Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 26.06.2020, Blaðsíða 11
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Sú hætta er raunveruleg að lang- tímaat- vinnuleysi, mun meira en við höfum áður þekkt, festist hér í sessi. Þeir aðhyllast óheft mark- aðslögmál frekar en frjálsa samkeppni. Hin ósýnilega hönd er blá. GÓÐA FERÐ INNANLANDS   TAX FREE* af förðunarvörum, ilmvötnum og völdum húðvörum *19,35% verðlækkun Gildir 15. júní - 27. júlí 2020 í verslunum og í netverslun Ly Er kreppan komin og farin? Svo mætti halda. Einkaneysla Íslendinga var fljót að taka við sér þegar slakað var á samkomuhömlum innan-lands og verkalýðshreyfingunni þykir á ný viðeigandi að fara fram með hótanir í garð stjórnvalda og atvinnurekenda – rétt eins og þar sé eitt- hvað sækja. Víst er að fyrirtæki, sem áttu erfitt með að standa undir Lífskjarasamningnum fyrir efnahagsáfallið, munu ólíklega harma ef það yrði að frumkvæði launþega- hreyfingarinnar að skjóta sig í fótinn með því að segja upp samningnum í haust. Þúsundir manna bætast við á atvinnuleysisskrá í hverjum mánuði og fyrirtæki horfa mörg upp á tugprósenta tekjusamdrátt á sama tíma og laun fara hækkandi. Þetta er jafna sem gengur ekki upp. Ríkisstjórnin og Seðlabankinn hafa heilt yfir brugðist vel við með aðgerðum sem hafa lágmarkað höggið á fólk og fyrirtæki. Þrátt fyrir efnahagshamfarir hafa ráðstöf- unartekjur fólks ekki enn dregist saman en það mun breytast í haust, þegar uppsagnarfresti og hlutabótaleið stjórnvalda linnir, og höggið mun þá kom fram af miklum þunga fyrir þann stóra hóp sem misst hefur vinnuna. Útlit er fyrir að atvinnuleysi verði í hæstu hæðum, hag- kerfið skreppi saman um tíu prósent og að fjárlagahalli næstu tveggja ára verði um 500 milljarðar. Nauðsynlegt verður að hagræða í ríkisrekstrinum – niðurskurður þýðir ekki sjálfkrafa minni og lakari þjónusta – enda höfum við ekki efni á því, eins og Þórdís Kolbrún Gylfa- dóttir atvinnuvegaráðherra nefndi í vikunni, að „reka stóru kerfin okkar með óbreyttum hætti“. Það var ljóst fyrir faraldurinn, en núna höfum við ekki val um annað. Ekki er að vænta þess að samstaða muni nást um þau erfiðu verkefni sem bíða. Verkalýðshreyfingin hefur gefið tóninn og sagt ríkisstjórninni að „búa sig undir harðan verkalýðsvetur“. Forsendur Lífskjarasamningsins eru sagðar brostnar vegna þess að stjórnvöld hafi ekki enn lagt bann á 40 ára verðtryggð húsnæðislán sem heimilin eru sjálf á góðri leið með að leggja niður. Þetta er því undarlegur málflutningur og endurspeglar forgangs- röðun þeirra sem illu heilli ráða för í þessum samtökum, sem er orðið þekkt en leiðigjarnt stef, að efna til átaka hvenær sem færi gefst á. Stóra atriðið er að meginforsend- ur Lífskjarasamningsins, um hóflegar launahækkanir og lækkun vaxta, hafa gengið eftir – en vandinn er að meiri hækkun launa í mestu alheimskreppu síðustu hundrað ára veldur því að atvinnuleysi hefur stóraukist. Sú hætta er raunveruleg að langtíma atvinnuleysi, mun meira en við höfum áður þekkt, festist hér í sessi. Leiðin til að takast á við það er ekki, eins og ASÍ hefur lagt til, að gera fólk að bótaþegum þannig að Íslendingar greiði hæstu atvinnuleysisbætur í heiminum, heldur að skapa hér aðstæður – meðal annars með aðgerðum stjórnvalda – fyrir viðspyrnu atvinnulífsins og þá um leið aukinni tekjuöflun hagkerfisins. Sögulega séð hefur verkalýðs- hreyfingin nánast aldrei farið fram á launahækkanir í nið- ursveiflum. „Það var grundvöllur gengisfellinga á sínum tíma,“ útskýrði seðlabankastjóri í viðtali við Markaðinn í síðustu viku, „að verkalýðsfélögin kröfðust ekki launa- hækkana strax í kjölfarið. Það sama var uppi á teningnum eftir fjármálahrunið 2008, en þá var fremur horft til þess að reyna að skapa atvinnu.“ Við ættum að hafa sömu sjónarmið að leiðarljósi á komandi kreppuvetri. Kreppuvetur  Hegningarhúsið Loksins á að gera upp gamla Hegningarhúsið við Skóla­ vörðustíg. Húsið minnir mjög á Alþingishúsið í útliti en hefur hýst annars konar vafasama kar­ aktera. Hefur nú verið auglýst eftir tillögum um hvers konar starfsemi eigi að vera í húsinu. Hafa komið upp hugmyndir um að geyma þar lögfræðinga en það hefur hlotið dræmar undir­ tektir. Einnig hefur komið til tals að gera glæpasafn í anda Alca­ traz, væntanlega með lundalegri gjafavöruverslun í smákrimma­ þema. Annars væri næst að breyta húsinu í BDSM­klúbb, þá þyrfti ekki að breyta nafninu. Fluguskoðun Rúmlega þrjátíu þúsund lands­ menn hafa sótt Ferðagjöfina, en það er rafrænt gjafakort sem hægt er að nota á ýmsum stöðum til að styðja við íslenska ferða­ þjónustu. Appið er mjög metn­ aðarfullt en mörgum brá í brún að sjá hvað hægt er að nota gjafa­ kortið í. Meðal af þreyingar sem er í boði á höfuðborgarsvæðinu er gönguferð niður Hverfisgötu. Þá er eini veitingastaðurinn sem tekur við gjafakortinu staðsettur í Hamraborg, með fylgir skoð­ unarferð um einu innibensín­ stöð landsins. Þá er einnig hægt að nota gjafakortið til að fara í fuglaskoðun í Elliðaárdalnum, f luguskoðun við Mývatn og mávaskoðun í Hafnarfjarðar­ höfn. Ekki amalegt það. arib@frettabladid.is Ein af helstu trúarsetningum hægri manna er að allt eftirlit með markaðnum sé skaðlegt. Hugmyndin er sú að markaðurinn sé óskeik- ull, eiginlega guðleg forsjón, og goðgá sé að truf la hann með eftirlitsstofnunum. Eitt af því fyrsta sem Sjálfstæðismenn gera jafnan þegar þeir komast í stjórn – fyrir utan að lækka gjöldin á stórútgerðina – er að veikja þær stofnanir sem eiga að sinna eftir- litshlutverki með fyrirtækjum og gæta hagsmuna almennings. Þeir aðhyllast óheft markaðslögmál frekar en frjálsa samkeppni. Hin ósýnilega hönd er blá. Ekki síst hér á landi, þar sem manni hefur stundum virst að hægri menn líti á það sem hlut- verk sitt að standa vörð um góða stöðu tiltekinna fyrirtækja í fákeppninni og aðgang þeirra að neyt- endum sem ekki eiga kost á því að beina viðskipt- um sínum í hagstæðari áttir. Það hvarf lar stundum að manni að litið sé á neytendur eins og veiðistofn sem úthlutað er kvótum á, eftir aldagömlum, óskráðum reglum sem mótuðust í helmingaskipta- samfélaginu. Og nú er komið fram eitt af þessum málum sem beinast gegn frjálsri samkeppni svo að guðleg for- sjón markaðarins geti starfað óáreitt. Á lokaspretti þingsins, með tilheyrandi ani og spani og óðagoti, stendur nú til að afgreiða stjórnarfrumvarp sem mun veikja Samkeppniseftirlitið, á tímum þegar full ástæða er til að styrkja það. Verði það afgreitt gætum við átt í vændum samruna stórra fyrir- tækja, og við þekkjum öll hvað slíkt táknar hér á landi: hærra vöruverð og minni þjónustu. Fyrir- tækjum verður sjálfum ætlað að meta það hvort skilyrði samkeppnislaga til samstarfs séu uppfyllt – svo nokkuð sé nefnt. Staða neytenda hefur löngum verið veikari hér en víðast hvar í kringum okkur – og á enn eftir að veikjast verði frumvarpið að lögum. Þetta mál sýnir að þessi ríkisstjórn stendur vörð um sérhagsmuni en lætur almannahagsmuni lönd og leið. Sérhagsmunagæslan Guðmundur Andri Thorsson alþingismaður 2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.