Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1978, Side 27

Íþróttablaðið - 01.03.1978, Side 27
mabil lumanna að Þrír kunnir þjálfarar. Lárus Loftsson er lengst til vinstri, en hann mun þjálfa unglingalandsliðið. ( miðið er Tony Knapp, fyrrum landsliðsþjálfari sem þjálfa mun í Noregi í sumar og lengst til hægri er Theódór Guðmundsson, sem í sumar mun þjálfa 2. deildar lið Fylkis. hópur sé hjá hverju félagi. Ef til vill væri þó réttara að ætla að 26 menn hafi æft á þessu tímabili hjá flestum félögunum, en höldum okkur samt við 16 leikmenn hjá hverju fé- lagi — eða þann hóp, sem leikur í hvert skipti. I marz og apríl aukast æfingar um helm- ing og þá byrja æfingaleikir, Reykjavíkur- og önnur héraðsmót og síðast en ekki sízt meistarakeppni KSÍ. Á þessu tímabili gef- um við okkur að 16 manna hópur sé enn á æfingunum og tveir tímar fari í hverja æf- ingu. í þessum fjórum mánuðum, janúar— apríl reiknum við því með að 48 æfingar séu hjá félögunum. Tveir tímar fara í hverja æfingu, samtals 96 klukkustundir hjá hverju liði í 1. og 2. deild. Með því að margfalda fjölda æfinga- stunda með fjölda 16 leikmanna fáum við út að á þessu tímabili hafa félögin 20 í tveimur efstu deildunum eytt 3072 klukku- stundum í æfingar til undirbúnings fyrir keppnistímabilið. I vinnuviku daglauna- manns eru 40 stundir og æfingatími knatt- spyrnumannanna nemur því 77 vinnuvik- um eða um l'/i vinnuári verkamannsins. Þessar tölur eru aðeins settar hér fram til gamans og eru örugglega mjög hófsamlega áætlaðar. Sennilega væri nær lagi að undir- búningstíminn væri á þriðja ár miðað við daglaunamann. Inn í þessar tölur vantar síðan algjörlega tíma, sem fer í undirbúning liðanna, fyrir utan æfingatímann sjálfan. Þarna vantar alveg tíma þann, sem fer í allt annað félagsstarf hjá leikmönnunum, þarna vantar alveg tímann sem fer til æfinga hjá yngri flokkunum, þriðja deildin er ekki með í þessu dæmi. Það væri hægt að halda áfram endalaust að telja upp tíma þann, sem þeir áhugasömustu eyða í íþróttina. Við látum staðar numið hér, en vonum að allar æf- ingarnar leiði til þess að knattspyrnan verði enn betri og skemmtilegri hjá okkur á sumri komanda. Markaskorarar til liðs við Evrópuiiðin Á hverjum vetri gerist það að margir leikmenn skipta um félag og ástæðurnar fyrir félagaskiptunum eru sjálfsagt jafn margar og viðkomandi leikmenn. Við skul- um líta á í helztu meginatriðum hvaða leikmenn hafa skipt um félög og hverjir verða þjálfarar hjá liðunum í 1. og 2. deild. Skagamenn hafa ráðið Englendinginn George Kirby til félagsins og hyggja sér ef- laust gott til glóðarinnar, en hann hefur þrívegis gert lið ÍA að Islandsmeisturum, 1974, 1975 og 1977. Þá hafa Skagamenn ítrekað gert tilraun til að vinna bikarkeppni KSl, en þrisvar sinnum á síðustu fjórum Sigurður Haraldsson — markvörður IBV í fyrra. Gengur hann aftur í raðir sinna gömlu félaga, Valsmanna? árum hefur liðið tapað í úrslitaleik keppninnar. Á þessu stigi er aðeins vitað um tvær breytingar á liði Skagamanna frá því sem var í fyrra. Matthías Hallgrímsson hefur ákveðið að hætta að leika með Halmia í 2. deild í Svíþjóð og er fluttur heim á Akranes á nýjan leik. Það hefur þó ekki gengið and- skotalaust fyrir Matta að slíta sig frá Halmia. Forráðamenn þess félags telja sig eiga kröfur á hið nýja félag Matthíasar og hafa farið frma á 1.3 milljónir frá Akranesi áður en þeir gefa félagaskiptin eftir. Vonir standa til að mál þessi leysist farsællega, en þess má geta að er Matthías fór til Halmia fékk Akranes ekki eyri fyrir þennan snjalla leikmann, sem leikið hefur fleiri landsleiki en nokkur annar íslenzkur knattspyrnu- maður, 43 talsins. Þegar talað er um breytingar á úrvali leikmanna hjá liðum er ekki talað um yngri leikmenn, sem félögin hafa sjálf alið upp. 27

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.