Íþróttablaðið - 01.03.1978, Blaðsíða 46
Channon vill
fara heim
Mike Channon, leikmaður sem
mörgum Islendingum mun að
góðu kunnur frá því að bikar-
meistarar Southampton komu
hingað árið 1976, hefur mikinn hug á að
ganga aftur til liðs við sitt gamla félag, en
eins og flestum mun kunnugt var Channon
seldur frá Southampton til Manchester City
í fyrra fyrir 300.000 pund. — Ég kann ein-
faldlega ekki við mig í Manchester hefur
Channon sagt, — og mig dreymir um að
komast aftur í hóp minna gömlu félaga. Ég
er viss um að Southampton vinnur sig upp í
1. deild á þessu keppnistímabili, og ég vona
að forráðamenn liðsins telji þá að þeir hafi
þörf fyrir mig.
Kafbátur verður
farkosturinn!
Tugþúsundir skozkra knattspymu-
unnenda eru nú að safna sér fyrir
fari á heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu sem fram fer í Argen-
tínu næsta sumar. Vitanlega munu flestir
fara flugleiðis þessa 7.000 mílna leið, en Jim
Tait, sem er kráareigandi í Hamilton í
Lanarkshire, hefur fundið annan ferðamáta
sem getur orðið ódýrari og teljast verður
einnig mjög frumlegur. Hann ætlr sér að
leigja kafbát til ferðarinnar og með því að fá
150 manns með sér í bátinn, getur fargjaldið
orðið nokkru ódýrara en ef flogið væri.
Hafa þegar margir sýnt ferðamáta þessum
áhuga og hinar fomfrægu Skotasögur hafa
varla við mikið að styðjast ef hann fær ekki
næga farþega með sér í ferðina.
/ hálfleik
Bobby á að
trekkja
Bobby Charlton, fyrrverandi leik-
maður með Manchester United og
enska landsliðinu mun leika
nokkra leiki með Newcastle United
síðar á þessu ári. Það er reyndar ekki enska
liðið Newcastle United sem Bobby mun
keppa með, heldur ástralskt félag sem ber
sama heiti, en lið þetta er nú í mikilli sókn í
Ástralíu og ætlar sér stóran hlut í framtíð-
inni. Félagið gerði samning við Bobby
Charlton að hann léki a.m.k. fimm leiki
með liðinu, og fær hann álitlega greiðslu
fyrir hvern leik. Ekki eiga forráðamenn hins
ástralska Newcastle-liðs von á því að
Charlton geri miklar rósir í leikjum sínum
með liðinu, en segja að enginn enskur
knattspymumaður sé eins þekktur og vin-
sæll í Ástralíu og hann, og búast megi við
því að aðsókn að leikjum liðsins tvö- eða
þrefaldist í leikjunum sem Bobby verður
með. Reyndar þarf ekki svo mikið til að
auka áhorfendatöluna, þar sem meðaltals-
aðsókn að leik hjá félaginu á s.l. ári var um
1530.
Bobby Charlton — Newcastle United í
Ástralíu bindur vonir við vinsældir hans
þarlendis.
Vont að fá
badmintonbolta í augun
egar góður badmintonleikmaður
„smassar" nær badmintonboltinn
allt að 150 km. hraða á klukku-
stund, og þóct boltinn sé léttur,
getur verið annað en þægilegt að fá hann í
sig meðan hraðinn á honum er mestur. Ár-
lega meiðast allmargir badminton menn af
því að fá þannig „smass“ bolta í sig, og er
þar cmkum að ræða meiðsli í andliti. Ann-
ars er badmintoníþróttin haldin ein hættu-
minnsta íþróttin sem stunduð er, að öðru
leyti en því að árlega slíta margir hásinar
sínar við badmintonæfingar, — einkum
menn sem stunda íþrótt þessa sem trimm-
íþrótt og gæta sín ekki sem skyldi meðan
þeir eru óþjálfaðir.
46