Fréttablaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 2
Veður Fremur hæg breytileg átt í dag. Skýjað og lítils háttar skúrir suð- vestanlands, en bjart að mestu norðan til. Hiti 10 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. SJÁ SÍÐU 18 Líf og fjör í Grímsnesi Það var líf og fjör á tjaldsvæðinu Borg í Grímsnesi um helgina og verður líklega í allt sumar ef veður leyfir. Hálft ár er liðið frá því að fyrstu tilfelli kórónaveirunnar sem veldur COVID-19 greindust í Wuhan í Kína og mun faraldurinn setja mark sitt á öll ferðalög í sumar. Eins og myndin gefur til kynna er mjög auðvelt að njóta sín í tjaldferðalagi um landið og hafa yfirvöld hvatt Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR SUÐURLAND „Þá má segja að við höfum gefist upp á þessu,“ segir Þröstur Eysteinsson skógræktar- stjóri um þá ákvörðun Skógrækt- arinnar að framlengja ekki leigu- samninga við hjólhýsaeigendur í Þjórsárdal. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku fengu leigjendur bréf í síðustu viku þar sem þeim var til- kynnt að til stæði að loka hjólhýsa- byggðinni. Verða leigjendur að fjar- lægja hjólhýsin, palla og annað fyrir 1. júní á næsta ári. Yfir hundrað hjólhýsi eru á staðn- um og snertir ákvörðunin um 300 til 400 manns. Hafa margir hverjir farið í dýrar framkvæmdir við hjól- hýsin. „Það var ekki síst vegna þess að það var ekki hægt að fá meirihluta fólks til að fylgja reglum svæðisins,“ segir Þröstur aðspurður um ástæður ákvörðunarinnar. „Því miður bitnar þetta á þeim sem hafa staðið sig vel, en það er minnihlutinn.“ Þröstur segir beinar fjárhags- legar ástæður ekki hafa legið að baki lokuninni og ekki standi til að loka öðrum svæðum á vegum Skóg- ræktarinnar. „Þetta er eina svæðið sem við erum að gefast upp á,“ segir hann. „Þarna mun nú fá að vaxa skógur.“ Heiðveig María Einarsdóttir, for- maður Félags áhugamanna um hjól- hýsabyggð í Þjórsárdal, gagnrýndi fyrir helgi þann stutta fyrirvara sem leigjendur hafa til þess að hreinsa svæðin og að lögmaður félagsins sé nú að skoða réttarstöðu þeirra. Þröstur segir ekkert annað hafa verið í boði en að gera þetta með þessum hætti. „Við getum ekki sagt upp samningum eftir að þeir eru útrunnir. Það skrifa allir undir samning til eins árs í senn og við bara tilkynntum að við hygðumst ekki reka svæðið áfram eftir að núgildandi samningar renna út,“ segir hann. „Okkur fannst það bærilega heið- arlegt af okkur að gefa fólki heilt ár til að spá í sín mál.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Meirihluti fólks hafi ekki fylgt reglunum Skógræktarstjóri segir að ástæðan fyrir lokun hjólhýsasvæðisins í Þjórsárdal sé að meirihlutinn fylgi ekki reglum. Miður sé að ákvörðunin bitni á minni- hlutanum sem hafi staðið sig vel. Bærilega heiðarlegt sé að gefa árs fyrirvara. COVID-19 Víðir Reynisson, yfirlög- regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, hefur áhyggjur af því að kórón- aveiran nái sér mögulega hratt á strik aftur og að seinni bylgja far- aldursins sé nú væntanleg. Hann segir að við séum í annarri stöðu nú en fyrir viku og að almanna- varnir muni ekki hika við að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. „Já, ég hef áhyggjur og við öll. Það er raunveruleg hætta á að úti séu samfélagsleg smit sem við náum ekki utan um. Því f leiri sem koma saman, því hraðari getur útbreiðslan orðið. Smitrakningin og sóttkvíin verða þá sömuleiðis enn umfangsmeiri,“ sagði Víðir í gær. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að ekki væri útilokað að taka þurfi skref til baka í sóttvarnaráð- stöfunum, til dæmis ef f leiri hóp- sýkingar koma upp. Þá sagði hann að búið væri að rannsaka marga síðastliðna daga og að frekari rannsóknir væru fyrir- hugaðar. Aðspurður hvort núgildandi reglur um fjöldatakmarkanir yrðu í gildi fram yfir verslunarmanna- helgi sagði hann það ekki gott að segja. „Við þurfum að taka eitt skref í einu, sjá hvernig okkur gengur að ráða við þessa hópsýkingu sem er í gangi áður en við förum að hugsa um næstu skref,“ sagði Þórólfur. – uö Hefur áhyggjur af seinni bylgju faraldursins Víðir segir afleiðingarnar alvarlegar ef smit kemur upp á viðburðum. Þetta er eina svæðið sem við erum að gefast upp á. Þröstur Eysteins- son, skógræktar- stjóri Margir leigjendur á svæðinu hafa eytt milljónum króna í framkvæmdir. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur sýknað Reykjavíkur- borg af kröfu Sérverks ehf. Verk- takafyrirtækið, í samstarfi við Samtök iðnaðarins, krafði borgina um endurgreiðslu á um 120 milljóna króna innviðagjaldi vegna bygginga í Vogabyggð. Líkt og Markaðurinn greindi frá í haust var um að ræða prófmál um lögmæti innviðagjaldsins. Dómur- inn telur að greiðsluskyldan hvíli á gagnkvæmum samningi og sé því ekki skattur. Ber Sérverki að greiða tæpar tvær milljónir króna í máls- kostnað. – ab Borgin sýknuð  Dæmt var í málinu á föstudaginn. 3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.