Íþróttablaðið - 01.02.1972, Blaðsíða 33
gerðist einmitt á 19. afmælis-
degi mínum en þá fór Bikar-
keppni SSÍ fram í Sundhöllinni
(stutt braut) og ég synti 200 m
skriðsund á 2.06.0 en met Guð-
mundar Gíslasonar var 2.08.0.
Daginn eftir setti ég svo met
í 100 m skriðsundi á sömu braut,
synti á 55.6 sek.
Þessi met hefur Finnur bætt
margoft síðan og fslandsmet
hans eru nú þessi og hafa öll ver-
ið sett á s.l. ári:
Stutt Löng
5° m 25.2
100 m 54.9 55-8
200 m 2:05.6 2:07.6
Finnur Garðarsson er sonur
hiónanna Garðars Finnssonar
skiostióra 02; útgerðarmanns og
Guðnviar Matthíasdóttur. Finn-
ur á fimm systkini. Ekkert beirra
hefur laert sund fyrir síq;. en
kunna bó öll að fleyta sér oq:
einnig foreldrar Finns. Revnd-
ar taka svstkini Finns ekki bátt
í neinum íbróttaæfineum, nema
vnesti bróðir hans. sem verið
hefur dálitið með í handboba.
— Það var fyrst og fremst
árangurinn á mótunum. sem é<t
fékk að taka þátt í í Revkiavík
sem áhugann skapaði hiá mér.
saeði Finnur. Ef við strákarnir
á Akranesi hefðnm ekki verið
sendir til keopni í Revkiavik.
hefðum við kannski aldrei ílenzt
í snndinu. saeði Finnur.
Svo kom ég til vinnu í Revkia-
vík sumarið 1968 og eekk þá í
Ægi 02 æfði þar. Um haustið
settist ég í Menntaskólann í
Reykiavík og þá um haustið
flutti öll fiölskyldan hingað til
Revki’avíkur.
Ég er mjög ánægður með þiálf-
ara minn undanfarin ár. Guð-
mund Harðarson. Hann er sér-
lega áhugasamur og einstaklega
næmur að mínum dórni og fylg-
ist sérlega vel með hverjum og
einum af nemum sínum. Fg á
honum mikið að þakka og tel
alls ekki skorta á í þjálfun okk-
ar sundfólksins. Guðmundur
hefur stundað nám í Bandaríkj-
unum og að mínum dómi tek-
izt frábærlega vel að nýta sér
það og flytja sína kunnáttu yfir
til okkar, sem í sundinu erum
nú.
Ég tel að við sem teljumst til
bezta hópsins í sundinu hér æf-
um svipað og bezt gerist t. d. á
Norðurlöndum og á Bretlands-
eyjum en það eru þau lönd sem
við frekast kcppum við. Við eig-
um ,,toppa“ mjög svipaða og
þeir. Meginmunurinn er að hér
vantar fleira fólk.
— Hvernig er æfingaáætlun
ykkar nú?
— Við æfum flest 2 tíma á
dag, sex daga í viku. Æfingarn-
ar eru frá kl. 7 til rúmlega 9 á
hverju kvöldi á veturna, en þá
er flest af sundfólkinu við nám.
Á sumrin er breytt til og æft
tvívegis á dag; klukkustund fyr-
ir vinnutíma eða frá 7.30 þá er
laugarnar opna til 8.30, og síð-
an aftur síðdegis.
— Og verkefnið á hverri æf-
ingu?
— Það er mjög breytilegt. En
yfirleitt syndum við um 5—6
k'lómetra. Æfingin hefst með
upphitun og eru þá syntir kann-
ski um 1000 metrar. S ðan skipt-
ir þjálfarinn hópnum eftir því
hvort um er að ræða sprettsund-
fólk eða þá er lengri sund iðka.
Síðan kemur ,,syrpa“ sem þjálf-
arinn ræður og er mjög mismun-
andi. Getur þar verið um að
ræða að synda 12 sinnum 200
m sprett með lítilli hvíld á milli.
eða 3—4 sinnum 800 metra, eða
e. t. v. 20 sinnum 100 m sprett
og fólki uppálagt að synda hverja
vegalengd á ákveðnum tíma og
Finnur er orðinn vanur efsta þrepi verðlaunapallsins. Hér er hann að taka
í hönd Sigurðar Óiafssonar (Æ) en hinsvegar er Elvar Ríkharðsson frá
Akranesi. — Myndin er tekin á Reykjavíkurmótinu í fyrra.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
65