h. fót og hoppað fram á hækjur
(hugsiddende), '4 snúningur á hækjum og
viðstöðulaust í kollhnís fram á við.
7- Staðið upp yfir v. fót og þungaflutningur yfir
á h. fót. 2 skref áfram, v. fótur, h. fótur og
stórt hlaupstökk, komið niður á v. fót.
8. Atrenna (skref eins og passar fyrir hvern og
einn) og handahlaup út af slá.
I. Kollhnís aftur á bak m. höfuð við hlið á slá:
Byrjið með hendur undir slá, látið fætur beina
yfir höfuð, þar til þið sjáið þá.
Snúið höndum að efri brún sláar, beygið
annað hné og setjið það á slána, teygið úr
handleggjum og horfið beint fram.
II. Kollhnís áfram:
Báðar hendur ofan á slá. um leið og höfuð
kemur við slána, flytjið þið hendur að neðri
brún sláar og þrýstið handleggjum fast að
höfði.
I sláaræfingunni hafa armhreyfingar ekki ver-
ið teknar fram þær eru frjálsar fyrir keppanda.
Þjófastökk: — Bogahestur þversum (ca 6.—7. gat)
stökkbretti nokkuð langt frá hestinum, dýna.
Atrenna, annar fótur kemur á brettið og spyrnt
kröftuglega frá (þungi nokkuð aftarlega), hinum
fætinum sveiflað upp og yfir hestinn, en þar koma
fætur saman. Þegar fætur og mjaðmir eru komn-
ar framfyrir hestinn, er höndum stutt á boga og
ýtt vel frá, um leið xéttist að fullu úr líkamanum.
Jafnfætis viðnám langt frá hestinum.
SKYLDUÆFINGAR KARLA
T víslá-
1. Hlaupkippssveifla upp í stuðningshang við
enda tvíslár. Gildi 2.0 st.
2. Há aftursveifla. framsveifla í gegnum stuðn-
ing með bognum örmum, hopp áfram (rétt
úr örmum í framsveiflu, hoppað og endað í
bognum örmum) aftursveifla í gegnum stuðn-
ing með bognum örmum upp í axlarstöðu.
Gildi 1.5 st.
3. Axlarvelta áfram, afturkippur upp í beina
arma. Gildi 1.5 st.
4. Framsveifla, bakfall í upphandleggsstuðning,
upphandleggskippur. Gildi 1.0 st.
5. Afstökk úr aftursveiflu með / snúningi til
hægii. Endað standandi með hægri hlið að
tvíslá. Hægri hendi stutt við tvíslá. Gildi
1.0 st.
Gildi alls 7.0 stig.
Helztu gallar: Frádregið
1. a. Ekki rétt að fullu úr líkama áð-
ur en kippsveifla er tekin .... o.1-0.5 st'
b. Fætur eru of lágir í síðasta hluta
kippsins ...................... 0.1-1.0 —
2. a. Of lág aftursveifla eftir kipp-
56
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ