Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 45
ÍA stofnar sjóð
Stofnaður hefur verið minningar-
sjóður um hinn kunna íþróttaleið-
toga á Akranesi, Guðmund Svein-
björnsson. Mun sjóðurinn verða í
vörslu íþróttabandalags Akraness. Styrki úr
hinum nýstofnaða sjóði má veita efnilegum
íþróttamönnum til náms. Einnig má styrkja
íþróttaþjálfara, sem sýnt hafa sérstakan
áhuga í starfi til náms í íþróttaþjálfun, og
aðra þá sem vinna að æskulýðs- og bind-
indismálum í bænum.
Það er ótrúlegt hvað maður er fljótur að
,,týnast" segir Gustavo Thoni, ítalski
skíðagarpurinn, sem verið hefur í sviðs-
Ijósinu um árabil. Nú hefur Gustavo lítið
keppt að undanförnu, og finnst sem hann
njóti ekki sömu vinsælda og athygli og
áður.
Erfitt að bera
póstinn til Cruyff
Póstburðarmaður nokkur í Barce-
lona á Spáni hefur ekki átt sjö dag-
ana sæla síðan knattspyrnustjarnan
Johan Cruyff flutti í hverfi hans.
Daglega berast Cruyff fleiri bréf en svo að
póstburðarmaðurinn komist með þau í
einni ferð, og varð hann að gera kröfur til
póstþjónustunnar um að fá aðstoðarmann
við bréfaburðinn. Talið er að nú frá ára-
mótum hafi um 40.000 bréf frá Hollandi
komið til Johans Cruyff og er þar aðallega
um að ræða áskoranir á hann að leika með
hollenzka landsliðinu í lokakeppni HM í
Argentínu. Sagt er að Johan Cruyff opni og
lesi flestöll bréfin sem hann fær, og er hann
ekki öfundsverður af því hlutverki.
Aðsókn fer
víða minnkandi
að er víðar en á Islandi sem dregið
hefur úr aðsókn að 1. deildar leikj-
um í knattspyrnu. í Austur-Evrópu
hefur aðsókn víða dottið mjög
mikið niður, og má nefna sem dæmi að það
sem af er þessu keppnistímabili hefur
meðaltalstala áhorfenda að E deildarleikj-
um í A-Þýzkalandi verið um 13.000 í stað
um 15.300 í fyrra. Aðalástæða þess að
áhorfendum hefur fækkað að knattspyrnu-
leikjum er talin sú, að fjölmiðlar sinna nú
íþróttum mun meira en áður var, og fjöldi
manna láta sér það nægja að lesa um leiki í
blöðunum, eða horfa á þá í sjónvarpinu.
Albanía og
Liethenstein
eru þjóðirnar
sem ekki verða
með í keppninni
Urslitakeppni næstu Evrópubikar-
keppni landsliða í knattspyrnu
mun fara fram á Ítalíu árið 1980,
en í þeirri keppni taka þátt átta
lið að þessu sinni. Italir hafa þegar ákveðið
að keppnin fari fram í Róm, Mílanó,
Napolí, Flórens og Genúa, og vera kann að
einn eða fleiri leikir fari fram í Bologna.
Allar Evrópuþjóðir, að Albaníu og
Leichtenstein undanskildum, hafa tilkynnt
þátttöku sína í Evrópubikarkeppninni að
þessu sinni.
/ hálfleik
Meðfylgjandi mynd er af sigurvegurunum
á skákmótinu á Akranesi: Magnúsi Magn-
ússyni, Birni Lárussyni, Andrési Ólafssyni
og Þresti Stefánssyni, formanni (A.
Snjallir skákmenn
á Skaganum
Svo virðist sem íslandsmeistarar
Akraness í knattspyrnu kunni ým-
islegt annað fyrir sér en að sparka
■knetti. Á skákmóti sem haldið var
fyrir skömmu á Akranesi urðu tveir af leik-
mönnum Akranesliðsins, þeir Björn Lárus-
son og Andrés Ólafsson í efstu sætunum.
Varð Björn sigurvegari á mótinu, en Andrés
varð í þriðja sæti. Hreppti Björn bikar þann
sem keppt var um á mótinu, en hann gaf
Friðrik Ólafsson, stórmeistari til
keppninnar.
Og svo er það myndin frá hinum gömlu,
góðu dögum. Sá sem þarna er á hend-
ingskasti á eftir knettinum er enginn annar
en Bjarni Felixson, núverandi íþrótta-
fréttamaður sjónvarpsins, en þáverandi
„Rauða Ijónið" í KR. Bjarni var lengi í
fremstu röð íslenzkra knattspyrnumanna
og lék m.a. nokkra landsleiki.
45