Fréttablaðið - 30.06.2020, Blaðsíða 8
NÝTT EFNI
DAGLEGA
900+
KVIKMYNDIR
TITLAR
160+
BARNAEFNI
TITLAR
400+
ÞÁTTARAÐIR
TITLAR
á aðeins 3.990 kr./mán.
Úrval afþreyingar
fyrir alla í sumar
Eigðu skemmtilegt sumar með
Stöð 2 Maraþon, heima eða á ferðinni.
Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is.
3 0 . J Ú N Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
PÓLLAND Andrzej Duda, forseti Pól-
lands, leiðir forsetakosningarnar
eftir fyrstu umferðina á sunnudag.
Hlaut hann um 44 prósent sem þýðir
að aðra umferð þarf til, milli hans og
Rafal Trzakowski, hins frjálslynda
borgarstjóra Varsjár, sem fékk um
30 prósent. Mun hún fara fram þann
12. júlí.
Niðurstöðurnar voru að miklu
leyti í takt við kannanir, en þar var
Duda spáð 42 prósenta fylgi og Trza-
kowski 30 prósentum.
Fjölmiðlamaðurinn óf lok ks-
bundni Szymon Holownia hlaut 13,3
prósent atkvæða og mun ekki taka
þátt í seinni umferðinni. Kannanir
benda til að meirihluti stuðnings-
manna Holownia komi til með að
styðja Trzaskowski í seinni umferð-
inni.
Búist er við því að Duda beri sigur
úr býtum þó ekki með jafn afgerandi
hætti og kannanir bentu til í apríl
þegar kosningarnar áttu að fara
fram en var frestað vegna COVID-19
faraldursins. Voru þá líkur á að hann
myndi vinna með meirihluta í fyrri
kosningunum.
Duda er fram bjóðandi stjórn ar-
flokks ins íhalds sama Laga og rétt-
læt is. Ef hann tapar má búast við
talsverðum breytingum í átt að
frjálslyndi í landinu, en Duda hefur
meðal annars lýst samkynhneigð
sem „hug mynda fræði hættu legri en
komm ún isma“.
Pólverjar á Íslandi eru hins vegar
ekki jafn hrifnir af honum og landar
þeirra í heimalandinu. Því hann fékk
aðeins rúm 400 atkvæði í kosning-
unni sem fór fram í pólska sendiráð-
inu, eða rúmlega 12 prósent atkvæða.
Þetta er mjög í samræmi við
þingkosningarnar sem fóru fram í
október síðastliðnum. Lög og rétt-
læti tryggðu sér hreinan meirihluta
á pólska þinginu með 44 prósentum
atkvæða. En hér á Íslandi fékk flokk-
urinn aðeins 17 prósent og endaði í
fjórða sæti.
Frjálslyndir frambjóðendur eiga
fremur upp á pallborðið hér á Íslandi.
Hlaut Trzakowski flest atkvæði, eða
33,5 prósent. Þar á eftir kom sjón-
varpsmaðurinn Szymon Holownia
með 24 prósent en hann fékk 14 í
heildarkosningunni. Þá hefur Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavík-
ur lýst yfir stuðningi við Trzakowski.
Athygli vekur að Krzysztof Bosak,
frambjóðandi Þjóðfylkingar öfga-
hægrimanna, hlaut langtum betri
kosningu hér á landi en í Póllandi,
rúmlega 21 prósent á móti tæplega
7. En f lokkur hans vill meðal ann-
ars taka upp dauðarefsingu að nýju,
banna þungunarrof, leyfa byssueign
almennings og er á móti réttindum
innflytjenda og hinsegin fólks.
Þetta er reyndar einnig í samræmi
við úrslit þingkosninganna árið 2019.
Þá fengu öfgahægrimenn tæplega
26 prósent á Íslandi og voru næst-
stærstir en fengu aðeins 7 prósent í
heimalandinu.
Að lokum ber að nefna að Robert
Biedron, frambjóðandi Vinstri-
bandalagsins, fékk tæplega 7 pró-
sent hér á Íslandi en aðeins rúm 2 í
heildarkosningunni á sunnudag.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Forsetinn með lítinn
stuðning hér á landi
Einvígi verður milli hins íhaldssama Andrzej Duda og hins frjálslynda
Rafal Trzakowski í seinni umferð pólsku forsetakosninganna. Pólverjar
sem búa á Íslandi styðja síður Duda en samlandar þeirra í heimalandinu.
Hinn íhaldssami Duda fékk aðeins 12 prósent á Íslandi en verður líklega endurkjörinn forseti Póllands. MYND/EPA
Trza kowski hefur heitið því að bæta samskipti landsins við ESB. MYND/EPA
SAMFÉLAG Meðalævilengd karla á
Íslandi var 81 ár árið 2019 og meðal-
ævilengd kvenna 84,2 ár. Frá árinu
1988 hafa karlar bætt við sig rúm-
lega sex árum og konur rúmlega
fjórum í meðalævilengd. Frá þessu
er greint á vef Hagstofunnar.
Á tíu ára tímabili, frá 2009 til
2018, var meðalævi karla lengst í
Sviss, 80,9 ár, og skipuðu þeir fyrsta
sætið í Evrópu. Fast á hæla þeim
komu karlar á Íslandi með 80,8 ár og
Liechtenstein með 80,4 ár. Sænskir
og ítalskir karlar urðu að meðaltali
80,2 ára og Norðmenn 79,9 ára.
Á sama tímabili var meðalævi
kvenna á Spáni 85,8 ár og í Frakk-
landi 85,6 ár og skipuðu þær fyrsta
og annað sæti í Evrópu. Næst á eftir
komu konur í Sviss með 85,2 ár, á
Ítalíu með 85,1 ár, í Liechtenstein
með 84,4 ár og Lúxemborg með
84,2 ár. Íslenskar konur skipuðu
sjöunda sæti og urðu þá að meðal-
tali 84,1 árs.
Árið 2019 létust 2.275 einstakling-
ar sem búsettir voru á Íslandi, 1.157
karlar og 1.118 konur. Dánartíðni
var 6,3 látnir á hverja 1.000 íbúa og
ungbarnadauði 1,1 barn af hverjum
1.000 lifandi fæddum árið 2019. – uö
Lífslíkur á Íslandi með þeim mestu í Evrópu
Karlar hafa bætt sex árum við ævina frá 1988. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK