Fréttablaðið - 26.06.2020, Page 13

Fréttablaðið - 26.06.2020, Page 13
KÖRFUBOLTI Það ræðst á sunnudag­ inn kemur hvort Martin Hermanns­ son og samherjar hans hjá Alba Berlin ná að landa þýska meistara­ titlinum í körfubolta en leikið er eftir óhefðbundnu keppnisfyrir­ komulagi að þessu sinni vegna kór­ ónaveirufaraldursins. Alba Berlin og Ludwigsburg leiða saman hesta sína í úrslitaeinvíginu. Martin lék sömuleiðis til úrslita með Alba Berlin síðastliðið vor en þá laut liðið lægra haldi fyrir Bayern München. Martin hefur verið að glíma við meiðsli í baki í úrslitakeppni deild­ arinnar sem farið hefur fram síð­ ustu vikurnar en hann hefur spilað með liðinu þrátt fyrir þau meiðsli. Landsliðsmaðurinn lék einungis í tæp ar fjórtán mín út ur þegar Alba Berlin tryggði sér sæti í úrslitunum með sigri gegn Old en burg á mið­ vikudagsinn. Á þeim tíma skoraði hann fimm stig, gaf sex stoðsend­ ing ar og tók tvö frá köst. „Þetta hafa verið mjög sérstakar vikur og ef ég á að segja eins og er þá myndi ég kjósa að keppa ekki aftur við svona aðstæður. Það hefur verið mikill dauður tími á hótelherberg­ inu og ég sakna þess mjög að geta ekki hitt kærustuna mína og barnið mitt á milli leikja og æfinga,“ segir Martin í samtali við Fréttablaðið. „Gæðin í körfuboltanum hafa hins vegar verið meiri en ég bjóst við og allar hlaupa­ og snerputölur sem sjúkraþjálfarinn fær úr GPS­ mælingum á okkur sýna að við séum í jafn góðu og jafnvel betra líkamlegu formi en á hefðbundnu tímabili. Mér hefur líka liðið vel í skrokknum ef frá er talið höggið sem ég fékk á mjóbakið,“ segir hann enn fremur. „Ég skal alveg viðurkenna það að ég er ánægður með að leiktíðinni sé að ljúka. Við höfum ekki mátt yfirgefa hótelið nema klukkutíma í senn og erum undir miklu eftirliti. Þessi einangrun hefur tekið töluvert á andlega. Það er eins gott að hætt var keppni í EuroLeague. Það hefði verið ansi erfitt að gíra sig upp í að klára þá keppni,“ segir hann. „Ef við leikum á eðlilegri getu þá munum við kára þetta einvígi en Ludwigsburg hefur komið á óvart í úrslitakeppninni með því að slá Bayern München út og þeir eru með sterka fjóra leikmenn sem þeir treysta mikið á. Vonandi náum við að klára þetta. Eftir þetta einvígi tekur svo við langþráð og óvenjulegt sumarfrí þar sem það eru engir landsleikir í sumar. Stefnan er að ferðast innan­ lands með fjölskyldunni,“ segir bak­ vörðurinn öflugi. Alba Berlin hefur átta sinnum orðið þýskur meistari í körfubolta karla en liðið stóð síðast uppi sem sigurvegari árið 2008. Þar áður vann liðið þýska meistaratitilinn sjö ár í röð á árunum 1997 til 2003. Úrslitaeinvígið fer þannig fram að leiknir verða tveir leikir og það lið sem hefur betur í þeim leikjum samanlagt verður krýndur meistari. hjorvarolafsson@frettabladid.is Einangrunin verið mjög erfið Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans hjá þýska liðinu Alba Berlin hefja í kvöld leik í úrslitaeinvígi um þýska meistaratitilinn. Martin segir síðustu vikur hafa verið afar sérstakar. ENSKI BOLTINN Rahhem Sterling, leikmaður Manchester City, ræddi stöðu þeldökkra knattspyrnustjóra í þætti á BBC í vikunni. Þar benti hann á að hlutfall þeirra í ensku deildarkeppninni væri afar lágt. Þá sagði hann sína tilfinningu vera að fyrrverandi enskir lands­ liðsmenn sem væru dökkir á hör­ und ættu erfiðara með að ná frama innan knattspyrnustjórastéttar­ innar en hvítir. Benti hann á erfið­ leika Sol Campbell og Ashley Cole við að fá stjórastarf hjá liði í hæsta gæðaflokki, máli sínu til stuðnings. Sterling benti á að Frank Lampard og Steven Gerrard hefðu átt auð­ veldara með að klífa upp metorða­ stigann en fyrrgreindir menn. „Það eru um það bil 500 leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og þriðj­ ungur þeirra er þeldökkur. Þrátt fyrir þetta eigum við mjög fáa full­ trúa í knattspyrnustjórastarfi,“segir Sterling um stöðu mála. „Þrátt fyrir að hafa átt ámóta feril sem leikmenn hjá félags­ og landsliðum hafa leiðir þeirra verið ólíkar og Campbell og Cole hafa átt erfiðara með að koma sér að,“ segir hann enn fremur. „Mér finnst þessi samanburður Sterlings ekki alveg sanngjarn þrátt fyrir að ég virði skoðanir hans. Campbell stóð sig vel hjá Maccles­ field og Southend. Þá er Cole í f lottu starfi sem þjálfari í akademíunni hjá Chelsea. Þessum mönnum eru allir vegir færir og ég tel að þeir muni fá f lott störf í framtíðini,“ sagði Lampard – hó Sterling saknar þess að sjá þeldökka stjóra Síðustu dagar hafa verið landgdregnir hjá Martin. Það hefur bjargað því hversu vel hefur gengið. MYND/GETTY ENSKI BOLTINN Spænski knatt­ spyrnumaðurinn Pedro mun ganga til liðs við ítalska félagið Roma þegar samningur hans við Chelsea rennur út í sumar. Þessi 32 ára gamli kantmaður gerði skammtímasamning við Chelsea nýverið sem hélt honum í herbúðum Lundúnafélagsins út leiktíðina. Samningur hans við Roma er til eins árs með möguleika á framlengingu. Pedro hefur leikið með Chelsea í fimm ár en hann kom til liðsins frá Barcelona árið 2015. Hann hefur skorað 43 mörk í þeim 201 leik sem hann hefur leikið fyrir liðið. Með Chelsea varð hann enskur meistari árið 2017, enskur bikar­ meistari árið 2018 og vann Evrópu­ deildina síðastliðið vor. Chelsea hefur fest kaup á mar­ okkóska vængmanninum Hakim Ziyech sem kemur frá Ajax og þýska framherjanum Timo Werner frá RB Leipzig. Þá hefur Kai Haverts, leik­ maður Bayer Leverkusen, verið orð­ aður við liðið. – hó Pedro yfirgefur Chelsea í sumar Ef við leikum á eðlilegri getu þá munum við klára þetta einvígi en Ludwigsburg hefur komið á óvart. 2 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT Raheem Sterling í leik með City. Liverpool varð sófameistari í gærkvöldi Liverpool er Englandsmeistari í fyrsta sinn í 30 ár. Aðalkeppinautarnir, í Manchester City, töpuðu fyrir Chelsea í gærkvöldi og gat liðið og stuðn- ingsmenn þess fagnað. Mikill viðbúnaður var fyrir utan Anfield-völlinn þar sem óttast var að stuðningsmenn myndu safnast saman í stórum hópum. Þessir menn skemmtu sér þó konunglega fyrir utan völlinn í Bítlaborginni og hafa væntanlega fagnað langt fram eftir nóttu. MYND/GETTY

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.