Íþróttablaðið - 01.03.1978, Page 42
Árangur Hollands með ólíkindum
Hollendingar náðu allra þjóða bezt-
um árangri í knattspyrnulands-
leikjum sínum á árinu 1977. Þá
léku þeir alls sex landsleiki, unnu
fimm, gerðu eitt jafntefli og töpuðu engum
leik, þannig að vinningshlutfall þeirra er
hvorki meira né minna en 91,6%, og verður
slíkt að teljast með ólíkindum góð útkoma,
ekki sízt þegar tekið er tillit til þess að meðal
mótherja Hollendinga í landsleikjum
keppnistímabilsins voru nokkur knatt-
spyrnulandslið sem eru tvímælalaust hátt
skrifuð. Þessar upplýsingar koma fram í
grein sem birtist nýlega í hinu þekkta
knattspyrnutímariti „World Soccer“, en í
útreikningum blaðsins eru teknir með í
reikninginn allir þeir landsleikir er fram
fóru á árinu. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins eru fslendingar neðarlega á blaði,
með 20% vinningshlutfall í leikjum sínum,
en þar fer greinarhöfundurinn ekki alveg
með rétt mál, þar sem hann hefur ekki fært í
bækur sínar landsleik íslendinga og Norð-
ur-fra sem lauk með sigri íslands 1-0.
Breytir sá leikur vinningshlutfalli íslend-
inga úr 20% í 33,3% og skjóta íslendingar
þar með tíu þjóðum aftur fyrir sig, m.a.
Finnum, Norðmönnum, Grikkjum og
Belgíumönnum.
Vitanlega er mjög erfitt að marka slíka
skrá sem World Soccer hefur látið gera, ekki
sízt vegna þess hve misjöfn liðin eru sem
mörg af þeim liðum sem eru ofarlega á
blaði léku við á árinu 1977. Þannig má t.d.
segja bæði um fran og Mexíkó, sem hafa
mjög gott vinningshlutfall úr leikjum sín-
um, að þær þjóðir verðskuldi ekki það sæti
sem þær eru í — vitað sé að fjölmörg lönd
eigi miklu betri knattspyrnulandslið. Þann-
ig léku íranir t.d. aðeins einn „alvörulands-
leik“ á árinu, er þeir mættu Argentínu-
mönnum, en jafntefli varð í þeim íeik 0-0,
og Mexíkanar kepptu sömuleiðis aðeins
einn leik við sterkt lið, er þeir fengu Vest-
ur-Þjóðverja í heimsókn til sín. En í þeim
leik náðu Mesikanarnir afbragðsárangri
gerðu jafntefli 2-2.
Þótt tafla World Soccer segi ekki söguna
eins og hún er, þá kemur þar margt mjög
svo athyglisvert fram. M.a. það hvað Aust-
urríkismenn eiga miklu gengi að fagna um
þessar mundir, en þeir eru í fjórða sæti á
töflunni — léku 8 landsleiki á árinu, unnu
fimm og gerðu þrjú jafntefli. Því var ekki
fyrir að fara hjá þeim að allir andstæðing-
arnir væru með slök lið, m.a. kepptu Aust-
urríkismenn við Austur-Þjóðverja og unnu
á þeim öruggan sigur. Eru margir famir að
spá því að Austurríki komi allra liða mest á
óvart í heimsmeistarakeppninni í Argen-
tínu, og víst er að knattspyrnuáhugi hefur
aldrei verið meiri í Austurríki en einmitt nú,
né landsliðinu þar gefinn meiri tími til æf-
inga og gaumur.
Það vekur líka mikla athygli þegar taflan
er skoðuð hversu slakur árangur sumra
stórvelda knattspyrnunnar hefur verið.
Þannig hafa t.d. Belgíumenn aðeins 16,6%
vinningshlutfall út úr sex landsleikjum sín-
um. Þeir unnu aðeins einn leik — leikinn við
Svipmyndir frá tveimur landsleikjum síðasta keppnistímabils. Að ofan er Skotinn Danny
McGrain í baráttu við Argentínumann, en myndin hér að neðan er úr landsleik Austurríkis-
manna og A-Þjóðverja í heimsmeistarakeppninni sl. haust, en þann leik unnu
Austurríkismenn.
8 T i 2 *
i í i j té j
42