Íþróttablaðið - 01.03.1978, Page 47
/ hálfleik
Umskipti hjá
Celtic
Celtic, — skozka liðinu sem Jóhann-
es Eðvaldsson leikur með hefur
ekki vegnað vel í vetur, og er nú
meðal neðstu liðanna í skozku
úrvalsdeildinni. Hafa orðið mikil umskipti
hjá liðinu frá því í fyrra, en þá varð það
bæði skozkur meistari og skozkur bikar-
meistari. Ef marka má skozku blöðin hefur
Celtic þó sýnt bærilega knattspymu þegar á
heildina er litið í vetur, en hins vegar hefur
liðið áþreifanlega skort menn eða mann
sem getur skorað mörk. — Það er ekki nóg
að skapa sér færi, þegar enginn er til þess að
skora úr þeim, segja blöðin. Þau eru einnig
sammála um að Jóhannes sé einn bezti
maður liðsins og segja hann í gífurlega góðu
formi. Jóhannes hefur lýst því yfir að hann
vilji fara frá Celtic og helzt komast til
knattspyrnuliðs á meginlandi Evrópu, en að
sögn skozku blaðanna, hefur enginn sýnt
honum áhuga enn sem komið er, og telja
þau það eitt gleggsta dæmið um niðurlæg-
ingu Celtic um þessar mundir — að ekkert
félag skuli sýna einum bezta manni liðsins
áhuga, þegar hann vill fara frá því.
Verður fækkað
í 1. deildinni
Ahugi á breyttu keppnisfyrirkomu-
lagi í 1. deildar keppni íslands-
mótsins í handknattleik virðist
fara vaxandi. Er talið líklegt að á
næsta ársþingi HSf komi fram tillaga um að
fækka liðunum í 1. deild niður í sex og að
sex lið verði einnig í annarri deild. Munu
tiilögumenn gera ráð fyrir að fækkunin
verði gerð í áföngum. Varla er efamál að
fækkun liða í 1. deild yrði tii þess að auka
áhuga almennings á handknattleik að nýju,
en sem kunnugt er hefur verið mjög lítil
aðsókn að mörgum leikjum í deildinni,
enda mismunur á getu liðanna sem þar
leika augljós. Þá er og talið líklegt að á
næsta þingi Knattspyrnusambands íslands
verði því hreyft að fækka liðum í 1. deild-
inni, en fyrir liggur að aðsókn að 1. deildar
leikjum hefur minnkað mikið að meðaltali
síðan liðum í deildinni var fjölgað. Körfu-
knattleiksmenn hafa þegar stigið „fækkun-
arskrefið" og verður þar komið á sérstakri
„úrvalsdeild" næsta keppnistímabil. Verður
fróðlegt að fylgjast með því hvernig það
fyrirkomulag gefst.
Verða Hilmar
og Jón með
landsliðið?
rsþing Handknattleikssambands
fslands er venjulega haldið á vorin,
en að þessu sinni verður því frestað
til næsta hausts. Ástæðan er sú að
framundan er alþjóðaþing handknattleiks-
manna sem verður haldið hérlendis að
þessu sinni og mun það jafnframt verða
fyrsta alþjóðaþing íþróttamanna sem hald-
ið er hér á landi. Áður hefur Frjálsíþrótta-
samband íslands gegist fyrir Evrópuþingi
og þótti það heppnast með miklum ágæt-
um. Stjórn HSf mun að undanförnu hafa
fjallað um framtíðarstefnuna í landsliðs-
málum, og mun áformað að boða til ráð-
stefnu með forráðamönnum liða og þjálf-
urum á næstunni. til þess að hafa þessa aðila
með í ráðum við stefnumótunina. Slíkt var
gert áður en línan var lögð við undirbúning
HM-liðsins. Sennilega mun stjórn HSÍ
einnig ráða landsliðsþjálfara á næstunni, en
hver það verður er ekki gott um að segja.
Heyrst hefur að mjög margir hafi áhuga á
að fá Hilmar Björnsson aftur til starfa, en
Hilmar gengdi um árabil landsliðsþjálfara-
stöðu og fórst það verk vel úr hendi. Verði
Hilmar ráðinn landsliðsþjálfari er mjög
sennilegt að hann leggi áherzlu á að fá Jón
Erlendsson með sér til starfa, en Jón starfaði
með Hilmari nær allan tímann sem hann
var landsliðsþjátfari og var samvinna þeirra
til fyrirmyndar. Hvort Hilmar hefur áhuga
á landsliðsþjálfarastöðunni er svo annað
mál, en hann dvelur um þessar mundir í
Svíþjóð, þar sem hann þjálfar og elikur með
3. deildar liði.
Meðfylgjandi mynd er úr bikarúrslita-
leik Celtic og Glasgow Rangers í fyrra
og sýnir Jóhannes Eðvaldsson hafa
betur í viðureign við tvo leikmenn
Rangers.
Áhugi á atrennu-
lausum stökkum
aftur að aukast
Ahugi á keppni í atrennulausum
stökkum fer nú aftur vaxandi, en
sem kunnugt er var hér á árum áð-
ur víða keppt í þeim og um tíma
voru þau meðal annars keppnisgreinar á
Olympíuleikum. Hérlendis hafa atrennu-
laus stökk jafnan verið mjög vinsæl og Is-
lendingar náð góðum árangri. Þannig var
t.d. Jón Þ. Ólafsson um tíma hluthafi í
heimsmetinu í hástökki án atrennu: 1,75
metr., en það met hans hefur nú verið bætt
af kúluvarparanum Óskari Jakobssyni í
1,75 metra og er með ólíkindum að jafn stór
og þungur maður skuli ná svo góðum
árangri i þessari grein. íslandsmetið í þrí-
stökki á hins vegar Jón Pétursson og er það
10,08 metrar. Metið í langstökki eiga þeir
Jón Þ. Ólafsson og Gústaf Agnarsson og er
það 3,29 metrar.
Ganga 1200 metra
Nýleg rannsókn á atferli knatt-
spyrnumanna meðan á leik
stendur hefur m.a. leitt í ljós, að
leikmenn ganga tæpa 1200 metra
á meðan á leiknum stendur, hlaupa án þess
að vera með knöttinn, um 3.200 metra,
hlaupa með knöttinn um 250 metra, og á
eftir knettinum tæpa 700 metra.
47