Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 9
RALL
Óútreiknanleg veðrátta, vondir vegir, erfitt
að rata, alls kyns villidýr þvælast fyrir á
leiðinni og misblíðar móttökur heima-
manna hafa orðið til þess að allir keppend-
ur aka með skothelda framrúðu. Hér fara á
eftir nokkrar línur þýddar úr Autosport um
Safari keppnina í fyrra: „Um það bil 450
km af 6450 km leiðinni voru felldir niður og
400 km af því sem eftir var, voru gífurlega
blautir. Vegirnir voru yfirleitt þaktir þykkri,
hálli drullu og það voru margir kaflar á floti
og brýr, sem höfðu skolast í burtu." Sigur-
vegari í þessari keppni var Svíinn Björn
Waldegaard á Ford Escort RS 1800. Hann
var meira en mánuð fyrir keppnina í æf-
ingaakstri í Afríku og ók fleiri þúsund kíló-
metra. Waldegaard er einn besti, ef ekki
besti rall ökumaður í heiminum í dag í
keppnum þar sem aðallega er ekið á vegum
með lausu yfirborði.
Nú er lokið tveim keppnum í heims-
meistarakeppni framleiðenda í ár. Rallye
de Monte Carlo var 21.—28. janúar sl. Eitt
sérkenni þessarar frægu keppni er að hún
byrjar á mörgum mismunandi stöðum í
Evrópu. 1 ár voru byrjunarstöðvar í 8 borg-
um: Róm, Kaupmannahöfn, Varsjá, París,
Frankfurt, Monte Carlo, Almeria og Lissa-
bon. Þrír fyrstu dagamir fóru í leiðina til
Porsche Carrera bitreiðin sem sigraði í Monte Carlo rallinu í vetur. Var þetta í fyrsta sinn í
20 ár sem bifreið sem ekki er send til keppninnar af framleiðanda sigrar.
Monte Carlo og má líta á það sem nokkurs
konar undankeppni. Aðalkeppnin er síðan í
Ölpunum í kring um Mónakó milli þeirra,
sem eftir eru og stendur í fjóra daga. Víða
Renault 5 Alpine-bifreiðarnar stóðu mjög vel fyrir sínu í Monte-Carlo kappakstrinum í
vetur og urðu í 2. og 3. sæti í keppninni.
var mikill snjór á leiðinni í þetta sinn.
Margir lentu í miklum vanda við dekkjaval
á leiðum þar sem 50—70% voru snævi þakt-
ar en autt malbik þar á milli. Þeir sem fóru
af stað á mest negldu dekkjunum misstu
naglana úr á auðu köflunum og voru í
slæmri aðstöðu þegar snjórinn tók við á ný.
Það gerðist nú í fyrsta sinn í yfir 20 ár að
einkaaðili sigraði í keppninni, þ.e. á bíl, sem
ekki var sendur til keppni á vegum fram-
leiðandans. Það var Frakkinn Jean-Pierre
Nicholas, sem er allþekktur kappaksturs-
maður, sem ók 3 lítra Porsche Carrera
sportbíl. Aðstoðarökumaður hans var landi
hans Vincent Laverne. Renault 5 Alpine
bílar stóðu sig frábærlega vel í keppninni og
máttu vafalítið þakka framdrifinu í snjón-
um. Það voru sem sagt Renault 5 Alpine
bílar í 2. og 3. sæti og óku Frakkar þeim
báðum. Walter Rohrl á Fiat 131 Abarth átti
marga góða tíma á sérleiðunum og hafnaði í
fjórða sæti. I fimmta og sjötta sæti voru
einnig Fiat 131 Abarth bílar. Ford sendi
ekki bíla til keppni í Monte Carlo.
Ford sendi hins vegar þrjá bíla til keppni í
sænska vetrarrallinu, sem fram fór 10,—12.
febrúar. Þar var það Svíinn Björn Walde-
gaard, sem vann og er það fimmti sigur hans
í þessari keppni. Aðstoðarökumaður
Waldegaards var Hans Thorszelius. Hannu
Mikkola, sem einnig ók Ford Escort RS
1800 varð í öðru sæti. Marku Alen á Fiat
131 Abarth varð þriðji. Fjórði varð Stig
Blomquist á Lancia Stratos. Ari Vatanen
varð fimmti á þriðja Escortinum þrátt fyrir
9