Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.03.1978, Page 32

Íþróttablaðið - 01.03.1978, Page 32
Enska knattspyrnan „Ætli það verði ekki að setja Keeganí vörnina“ Það þarf sterk bein til þess að þola góða daga. Þessi gömlu sannindi og nýju eru nú að koma fram hjá enska meistaraliðinu, Liverpool, sem á trauðla von á að verja titil sinn í ár. Þegar þetta er skrifað er undraliðið Notth- ingham Forest svo til búið að stinga önnur lið í 1. deildinni af, og titillinn blasir við þessum nýliðum í deildinni — liðinu sem kom upp úr 2. deild í fyrra, og flestir áttu von á að yrði að berjast harðri baráttu fyrir tilveru sinni í 1. deild í ár, eins og oftast hefur verið með lið sem komið hafa upp úr 2. deild. En Liverpool er þó í röð hinna efstu, rétt eins og liðið er búið að vera und- anfarin fjórtán ár, en á því tímabili hefur liðið aldrei verið neðar en í fimmta sæti í deildinni. Knattspyrna er ótrúlega stór þáttur í lífi flestra Liverpoolbúa. Ekki nóg með að borgin eigi eitt topplið, heldur eru þau tvö, þar sem Everton hefur einnig um árabil verið eitt bezta knattspymulið Englands. Sagt er að Liverpool eigi aðeins eitt stolt — knattspyrnumenn sína, og einhvern veginn er það þannig að sérstök knattspymu- menning hefur skapazt í þessari borg og andrúmsloftið þar í kringum knattspymuna er allt öðru vísi en víðast hvar annars staðar í Englandi. — Liverpool-búar bera virðingu fyrir íþróttinni, og kunna öðrum fremur að meta það sem vel er gert á knattspyrnuvell- inum en flestir aðrir, segja þeir sem til þekkja. Áhangendur Liverpool-liðsins eru kall- aðir „The Kops“ og þeir fylgja liðinu hvert sem það fer, og standa að baki þess, hver svo sem árangur þess er. Leikmenn Liverpool— liðsins segja að „The Kops“ séu ströngustu gagnrýnendur þeirra. — Þjálfaramir eða framkvæmdastjórinn skamma okkur, og við tökum tillit til þess sem þeir eru að segja a.m.k. að ákveðnu marki. En ef þögn verður hjá „The Kops“ meðan á leikjunum okkar stendur, þá vitum við að það er meira en lítið að hjá okkur. Þjálfarar og leikmenn annarra liða segja

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.