Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 35

Íþróttablaðið - 01.02.1972, Qupperneq 35
í síðasta tölublaði íþróttablaðs- ins birtist fyrri hluti samtals við Þorstein Einarsson, íþróttafull- trúa. Síðari hluti samtalsins fer hér á eftir. Jafnframt því að vera íþrótta- fulltrúi, ert þú framkvœmda- stjóri Félagsheimilasjóðs og einn- ig hefur þú haft náin samskipti við hina frjálsu íþróttastarfsemi, bœði ÍSÍ og UMFÍ. Hver er reynsla þín i þessum efnumf Fljótlega eftir að ég tók til starfa kynntist ég fólkinu víða um landið og komst þá einnig í kynni við það mikla aðstöðu- leysi, sem blasti alls staðar við. bæði til íþróttaiðkana og annars félagslífs. I samkomuhúsum stóð fólkið oft í norpandi kulda. Eng- in fatageymsla var, smá eldhús- kytra e. t. v. í kjallara, kaggasal- erni úti o. s. frv. Heldur ömur- legt í alla staði. Ósamboðið fé- lagslyndu fólki. íþróttanefnd ríkisins gerði grein fyrir þessu til Alþingis, 1945 og 1946. Allir virtust gera sér ljóst, að hér þurfti að ráða bót á. Voru þá sett lögin um Fé- lagsheimilasjóð, og að hann fengi tekjur sínar af skemmtanaskatti. Félagsheimilasjóður styrkir bygg- ingu félagsheimila með fjár- framlagi sem nemur 40% af byggi ngakostnaði. Frá því sjóðurinn tók til starfa hafa verið fullbyggð 132 félags- heimili. Hefur sjóðurinn gert upp við 65 þeirra, en endanlega er ekki búið að gera upp við 67. I sm'ðum eru um 40 félagsheim- ili. Það hafa oft heyrzt raddir um að starfsemi í félagsheimilum sé ábótavant. Þar vanti allan menn- ingarbrag o. s. frv. Við sem bet- ur þekkjum til, vitum að margt hljóðlátt starfið fer þar fram. sem ekki er talað um. Og ef að er gáð, kemur í ljós, að hvergi í félagsheimilum fer nýtingar- tími vegna dansleikja yfir 20%. Félagslegt átak fólksins hefur verið mikið við smíði félagsheim- ilanna. t. d. kosta þau 67 félags- heimili. sem enn er óuppgcrt við 340 millj. kr. Þátttaka sjóðsins áætluð um 130 millj. kr. og skuldar sjóðurinn nú af því fram- lagi 51 millj. kr. Meðan við ræðum um félags- heimilin, spyrjum við íþrótta- fulltrúa hvort hann álíti að hin félagslega hlið i starfsemi íþrótta- hreyfingarinnar hafi farið hall- oka fyrir kepþnum og metum, sem starfið snýst mikið um. Eg er hálfhræddur um það. Ég sagði fyrir nokkru við Reyni Karlsson, nýskipaðan æskulýðsfulltrúa ríkisins, að enda þótt ég hefði margar góð- ar óskir honum til handa, væri þó ein öðrum framar: Að hon um yrði ágengt í því að ná upp fundastarfseminni, fá unga fólk- ið til að koma saman, tala sam- an og tjá skoðanir sínar. Fá alla til að vera með í félagslegu starfi. Slík félagsstarfsemi þjappar ungu fólki saman til heilbrigðra samskipta, eyðir feimni og ófram- færni, heldur því frá óæskileg- um viðfangsefnum. Við þetta opnast líka aukin innsýn í það félagslega grund- vallarstarf, sem allt annað bygg- ist á. Og aukin þekking fólksins sjálfs á íþróttahreyfingunni og náin samskipti, leiða til árangurs- ríkara og þroskavænlegra starfs. Samskipti mín við ISI og UMFI hafa verið mjög mikil, segir íþróttafulltrúi. og þar væri frá mörgu að segja. Eins og áður er fram komið, gerði ég strax mikið að því að ferðast um landið og kynnast fólkinu. Þá komst ég í náið sam- band við ungmennafélögin og það margvíslega starf sem þar er unnið. Sambandsstjóri UMFÍ þá, var séra Eiríkur J. Eiríksson, skólabróðir minn og fornvinur. En ég sneri mér fyrst og fremst að hinu íþróttalega starfi og ég á feikilega margar endurminn- ingar þar að lútandi, sem ekki eru tök á að gera hér nokkur skil. Mörg af þessum verkefn- um voru erfið viðfangs. ekki s.'zt skipulagsmál íþróttahreyfingar innar. Ég minnist þess sérstak- lega hversu stofnun Héraðssam- bandanna var stundum rnikið átakastarf, reglulega erfitt og viðkvæmt á köflum. En þegar á heildina er iitið, eru þessi viðfangsefni, samstarf- ið á fundum og þingum, smærri og stærri mótum, með þeim mörgu mætu mönnum, sem þar komu við sögu, eitt af því sem ég hefði ekki viljað fara á mis við. Ekki mundi ég óska neinum íþróttafulltrúa þess frekar, en að vera í nánum tengslum við hið frjálsa áhugastarf innan vébanda ÍSÍ og UMFÍ. Sá sem nýtur stuðnings forystumannanna í þessum fjölmennu og grónu sam- tökum, stendur ekki einn. Að lokum Þorstemn. Stundar þú sjálfur likamsæfingar að stað- aldrif Já, það geri ég. Upphaflega var það ætlun mín að verða fisk- iðnfræðingur. Fór ég áleiðis til náms í Kanada í því skyni 1933 og var fyrsti Islendingur, sem fékk styrk úr svonefndum Snorra- sjóði, er Vestur-íslendingar stofn- uðu 1930. En veður skipast oft fljótt í lofti. Ég veiktist og varð ég að ÍÞROTTABLAÐIÐ 67

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.