Íþróttablaðið - 01.03.1978, Qupperneq 5
I blaðinu
Rall
í langan aldur hefur kappakstur á venjulegum fólks-
bifreiðum — rall — verið mjög vinsæl íþróttagrein
erlendis, og er hún nú að ryðja sér til rúms hér á
íslandi og eigum við þegar ágæta rallökuþóra. Bryn-
jólfur Helgason rekur í grein í blaðinu það helzta sem
gerzt hefur í rallmótum erlendis að undanförnu og
rifjar einnig upp stöðuna í „Grand Prix“
kappakstrinum.
Óskar Jakobsson:
Öskar Jakobsson er tvímælalaust einn bezti frjáls-
íþróttamaður Islands um þessar mundir — fjölhæfur
og sterkur kastari, sem vafalaust á eftir að ná langt.
Bæði er hann ungur að árum og á því framtíðina fyrir
sér og eins gerir hann sér glögga grein fyrir því hvað
þarf til þess að verða afreksmaður og hagar æfingum
sínum eftir því. Er gaman að kynnast viðhorfum þessa
ágæta íþróttamanns íviðtali íþróttablaðsins.
Stenmark
Ingemar Stenmark er nafn sem heyrist oft þegar birtar
eru fréttir af stórmótum á skíðum. Stenmark hefur nú,
að flestra áliti, unnið sér titilinn „Bezti skíðamaður
heims, fyrr og síðar." Grein er um þennan hægláta
afreksmann Svía í blaðinu.
Knattspyrnuvertíðin:
Þótt enn sé nokkur tími til þess að knattspyrnuvertíðin
hérlendis hefjist af fullum krafti eru knattspyrnu-
mennirnir farnir að búa sig undir keppnistímabilið af
miklum krafti. Flest öll félögin í 1. og 2. deild hafa
ráðið sér þjálfara, og er skýrt frá hvernig þeim málum
er háttað og hvaða breytingar verða hjá liðunum í
grein í Iþróttablaðinu.
Liverpool:
í þætti blaðsins um ensku knattspyrnuna er að þessu
sinni fjallað um hið þekkta knattspyrnulið Liverpool,
sem um árabil hefur verið í forystusveit enskra knatt-
spyrnuliða og oftsinnis náð frábærum árangri.
Fræðsluefni:
Greinaflokkur Jóhannesar Sæmundssonar um þjálf-
un heldur áfram í blaðinu og er vert að vekja á honum
sérstaka athygli og hvetja fólk til þess að kynnast
stöðu sinni og líkamlegu ástandi og hefja síðan
trimmæfingar með tilliti til þess.
Annað
íþróttablaðið heldur áfram að fjalla um íþróttaað-
stöðuna í hinum ýmsu byggðarlögum og segir nú frá
Selfossi og ísafirði. Grein er um árangur knatt-
spyrnulandsliða á sl. keppnistímabili, afrek frjáls-
íþróttakvenna og í hálfleik er svo skoðað ýmislegt það
sem ofarlega er á baugi í íþróttaheiminum um þessar
mundir.