Íþróttablaðið - 01.03.1978, Page 7
Brynjólfur Helgason
skrifar um kappakstur
Ford Escort-bifreiðin sem Björn Walde-
gard og Hans Thorszelius óku í sænska
vetrarrallinu 10.—12. febrúar s.l. Þeir
unnu einnig Safari-rallið í fyrra á Ford Es-
cort bifreið.
Helstu alþjóðarallkeppnir heims
falla í tvo flokka. Efst er heims-
meistarakeppni framleiðenda. 1
ár eru tólf keppnir í þeim flokki.
Á síðasta ári stóð baráttan um heims-
meistaratitilinn aðallega milli Ford og Fiat.
Fiat sigraði undir lokin, naumlega þó, þrátt
fyrir margfalt meira fjármagn bak við bíl-
ana en hjá Ford. Annar aðalflokkurinn er
Evrópumeistarakeppni ökumanna og eru
þar hátt í fimmtíu keppnir á ári.
Fyrir utan þetta eru mjög margar minni
háttar keppnir í flestum löndum heims.
Bílarnir, sem ekið er á í alþjóðakeppnunum
og eru þar fremstir í flokki eiga satt að segja
ekki mikið skylt við þær tegundir, sem þeir
heita eftir og við kaupum. Sú gerð, sem
Fiatverksmiðjurnar ítölsku notast við í
heimsmeistarakeppni framleiðenda og
sigraði á síðasta ári er byggð á útliti Fiat 131
bílsins og heitir þessi sportútgáfa Abarth.
Ford verksmiðjurnar bresku byggja hins
vegar á Ford Escort RS 1800. Þessir bílar
eru með yfir 200 hestafla vélar og geta náð
230 km°klst. hámarkshraða ef þeir eru
þannig gíraðir. Nauðsyn á sem almestum
hraða er hins vegar mismunandi eftir
keppnum. Nefna má að mælt viðbragð á
einum Escort RS 1800 bíl frá 0—96 km/klst.
var 6,1 sekúnda og frá 50—80 km/klst. í
fimmta gír 5,4 sek. Þessir bílar eru auk þess
styrktir svo gífurlega, að nokkrar minni
háttar veltur eiga ekki að skaða verulega.
Fjármagn verksmiðjanna og stuðningur
þeirra við keppendur á sínum bílum hefur
gert einkaaðilum nærri ómögulegt að sigra
alþjóðarallkeppni.
1 heimsmeistarakeppni framleiðenda eru
öll frægustu röllin eins og Monte Carlo,
Safari, Sænska rallið, 1000 vatna rallið í
Finnlandi, RAC rallýið í Bretlandi o.fl.
t heimsmeistarakeppni framleiðenda eru
öll frægustu röllin eins og Monte Carlo,
Safari, Sænska rallið, 1000 vatna rallið í
Finnlandi, RAC rallið í Bretlandi o.fl.
Safari rallið, sem nú fer eingöngu fram í
Kenýa í Afríku hefur lengi verið talið eitt
effiðasta rall í heimi. Kemur þar margt til.
7