Íþróttablaðið - 01.02.1972, Page 28
Hjalti Einarsson með hinn
veglega verðlaunagrip
er fylgir sæmdarheitinu
„íþróttamaður ársins“
Steinar J. Lúðvíksson:
Hafði sykurmolana með til — rætt við Hjalta Einarsson, „íþróttamann órsins öryggis 1971"
Komið er að leikslokum í hand-
knattleikslandsleik fslendinga
við rúmensku heimsmeistarana
í íþróttinni, er fram fór í Laug-
ardalshöllinni. Áhorfendasvæðið
er fullskipað, og þeir sem voru
svo heppnir að fá sæti, eru staðn-
ir upp í æsingnum. Það ótrú-
lega hefur skeð. fslenzku piltarn-
ir hafa hvergi gefið heimsmeist-
urunum eftir og staðan í leikn-
um er jafntefli. Bæði liðin hafa
skorað 14 mörk. En tekst okkar
piltum að halda jöfnu við heims-
meistarana? Þeir eru með bolt-
ann og eiga því möguleika á
sigurmarkinu. En hvergi er
smugu að finna á íslenzku vörn-
inni og að baki hennar, í rnark-
inu, stendur Hjalti Einarsson,
sem varið hefur frábærlega vel.
Fyrir leikinn hafði hann verið
heiðraður með blómagjöf, fyrir
að nú leikur hann sinn 50. lands-
leik og er fyrsti íslendingurinn,
sem nær því marki.
Öryggið er horfið úr leik
heimsmeistaranna. Það er erfitt
fyrir þá að sætta sig við jafntefli
í þessum leik. Þeir vita, sem er,
að í heimalandi þeiiæa er beðið
eftir fréttum af úrslitum leiksins.
og landar þeirra gera kröfur um
sigur. Svo skeður það skvndilega
að íslendingarnir ná boltanum,
bruna upp og komast í skotfæri.
En rúmenski markvörðurinn
sannar að hann er enginn aukvisi
og ver skotið, og aftur eru heims-
meistararnir í sókn. Nú eru að-
eins nokkrar sekúndur til leiks-
loka, og skyndilega kernur smá-
glufa í íslenzku vörnina, sem
einn af sóknarleikmönnum
heimsmeistaranna er ekki lengi
að koma auga á. Hann smvgur
inn af línunni og er í sannköll-
uðu dauðafæri. Og skotið ríður
60
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ